Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 36
Mér finnst gaman
að kenna og býð
upp á kennslu og ráðgjöf.
Mig langar að nýta
þekkingu mína til að
kveikja áhuga fólks á
bókhaldi.
Eva Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri og eigandi
Podium ehf., segir að enn sé
langt í land með að ná mark-
miði lagaákvæða um 40%
kynjahlutfall í stjórnum.
Eva segir að konur séu 5% forstjóra
skráðra félaga á heimsvísu, 13%
forstjóra skráðra félaga á Íslandi og
24% allra framkvæmdastjóra hér
á landi. „Heilt yfir þá eru stjórnar-
menn 27%, stjórnarformenn 24,7%
og framkvæmdastjórar 23,9%
konur,“ segir hún.
„Hægt þokast því í jafnréttisátt
í þessu jafnréttasta landi heims. "
segir Eva sem er ráðgjafi og eigandi
Podium ehf., ráðgjafafyrirtækis
sem fæst við stjórnendaráðgjöf,
stefnumótun og breytinga-
stjórnun. Fyrirtækið var form-
lega stofnað árið 2015. Á árunum
sem liðin eru síðan hefur Podium
aðstoðað fjölda fyrirtækja, stórra
sem smárra, við að móta stefnu
með sjálfbærni að leiðarljósi.
Podium hefur sérhæft sig í stefnu-
mótun þar sem Heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna eru í aðal-
hlutverki og leitt stór verkefni á
sviði Heimsmarkmiðanna með
sveitarfélögum, haldið fyrirlestra
og tekið þátt í ýmsum verkefnum.
Blaðamennska og almannatengsl
Bakgrunnur Evu liggur frá blaða-
mennsku á DV og ritstjórn helgar-
blaðs í ráðgjöf í almannatengslum
auk þess sem hún starfaði sem
talsmaður og forstöðumaður
almannatengsla hjá Símanum til
fjölda ára. Þá tók hún við stöðu í
framkvæmdastjórn Mílu þar sem
hún leiddi stefnumótun, mörk-
unarvinnu, sölu og þjónustu hjá
fyrirtækinu eftir að það var skilið
frá Símanum.
„Að finnast kona einhvers virði
er mikilvægt til að halda sjálfs-
traustinu og því þurfa konur að
komast áfram. Þegar ég sjálf var í
tilvistarkreppu á vinnumarkaði
og fannst ég hvorki komast aftur
á bak né áfram sagði þáverandi
yfirmaður minn við mig þessa
setningu: „Það sækir þig enginn út
í horn." Setningin skilaði mér því
að ég fór að sækjast meira eftir því
sem mig langaði í. Þessa setningu
nota ég enn þá og hef ávallt hvatt
konur til þess að þróast í starfi
og sækja fram, þær verða að rétta
sjálfar upp hönd. Takk, Heiðrún
Jónsdóttir,“ segir Eva.
Jafnrétti er ákvörðun og við
missum af mannauði
„Ég var fyrsti verkefnisstjóri
Jafnvægisvogar FKA þegar því
skemmtilega verkefni var hrundið
af stað og kom því á koppinn ásamt
góðu fólki hjá FKA, fyrirtækjum og
forsætisráðuneytinu. Við héldum
á lofti þeirri staðreynd að jafnrétti
væri ákvörðun. Í Jafnvægisvoginni
fór saman áhugi og ósk um að
taka þátt í að byggja upp samfélag
þar sem dætur þessa lands geta
átt sömu tækifæri og synir þess.
Að mínu mati er mjög mikilvægt
að fjölga konum í stjórnum og
framkvæmdastjórnum þar sem
vinnumarkaðurinn missir annars
af þeim mikla mannauði sem
liggur í konum og þeirra menntun.
Kynjahlutfall brautskráðra úr
háskólum hefur verið svipað frá
1995 þar sem konur eru frá 62%-
66% brautskráðra nemenda. Þetta
sýnir að vinnumarkaðurinn er að
missa af þeim mikla mannauði
sem liggur í konum og langskóla-
menntun þeirra. Þessu til viðbótar
langar mig til þess að benda á að
val í stjórnir þar sem einhæf þekk-
ing er í aðalhlutverki er heldur ekki
af hinu góða og oft er t.d. sérstakur
skortur á sjálfbærniþekkingu í
stjórnum fyrirtækja,“ segir Eva.
Konur sem drifkraftar sjálfbærni
„Konur eru víða drifkraftar
sjálfbærni en sjálfbærni drífur
áfram viðskipti og nýsköpun líkt
og rekstrarlega skilvirkni. Hvar
sem ég hef komið að ráðgjöf í
sjálfbærnimálum þá hafa konur
verið í leiðtogahlutverkum sem
sjálfbærni- eða sveitarstjórar.
Mörg fyrirtæki og sveitarfélög
nota Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna til þess að keyra áfram
verkefni á sviði sjálfbærni og flest
eru þau að vinna eftir Heimsmark-
miði 5 um jafnrétti kynjanna. Ef
allar konur í FKA sameinast um að
vinna með sjálfbærni að leiðar-
ljósi munum við byggja upp betri
heim.‘‘ n
Það sækir þig enginn út í horn
Eva Magnúsdóttir leggur sig fram um að hvetja konur til að þróast í starfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Að finnast kona
einhvers virði er
mikilvægt til að halda
sjálfstraustinu og því
þurfa konur að komast
áfram.
Sara Dögg Davíðsdóttir
Baxter stofnaði LOGN Bók-
hald í maí síðastliðnum
og aðsóknin hefur farið
fram úr hennar björtustu
vonum. Markmið hennar
er að sýna að bókhald getur
verið skemmtilegt og mjög
mikilvægur þáttur í rekstri
einstaklinga og fyrirtækja.
