Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 60
Ráðgjafarfyrirtækið Poway
ehf. var stofnað árið 2009
þegar Ásta Björk Matthías-
dóttir, annar eigandi félags-
ins, var í mastersnámi í
Kaliforníu og bjó í borginni
Poway.
Poway ehf. byggir á áratuga
reynslu af fjármálum, stjórnun,
rekstri og endurskipulagningu
fyrirtækja.
„Við trúum því að það sé alltaf
svigrúm til að bæta reksturinn,”
segir Ásta Björk og bætir við að
áherslan sé á lítil og meðalstór
fyrirtæki. „En annars eru allir vel-
komnir.“
Ein aðalþjónusta Poway er í
formi Fjármálastjóra til leigu
í lengri eða styttri tíma. „Slík
þjónusta hentar margs konar
fyrirtækjum sem vilja nýta sér
þekkingu reynds fjármálastjóra
en hafa ekki tök á að hafa slíkan
starfsmann í fullu starfi,“ segir
Ásta.
„Fyrirtæki geta nýtt sér
þjónustu okkar og fengið fjár-
málastjóra í hlutastarf og/eða
tímabundna ráðgjöf og þá er
fyrirtækið komið með 100 pró-
senta þekkingu í hlutastarf eða
tímabundið.“
Poway veitir fjölbreytta ráðgjöf
á sviði rekstrar og fjármála. „Það
er alltaf gott að fá utanaðkomandi
aðila til að skoða reksturinn og
koma með tillögur að úrbóta-
verkefnum og jafnvel fylgja þeim
eftir,“ segir Ásta.
„Við sjáum ekki um að færa
bókhald, en hjá okkur er mikil
þekking á færslu bókhalds sem
við nýtum til þess að fara inn í
fyrirtæki og skoða hvort ekki sé
hægt að einfalda reksturinn eða
gera tölurnar aðgengilegri fyrir
stjórnendur.
Við tökum einnig að okkur að
þjálfa bókara í að gera stjórnenda-
skýrslur, en oft innihalda kerfin
sem unnið er með ýmiss konar
gagnleg mælaborð sem eru lítið
sem ekkert notuð. Það er mikil-
vægt að æðstu stjórnendur hafi
tölurnar um reksturinn ávallt
uppfærðar svo hægt sé að grípa
inn í um leið og tölurnar öskra á
athygli.“
Fjölbreytt ráðgjöf
En þjónusta Poway nær yfir stærra
svið. „Við höfum mikla reynslu af
innleiðingu nýrra tölvukerfa og
getum veitt ýmiss konar aðstoð
og þjálfun starfsmanna í inn-
leiðingarferlinu. Einnig höfum við
tekið að okkur að þjálfa starfsfólk
sem hefur ekki fengið nægilega
kennslu á tölvukerfi og/eða tekur
við af starfsfólki sem ekki nýtti
kerfin nægilega vel vegna van-
þekkingar.“
Þá getur Poway líka aðstoðað
við birgðastjórnun.
„Eitt af því sem fyrirtæki verða
að veita meiri athygli er birgðir og
birgðastýring, það er mikil fjár-
binding í birgðum svo samsetning
þeirra verður að vera í lagi. Fram-
legðin er annar þáttur sem þarf að
vera í lagi í rekstrinum. Við höfum
verið að gera greiningar og komið
með úrbætur sem geta aðstoðað
stjórnendur í að hafa betri yfirsýn.“
Fyrir utan allt þetta veitir Poway
ráðgjöf við gerð fjárhagsáætlana og
aðstoðar við að gera kynningarefni
og samskipti vegna fjármögnunar.
„En umfram allt er best að halda
þessu öllu einföldu og ekki vera að
flækja málin. Stjórnendur gera það
sem þeir eru bestir í og við hjálpum
þeim með hitt,“ segir Ásta Björk að
lokum.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.poway.is
Alltaf svigrúm til að bæta reksturinn
Ásta Björk Matthíasdóttir er annar eigandi Poway sem var einmitt stofnað í borginni Poway í Kaliforníu. mynd/aðsend
Umfram allt er best
að halda þessu öllu
einföldu og ekki vera að
flækja málin. Stjórn-
endur gera það sem þeir
eru bestir í og við hjálp-
um þeim með hitt.
Ásta Björk Matthíasdóttir
Ásdís Ósk Valsdóttir löggilt-
ur fasteignasali er stofnandi
og eini eigandi fasteigna-
sölunnar Húsaskjóls.
Ásdís hefur starfað við fasteigna-
sölu í 20 ár. Hún er menntaður
kerfisfræðingur, með BA-gráðu
í spænsku og sagnfræði og hefur
einnig tekið fjölda námskeiða í
markaðsmálum og markaðssetn-
ingu á samfélagsmiðlum.
„Við erum leiðandi á mörgum
sviðum,“ segir Ásdís og bætir við:
„Við sem störfum hér erum öll í
skýinu og erum að vinna heima.
Við erum stafrænt þjónustufyrir-
tæki og á tveimur árum höfum við
farið úr því að vera hefðbundin
fasteignasala í það að vera græn
fasteignasala í skýinu,“ segir Ásdís.
Covid neyddi okkur í breytingar
„Covid-faraldurinn neyddi okkur
til að fara aðrar leiðir og þegar allir
voru sendir heim til að vinna áttuð-
um við okkur á því að það hentaði
okkur miklu betur að vinna heima
heldur en að vera niðurnjörvuð
á stórri skrifstofu með viðveru.
