Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 54
ELKO er á virkilega spennandi vegferð þar sem allt kapp er lagt á að veita framúrskar- andi þjónustu og eru þarfir viðskiptavina okkar alltaf í fyrsta sæti. Loforð okkar er „það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli“ og höfum við þetta loforð að leiðarljósi í öllu sem við gerum. Jónína Birgisdóttir ELKO er stærsta raftækja- verslun landsins, en hjá fyr- irtækinu starfa 255 manns á mörgum starfsstöðvum. ELKO rekur fimm verslanir staðsettar í Lindum, Granda, Skeifu, Akureyri og á Kefla- víkurflugvelli, ásamt því að vera með eina öflugustu vef- verslun landsins. Að auki er vörulager ELKO staðsettur á Bakkanum, Skarfagörðum. Berglind R. Guðmundsdóttir, María Elísabet Ástudóttir og Jónína Birgisdóttir starfa allar í stjórnunarstöðum hjá ELKO og sitja jafnframt í framkvæmda- stjórn. Berglind er forstöðumaður innkaupa- og vörustýringasviðs og stýrir öflugri deild vörustjóra, vöruupplýsingafulltrúa, tollafull- trúa og bókhaldsfulltrúa. María Elísabet Ástudóttir er forstöðu- maður sölu- og verslanasviðs og undir hana heyrir allt versl- unarsvið og fyrirtækjaþjónusta ELKO, þar af leiðandi sinnir hún verkefnum af ýmsum stærðar- gráðum. Jónína Birgisdóttir er forstöðumaður þjónustusviðs og ber ábyrgð á þjónustu og þjónustu- stefnu ELKO, það er, þjónustu- upplifun, þjónustusölu, eftir- kaupaþjónustu og vörudreifingu. Undir hana heyrir þjónustuver, vefverslun ELKO, þjónustusala og öll eftirkaupaþjónusta. Berglind bendir á að innan ELKO starfi fjölbreyttur hópur einstakl- inga þar sem öll fái jöfn tækifæri til starfsþróunar og til að vaxa í starfi. Mikið sé lagt upp úr því að styrk- leikar hvers og eins fái að njóta sín. María tekur undir og segir að fyrirtækið stuðli einnig að öflun menntunar og bættri velferð starfsfólks sem styrki þar með stöðu einstaklingsins og geri viðkomandi kleift að nýta hæfi- leika sína í starfi og auka þar með vellíðan og bæta starfsanda. Hún segir ELKO bjóða starfsfólki sínu upp á velferðarpakka með það að markmiði að stuðla að bættri and- legri og líkamlegri heilsu. Einnig bjóði fyrirtækið upp á fjölda nám- skeiða hjá Stjórnvísi, Dokkunni og Akademias. Jónína segist sammála og tekur fram að ELKO sé eftirsóknar- verður vinnustaður, enda séu mörg tækifæri fyrir starfsfólk til að vaxa, bæði í starfi en líka sem einstaklingar því hægt sé að fá svo mörg tól til að vinna með og nýta í formi námskeiða eða undir hatti velferðarpakkans. Vilja fleiri kyn til starfa „Kynjahlutfall starfsfólks mætti vera betra og við viljum fá fleiri kyn til starfa. Raftæki eru nefni- lega ekki bara fyrir eitt kyn. Þau sem hefja störf hjá ELKO fá góða fræðslu og fá leiðbeinanda í verslun til að leita til. Við viljum gjarnan stuðla að fjölbreytileika starfsfólks og auka hlut allra kynja,“ segir Berglind. „ELKO er vinnustaður fyrir öll kyn, þar sem öll fá jöfn tækifæri og tryggt er að starfsfólki sé ekki mismunað vegna kyns, aldurs, uppruna, trúar eða annarra þátta. Við reynum að hanna atvinnuauglýsingarnar þannig að þær höfði til allra og hvetjum öll kyn til þess að sækja um auglýst störf hjá okkur. Einnig höfum við breytt vaktafyrirkomu- lagi í verslunum til þess að reyna að ná til breiðari hóps og bjóðum þar með upp á sveigjanlegri vinnu- tíma en áður,“ bætir María við. Umhverfismál í forgrunni Að sögn Berglindar hefur ELKO lagt aukna áherslu á umhverfis- mál í rekstrinum og tekið fjölmörg skref til þess að minnka kolefnis- sporið. ELKO hefur komið upp snyrtilegum endurvinnsluskápum í öllum verslunum á höfuðborgar- svæðinu og á Akureyri, þar sem tekið er við smærri raftækjum, rafhlöðum, blekhylkjum, gló- og flúorperum. „Viðskiptavinir geta því losað sig við alla þessa hluti sem eiga það til að safnast upp á heimilinu og komið þeim í ábyrga endurvinnslu án þess að þurfa að gera sér sérstaka ferð á stærri endurvinnslustöðvar. Við kaupum einnig eldri raftæki af viðskipta- vinum þar sem hægt er að koma með gömul raftæki til okkar og ELKO sér svo um að koma eldri tækjum í ábyrgt endurvinnslu- kerfi.