Sara Dögg heldur úti Instagram-
síðu með fróðleik um rekstur og
bókhald á mannamáli. Hún lærði
bókarann á árunum 2019 til 2020
og fékk í kjölfarið vinnu sem nemi
á bókhaldsstofu þar sem hún lærði
betur á starfið.
„Með tímanum fór ég að vinna
sem verktaki hjá bókhaldsstof-
unni og tók að mér einn og einn
kúnna. Það var svo í maí á síðasta
ári, eftir að ég kláraði fæðingaror-
lof, sem ég ákvað að gera meira úr
þessu og stofna eigið fyrirtæki,“
segir Sara.
Það má með sanni segja að líf
Söru hafi tekið gjörólíka stefnu frá
því sem áður var, en hún er förð-
unarfræðingur og stílisti og vann í
þeim geira áður.
Sara segir fyrirtækið hafa
stækkað mun hraðar en hún bjóst
við á þessum stutta tíma, en hún
hefur sinnt hátt í 100 fyrirtækjum
og einstaklingum síðan í maí.
Hún segir það vera enn þá sætara
hvað gengur vel vegna þess að hún
hefur séð um allt sjálf hvað varðar
markaðssetningu, vefsíðu- og
logo-gerð, hugmyndafræðina og
f leira.
„Verandi ung í þessum rekstri
hefur það komið mér á óvart hvað
tengslanetið hefur stækkað hratt.
Ég hef kynnst fullt af kvenkyns-
bókurum sem ég get leitað til
með ráð. Það er mikil vöntun á
bókurum og ég finn ekki fyrir
öfundsýki eða samkeppni á milli
okkar. Við hjálpumst allar að.“
Instagram laðar að
Eitt af því sem hefur laðað við-
skiptavinina að er Instagram-
síðan lognbokhald. Þar hefur Sara
birt glærur með ýmiss konar gagn-
legum upplýsingum um rekstur
og bókhald sem settar eru fram á
mannamáli.
„Mér finnst gaman að kenna og
býð upp á kennslu og ráðgjöf. Mig
langar að nýta þekkingu mína til
að kveikja áhuga fólks á bókhaldi.
Margir halda að bókhald sé leiðin-
legt, en það getur verið ótrúlega
skemmtilegt. Flest sem við skiljum
ekki er leiðinlegt og að afla upp-
lýsinga um bókhald á mannamáli
er erfitt, þess vegna trassa margir
þennan part sem fylgir rekstri. Það
skiptir líka miklu máli að það sé
gert rétt, að fólk viti hvað það er að
gera og af hverju það er að greiða
þennan og hinn kostnaðinn. Ég
byrja alltaf á að fræða fólk þegar
það kemur í viðskipti til mín. Mér
finnst svo mikilvægt að fyrirtæki
og einstaklingar hafi smá innsýn í
hvernig bókhald virkar. Þess vegna
varð Instagram-síðan til. Það hafa
nokkrir viðskiptavinir sagt við
mig, eftir að þeir fóru að skoða
glærurnar, að þeir séu komnir með
áhuga á bókhaldi. Það er besta
hrósið sem ég fæ, því það er til-
gangurinn með fræðslunni.“
Sara segir að Instagram-síðan
sé reyndar orðin það vinsæl að
hún getur varla póstað þar lengur.
Í hvert sinn sem hún deilir nýrri
glæru fyllist innhólfið hjá henni
og hún hefur ekki undan að svara
fyrirspurnum.
„En núna er ég búin að ráða
starfsmann, svo kannski get ég farið
að bæta meiru inn á síðuna. Mér
finnst erfitt að vísa fólki frá og vil
því ekki miðla upplýsingum en geta
ekki aðstoðað umfram það,“ bætir
hún við.
Aðspurð að því hvort þessi áhugi
á Instagram-síðunni sýni ekki að
vöntun sé á miðlun upplýsinga
hvað varðar rekstur og bókhald,
svarar Sara að sannarlega sé vöntun
á slíkri miðlun.
„Ég hef heyrt af því að sumir bók-
arar útskýri ekki nógu vel fyrir við-
skiptavinunum eða segi þeim hvað
þarf að passa upp á. Mér finnst það
eiginlega vera skylda að upplýsa
viðskiptavinina og það á manna-
máli. En það er auðvitað misjafnt
hverju fólk sérhæfir sig í og leggur
áherslu á, en það sem mér finnst svo
skemmtilegt við þetta er að fræða
viðskiptavinina um mikilvægi bók-
halds og hverju þurfi að standa skil
á og af hverju,“ segir hún.
Ró yfir bókhaldinu
Nafnið LOGN segir Sara að hafi
poppað upp í hugann á henni eitt
kvöldið þegar hún var að fara að
sofa.
„Nafnið vísar til þess að fá ró
yfir bókhaldið. Bókhald getur
verið kvíðavaldandi fyrir marga,
sérstaklega ef fólk skuldar ríkinu
pening eða óreiða er á bókhald-
inu. En við leggjum áherslu á að
laga það og útskýrum fyrir við-
skiptavinunum hvernig þeir geta
fengið sem mest út úr rekstrinum.
Það er það góða við bókhald, það
er alltaf hægt að laga. Með aukinni
þekkingu og innsýn færist ró yfir
bókhaldið. Margir viðskiptavina
minna segja að nafnið hafi gripið
þá. Þau hafi viljað koma yfir í
lognið, enda er þetta LOGN-ið á
eftir storminum en ekki LOGN-ið
á undan storminum.“ n
Lognið á eftir
storminum
Sara Dögg söðlaði um og stofnaði eigin bókhaldsstofu fyrir tæpu ári síðan. Síðan þá hafa viðskiptin blómstrað.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
20 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFéLag kvenna í atvinnuLíFinu