Fasteignasala er tarnavinna og
vinnan er að mestu unnin utan
skrifstofunnar. Við hjá Húsaskjóli
vorum mjög samstíga hvað þetta
varðar og í dag er samningadeildin
með skrifstofu þar sem við höldum
kaupsamninga og afsöl og einnig
er skrifstofuherbergi til staðar ef
fólk er orðið leitt á því tímabundið
að vinna heima. Við nýtum okkur
Zoom-fundi fyrir verðmöt og hitt-
umst að minnsta kosti einu sinni í
viku á stefnumótunarfundum eða
tökum sameiginlegan hádegismat,“
segir Ásdís.
Ásdís Ósk segir að Húsaskjól hafi
aðeins verið byrjað á þessari veg-
ferð. „Það var hjá mér ungur lög-
fræðingur, Ólafur Þorri. Hann hafði
frumkvæði að því að við fórum að
nota rafrænar undirritanir og við
vorum langfyrsta fasteignasalan
til að nýta okkur þær. Einnig setti
hann upp fyrsta rafræna upplýs-
ingabæklinginn okkar.“
Heildarupplýsingakerfi
Ásdís Ósk hefur hannað heildar-
upplýsingakerfi fyrir Húsa-
skjól sem á sér enga hliðstæðu
á íslenskum fasteignamarkaði.
Kaupendur bóka sig í tíma í opið
hús og fá sendan upplýsingabækl-
ing. Þar er hægt að stýra hversu
margir koma í opið hús á sama
tíma og það eru því aldrei stórir
hópar í einu. „Kaupendur eru mjög
ánægðir með þetta fyrirkomulag
þar sem þeir fá mun meira næði
til að skoða eignina. Þeir geta líka
skoðað upplýsingabæklinginn
áður en þeir mæta í opið hús og
eru því mun upplýstari um ástand
eignarinnar.
Seljendur sjá hversu margir
eru bókaðir í opið hús og hversu
margir mættu og fá upplýsingar
um hvernig kaupendum leist
á eignina. Öll samskipti á milli
seljanda og fasteignasala fara
þarna í gegn og því auðvelt að hafa
yfirsýn yfir söluferlið.“
Húsaskjól býður upp á fjóra
mismunandi sölupakka þar sem
seljendur geta valið sér það þjón-
ustustig sem þeim hentar. Gull-
pakki Húsaskjóls er langvinsælasti
sölupakkinn. Það er gífurlega
mikil þjónusta og markaðssetning
innifalin í honum og hann hentar
einnig mjög vel þeim sem eiga eftir
að kaupa þar sem kaupendaþjón-
usta er innifalin í þeim sölupakka.
„HomePin er kaupendaþjón-
ustukerfið okkar. Þarna geta
kaupendur haldið utan um allar
þær eignir sem þeir hafa áhuga á
að skoða, sett inn athugasemdir,
vistað niður skjöl sem tengjast
eigninni og átt í samskiptum við
sinn fasteignasala hjá Húsaskjóli
um eignina og fengið ráðgjöf með
kaupverð og kauptilboð.
Nýjasta kerfið okkar er Verð-
saga. Þetta er leitarvél í öllum þing-
lýstum kaupsamningum frá 2006.
Allir geta nýtt sér hana og hægt
er að leita eftir póstnúmerum,
eignategund, byggingarári og
stærð. Það er síðan hægt að fram-
reikna alla kaupsamninga til að
sjá hvað til dæmis eign sem seldist
fyrir þremur árum hefur hækkað í
verði,“ segir Ásdís.
Eru virk á samfélagsmiðlum
Ásdís segir að Húsaskjól sé stöðugt
að bæta við kerfin og markmiðið
er að gera fasteignaviðskipti gegn-
særri og skilvirkari.
„Við erum eina fasteignasalan
sem er með sjálfstæða greiningar-
deild og sendum frá okkur reglu-
legar greiningar um fasteigna-
markaðinn og einnig erum við
mjög virk á samfélagsmiðlum og
setjum inn fróðleiksmola um fast-
eignamarkaðinn og góð ráð fyrir
bæði kaupendur og seljendur.
Við hjá Húsaskjóli teljum það
vera okkar samfélagslegu ábyrgð
að miðla öllum þeim upplýs-
ingum sem við megum áfram til
kaupenda og seljenda til að gera
fasteignaviðskipti skiljanlegri og
gegnsærri og auðvelda öllum í
fasteignaviðskiptum að taka upp-
lýstar ákvarðanir. Við viljum taka
giskið út úr fasteignaviðskiptum,“
segir Ásdís. n
Græn fasteignasala í skýinu
Ásdís Ósk Valsdóttir, eigandi fasteignasölunnar Húsaskjóls, hannaði heildar-
upplýsingarkerfi fyrir Húsaskjól sem á sér enga hliðstæðu á íslenskum
fasteignamarkaði. FRÉTTaBLaðIð/sTeFÁn
Við erum eina
fasteignasalan sem
er með sjálfstæða grein-
ingardeild og sendum frá
okkur reglulegar grein-
ingar um fasteignamark-
aðinn.
Ásdís Ósk Valsdóttir
44 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélAG kvennA í AtvinnulíFinu