“ ELKO er auk þess alltaf að leita leiða til þess að gera enn betur í umhverfismálum, að sögn Jónínu. „Við tókum stórt skref þegar við hættum að prenta út allar pantanir og reikninga í vöruhúsinu okkar. Þess í stað bjóðum við viðskipta- vinum okkar að sækja allar kaup- nótur rafrænt í gegnum „mínar síður“ á vefsíðunni okkar.“ Traust viðskiptasamband til framtíðar ELKO á í samstarfi við stóra erlenda birgja til að tryggja hag- kvæmt vöruverð og fjölbreytt úrval, segir Berglind. „Fyrir rúmum tveimur árum hóf ELKO að birta verðsögu vara en með birtingu verðsögunnar vill ELKO auka gegnsæi og stuðla þannig um leið að traustu viðskiptasambandi við viðskiptavini sína til fram- tíðar.“ Viðskiptavinir eru ávallt á tánum varðandi réttindi sín og ósjaldan skapast þarfar umræður um verðbreytingar á einstökum vörum. „Þessi umræða er yfirleitt hvað hæst í kringum útsölur eða aðra tilboðsdaga þegar mikið er pantað inn af nýjum vörum og verðbreytingar eru örar. Því er verðsagan tæki sem viðskiptavinir geta treyst.” Traustir ráðgjafar Þá segir María eitt stærsta verkefni ársins í fullum undirbúningi, en stefnt er á endurbætur á verslun ELKO í Lindum síðar á árinu. „Endurbætur og framkvæmdir eru ansi stórt verkefni sem tekur tíma, en markmiðið með þeim er að lyfta upp útliti verslunarinnar líkt og við gerðum þegar við fluttum ELKO í Skeifunni í nýtt húsnæði, sem opnaði um mitt síðasta ár. Sú framkvæmd gekk mjög vel og það er frábæru starfsfólki að þakka.“ Hún segir mikla samstöðu ríkja innan fyrirtækisins og að starfs- fólk hafi lagst á eitt við flutninga og breytingar. „Hjá ELKO starfar nefnilega fjölbreyttur og kraft- mikill hópur sem leggur heldur betur sitt á vogarskálarnar. Við erum stolt af verslunum og starfs- fólki okkar og leggjum mikið upp úr reglulegri þjálfun innanhúss, sem og fræðslu um nýjar vörur. Það skilar sér svo beint til viðskipta- vina okkar í formi ráðlegginga og upplýsingagjafar.“ Til að viðhalda þekkingu og styrkja tengslin við framleiðendur er hópur starfsfólks sendur út á hverju ári á ráðstefnu sem haldin er á vegum Elkjøp. „Þar koma saman allir stærstu raftækjafram- leiðendurnir til að kynna nýjustu vörurnar, tæknina og aukahlutina sem eru í sölu eða á leiðinni á markað. Þannig er hægt að miðla fræðslu og þekkingu áfram innan fyrirtækisins og ýta undir að starfsfólk ELKO séu traustir ráð- gjafar í raftækjum.“ Viðskiptavinurinn í fyrsta sæti „ELKO er á virkilega spennandi vegferð þar sem allt kapp er lagt á að veita framúrskarandi þjónustu og eru þarfir viðskiptavina okkar alltaf í fyrsta sæti. Loforð okkar er „það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli“ og höfum við þetta loforð að leiðarljósi í öllu sem við gerum,“ segir Jónína. „Ólíkar kröfur viðskiptavina um aukna og bætta þjónustu er sífellt að aukast og því fylgja nýjar áskoranir og spennandi verkefni. Við höfum til að mynda lagt mikið í stafræna þróun og erum með tiltölulegan nýjan vef, mjög öfluga leitarvél og vorum fyrst á Íslandi til að bjóða upp á myndsímtöl við sölufulltrúa í verslun. Þar erum við í raun að færa persónulega versl- unarupplifun beint til viðskipta- vina, hvar sem þeir eru staddir.“ Jónína segir að þar fyrir utan hafi ELKO lagt mikla áherslu á áframhaldandi uppbyggingu þjónustuvers. „Til dæmis er opið til níu á kvöldin í netspjalli hjá okkur og hefur það reynst gífurlega vel. Allar þessar lausnir auðvelda við- skiptavinum okkar, óháð búsetu eða aðstæðum, að sækja þjónustu til ELKO. Þetta eru allt lausnir sem hafa verið innleiddar til þess að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði og við munum halda áfram að betrumbæta þær og leita nýrra leiða til þess að þróa þær áfram.“ n ELKO er eftirsóknarverður vinnustaður Jónína Birgisdóttir, María Elísabet Ástudóttir og Berglind R. Guðmundsdóttir starfa allar í stjórnunarstöðum hjá ELKO og sitja jafnframt í framkvæmdastjórn. fréTTABLAÐIÐ/vALLI 38 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFéLag KvEnna í atvinnuLíFinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.