Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 83
38.387
Stigamet NBA- deildar-
innar er í eigu Kareem
Abdul-Jabbar sem lék í
deildinni í tuttugu ár.
30
James vantar þrjátíu
stoðsendingar til að ná
fjórða sæti í sögu NBA-
deildarinnar.
1
James varð fyrsti
maðurinn til að skora
fjörutíu stig eða meira í
einum leik gegn öllum
liðum NBA-deildar-
innar á dögunum.
178
Stig vantar upp á til að
ná meti Kareem sem
hefur staðið óhaggað í
33 ár frá því að Kareem
lagði skóna á hilluna.
30,2
James er með 30,2 stig
að meðaltali í leik í
vetur.
3
James er þriðji elsti
leikmaður deildarinn-
ar á 39. aldursári.
10
James er í tíunda sæti
yfir fjölda leikja í sögu
deildarinnar.
10.000
James varð á dögunum
fyrsti maðurinn til að
fara yfir tíu þúsund
stig, stoðsendingar og
fráköst í sögu NBA-
deildarinnar.
38.209
LeBron er kominn í
38.209 stig eftir leik
Lakers gegn Clippers.
Kóngurinn
eygir hásætið
Það þarf sjálfstraust til að kalla sig konung-
inn frá unglingsaldri en LeBron James er
hársbreidd frá hásætinu í NBA-deildinni.
Stigamet Kareem Abdul-Jabbar í NBA-deild-
inni sem var lengi talið ósnertanlegt, enda
búið að standa í 34 ár, fellur á næstu dögum.
kristinnpall@frettabladid.is
NBA Það virðist ekkert ætla að hægjast á
sóknaraf köstum LeBron James á tuttug-
asta tímabili hins sjálftitlaða konungs
í NBA-deildinni í körfubolta. Hann
heldur áfram að klífa metorða-
listann og vantar aðeins 178 stig
til að jafna met Kareem Abdul-
Jabbar yfir f lest stig í sögunni.
Eigandi Los Angeles Lakers,
Jeanie Buss, r if jaði síðast-
liðið haust upp samtal á milli
hennar og Kareem eftir að
Kareem varð stigahæsti leik-
maðurinn í sögu deildarinnar
árið 1984 þar sem Kareem full-
yrti að met hans yrði aldrei bætt,
í hlaðvarpinu The Crossover.
Sviðsljósið hefur verið á LeBron frá
því að hann fór að vekja athygli á lands-
vísu sem táningur. Fljótlega fór að bera á nafn-
inu konungurinn (e. King James) sem hefur fylgt
honum út ferilinn, þó að viðhorf hans fari í taug-
arnar á mörgum körfuboltasérfræðingum sem
hafa deilt um samanburð milli James og Michael
Jordan, í að verða áratug. n
Fréttablaðið íþróttir 1526. janúar 2023
FiMMtUDAGUr