Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 13
Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli „Ég dáist að Arsenal. Þar á bæ ákvað fólk greinilega að vinna eftir einhverju langtímaplani. Gefa Arteta smátíma til að búa til lið.“ Þetta er tilvitnun í ummæli Guðna Th. Jóhannessonar for- seta Íslands í Fréttablaðinu um síðustu helgi. Þessi snotru orð lét forsetinn falla í garð Arsenal þótt hann sjálfur haldi með Manchester United. Það er hvorki ætlun mín að skrifa um enska boltann né draga for- setann inn í pólitík. Ég hnaut bara um þetta orð: Langtímaplan. Langtímastjórn Á íslenskan mælikvarða er ríkis- stjórnin orðin langtímastjórn. Heilbrigðismálin hafa frá fyrsta degi verið mikilvægasta viðfangs- efni hennar. Stöðug umræða um vandræði heilbrigðisþjónustunnar sýnir að samasemmerki kemur ekki sjálf- krafa á milli hugtakanna: lang- tímastjórn og langtímaplan. Á öðru ári stjórnarsamstarfs- ins staðfesti heilbrigðisráðherra krabbameinsáætlun til 2030 og Alþingi samþykkti heilbrigðisáætl- un til 2030. Í hvorugri áætluninni var verkefnum raðað í tímasetta forgangsröð og hvorug áætlunin var fjármögnuð. Þessi skjöl áttu því lítið skylt við langtímaplan nema ártalið á forsíðu. Kannski skorti þáverandi heilbrigðisráðherra metnað. Hitt er líklegra að við ríkisstjórnarborðið hafi allir verið sammála um að engin leið væri fyrir jaðarflokka stjórnarinnar að ná saman um alvöru langtímaplan. Málamiðlunin var að gera bara ekkert langtímaplan. Samanburður Áhugavert er að bera þetta saman við verklag tveggja danskra ríkis- stjórna við tíu ára varnarmála- áætlun. Í mars í fyrra gerði minnihluta- stjórn sósíaldemókrata samkomu- lag við tvo stuðningsflokka og tvo stjórnarandstöðuflokka um varnarmálaáætlun til 2033. Á þeim tíma eiga framlög til varnarmála að hækka í áföngum í tvö prósent af þjóðarframleiðslu. Ný meirihlutastjórn ákvað að hækka ekki skatta í þessu skyni. Í fyrsta áfanga felst fjáröflun til þessarar langtímaáætlunar í kerfis- breytingu með afnámi lögbundins frídags, kóngsbænadagsins. Þetta er orðið mikið hitamál. Þrír af flokkunum, sem stóðu að sáttinni um varnarmálaáætlun og eru nú í stjórnarandstöðu, vilja halda í kóngsbænadaginn. Til þess að geta áfram talist aðilar að sáttinni verða þeir að koma fram með raunhæfan valkost um fjár- mögnun. Það hafa þeir gert. Þarna nálgast menn viðfangsefn- ið með markvissum og ábyrgum hætti þótt tekist sé á um fjármögn- unarleiðir. Tímabært frumkvæði Í þessu ljósi var áhugavert að lesa grein Þorgerðar Katrínar Gunn- arsdóttur formanns Viðreisnar í Fréttablaðinu fyrir tveimur vikum um nýja nálgun varðandi fram- kvæmd heilbrigðisáætlunar til 2030. Þar sagðist hún hafa í hyggju að leggja fram þingsályktunartillögu um að ljúka þeim þætti hennar, sem skilinn var eftir fyrir fjórum árum. Tilgangurinn væri að leita eftir pólitískri samstöðu um að setja verkefni í tímaröð, tengja þau við fjármálaáætlun, ákveða hlutdeild heilbrigðisþjónustu í þjóðarútgjöldum og finna leiðir til fjáröflunar. Mikilvægt er að eins verði tekið á krabbameinsáætluninni. Engir kraftaverkamenn, hvorki í ráðuneytinu né inni í einstökum stofnunum, munu leysa þetta verk- efni með skyndiaðgerðum. Frumkvæðið í umræðunni er tímabært og lýsir skilningi á vandasömu langtíma viðfangsefni heilbrigðisráðherrans. Fullreynt Viðfangsefnið er hins vegar ekki einfalt. Sumir flokkar telja að ekki þurfi að stækka sneið heilbrigðisþjónust- unnar í þjóðarkökunni. Svo deila aðrir um hvort stækka eigi sneiðina með sköttum eða tilfærslum frá öðrum útgjaldaliðum eins og vaxtagjöldum, sem eru þau hæstu meðal vestrænna þjóða og kalla á kerfisbreytingu. Eftir sex ár er fullreynt að jaðar- flokkarnir í ríkisstjórninni finna ekki sameiginlega lausn á þessum úrlausnarefnum. Þess vegna er eðlilegt að kanna möguleika á samstarfi um pólitíska hluta heilbrigðisáætlunarinnar með meiri þyngd á miðjunni, sem gæti aukheldur lifað ólík stjórnar- mynstur á gildistímanum. Dauður tími Fram að kosningum eru bara tvö þing. Það er hæfilegur tími til samninga af þessu tagi. Öllum þykir sjálfsagt að vinna að samgöngumálum með tímasettri og fjármagnaðri langtímaáætlun. Langtíma heilbrigðisáætlun kann að vera flóknari. En breið pólitísk samstaða um slíkt plan er jafn mikilvæg fyrir samfélagið. Ríkisstjórnin treður bara mar- vaða til kosninga. Heilbrigðisráð- herra gæti nýtt þann dauða tíma til þess að finna breiðan pólitískan grundvöll fyrir langtímaplan. Ef vel tækist til mætti byrja að vinna eftir endurbættu plani strax í upphafi næsta kjörtímabils. Með því myndi ráðherrann marka djúp spor. n Langtímaplan N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is ÚTSALA á sýningarvörum í verslun Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar, sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60% afsláttur Ciro 3 litir Áður 39.900 NÚ 29.900 Alison snúnings Áður 33.900 NÚ 27.000Sierra nokkrir litir Áður 25.700 NÚ 19.200 Kato svart Áður 29.900 NÚ 19.400 Adele Áður 39.900 NÚ 23.900 Obling 3ja sæta Áður 129.000 NÚ 103.000 Brookliyn borðstofuborð 220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik Áður 199.000 NÚ 149.000 Notthingham sófaborð Áður 116.000 NÚ 58.000 Hill hvíldarstóll með tauáklæði Áður 176.000 NÚ 123.000 Staturn 3ja sæta Áður 159.000 NÚ 119.000 25% 25% 25% 25% 40% 50% 35% 30% 20% 20% FréttabLaðið sKoðun 1326. janúar 2023 FIMMTuDAGuR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.