Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 67
Jófríður Leifsdóttir deildar- stjóri hefur starfað hjá Isavia frá því um mitt ár 2014. Hún er með BS í viðskiptafræði. Nú standa yfir miklar fram- kvæmdir og stækkun á Flug- stöð Leifs Eiríkssonar. „Hjá mér liggur meðal annars rekstur ýmissa þjónustusamninga við verktaka sem gerðir eru að undangengnum útboðum, svo sem um ræstingu í f lugstöðinni, vetrar- og sumarþjónustu á lóð, sorphirðu og fleira, svo mín dag- legu verkefni snúa mikið að rekstri og samningastjórnun. Það er einn- ig mikil samvinna á milli deilda og sviða, hvort sem það snýr að framkvæmdaverkefnum, upplifun og þjónustu við farþega eða öðru og einnig samskipti við ytri aðila sem starfa á Keflavíkurflugvelli,“ útskýrir hún. Jófríður segir að þetta sé yfir- gripsmikið verkefni. „Já, ég myndi segja það. Deildin mín fellur undir svið þjónustu og samhæfingar, sem er ábyrgt fyrir þjónustu við farþega og samhæfingu rekstrar á Keflavíkurflugvelli. Það eru því fjölmargir snertifletir í daglegum rekstri. Samningur um ræstingu er einn af umfangsmestu þátt- unum í rekstri deildarinnar, en sá samningur var nýlega boðinn út og urðu Dagar þar hluskarpastir. Sjáfbærni og umhverfisvæn stefna Ein nýjungin í því útboði var aukin áhersla á umhverfisþætti í valfor- sendum, en hún tók til 30 prósenta útboðsins, sem er mögulega hæsta hlutfall af umhverfisþáttum í útboði á Íslandi. Þar er verið að meta eldsneytisnotkun og þar með kolefnisspor, umhverfisvæna efna- notkun og ISO 14001 vottun. Þessar áherslur eru í skýru samræmi við sjálfbærnistefnu okkar hjá Isavia, en við ætlum að verða kolefnislaus í okkar eigin rekstri árið 2030. Við erum að auka sjálfbærni í flugvallarsamfélaginu á Kefla- víkurflugvelli og viljum virkja alla sem þar starfa með okkur í þá veg- ferð,“ segir Jófríður, en auk hennar starfa átta umsjónarmenn eigna og búnaðar í hennar deild. Þessir starfsmenn sinna ýmiss konar eftirliti og viðbragðsverkefnum auk þjónustufulltrúa í brottfarasal. „Síðan hef ég nýlega ráðið í stöðu sérfræðings sem hefur störf á næstu vikum.“ Spennandi þróun Talsverðar breytingar eiga sér stað í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli sem farþegar munu sjá á næstunni. „Breytingar sem farþegar munu helst geta orðið varir við á næstu vikum og mánuðum eru opnun nýrrar landamærabyggingar og einnig eru fyrirhugaðar breytingar á bílastæðum umhverfis flug- stöðina á næstu mánuðum. Einnig er í framkvæmd stækkun um 22.000 fermetra en breytingar verða meðal annars í komuverslun Fríhafnar og töskuafhendingu í komusal. Áhrifin að loknum framkvæmd- um munu skila sér í auknum afköstum og betri aðstæðum, en þau eru einnig nokkur á meðan á framkvæmdum stendur. Við leggjum áherslu á samstarf og gott skipulag á milli framkvæmda- eininga og rekstrarhlutans til að lágmarka bein áhrif á farþega á framkvæmdatíma. Yfirstandandi framkvæmdir við bygginguna eru eins og stendur nokkuð aðskildar frá þeim hluta sem er í fullum rekstri og það dregur úr því að gestir verði fyrir áhrifum,“ segir Jófríður og bendir á að ýmsar nýj- unar séu fram undan. „Nú stendur yfir innleiðing á nýjum innritunarlausnum og verið er að uppfæra farangurskerfið, breytingar sem munu auka afkasta- getu þess til muna,“ bætir hún við. Jófríði finnst starfið bæði fjöl- breytt og skemmtilegt. „Fyrir mig persónulega skiptir máli að fá tækifæri til að sinna fjölbreyttum verkefnum og takast á við nýjar áskoranir. Umhverfið er mjög kvikt og mér finnst gott að sinna ekki sömu verkefnum dag eftir dag og að suma daga þarf að hlaupa hraðar en aðra, en svo gefst betra næði til að sinna verkefnum þess á milli. Við störfum líka í nokkuð alþjóð- legu umhverfi, erum í samstarfi við flugvelli erlendis og alþjóðlega ráð- gjafa, sem víkkar oft sjóndeildar- hringinn í verkefnum.“ Fjölbreytt starf og margar áskoranir Þegar hún er spurð hvort eitthvað hafi komið henni á óvart í starfinu, svarar hún: „Ég þekkti ekki til starf- seminnar á Keflavíkurflugvelli þegar ég hóf þar störf, ég hef verið búsett í Reykjanesbæ frá árinu 1993 og er því ekki alin upp á Suður- nesjum og hafði því ekki reynslu af til dæmis sumarstörfum þar, eins og margir hér hafa, svo það var auð- vitað ýmislegt sem kom á óvart í upphafi. Á þessum árum sem ég hef starfað hjá Isavia höfum við gengið í gegnum bæði mikinn og hraðan vöxt en líka erfiða tíma þar sem þurfti að draga saman seglin og bregðast við ýmsum áskorunum, svo maður er kannski orðinn ýmsu vanur og reynslunni ríkari,“ segir hún. „Samfélagið á Keflavíkurflug- velli er heilt yfir lifandi og það má alltaf gera ráð fyrir einhverjum nýjungum. Það má kannski frekar segja að fram undan séu mjög áhugaverðir tímar. Framkvæmdir við stækkun flugstöðvarinnar munu standa yfir næstu árin og það verður spennandi að sjá þær taka á sig mynd, undirbúa okkur fyrir umfangsmeiri rekstur á næstu árum, en á sama tíma viðhalda góðum árangri. Þar held ég að mörg spennandi tækifæri og áskoranir liggi, meðal annars í því að hugsa í snjallari lausnum og að vera opin fyrir þróun og nýjungum en ekki festast í að gera hlutina nákvæm- lega eins og við gerum þá í dag. Það sem virkar í dag hentar kannski ekki best eftir fimm eða tíu ár.“ Breytingar í takti við þarfir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir hefur starfað hjá Isavia síðan í nóv- ember 2013. Ábyrgðarsvið hennar deildar er að hámarka tekjur innan flugstöðvarinnar af verslunar- og veitingasvæðum, auglýsingum og viðbótarþjónustu. Gunnhildur stýrir níu manna teymi sérfræð- inga og verkefnastjóra. Gunnhildur er fædd og uppalin í Reykjanesbæ og er viðskipta- fræðingur BS og MBA. „Flugstöðin er dýnamísk og alltaf að breytast í takti við þarfir viðskiptavina; flugfélaga, farþega og viðskipta- félaga. Fram undan eru miklar breytingar sem farþegar mun verða varir við. Seint á þessu ári munum við taka í notkun 20 þúsund fer- metra stækkun með stækkuðu farangurskerfi, stærri töskusal, stærri komufríhöfn, nýjum brott- farahliðum og veitingasvæði,“ upp- lýsir hún og bætir við að á næsta ári hefjist stærsta framkvæmd sem farið hefur verið í, þegar um 25 þúsund fermetrar verða byggðir við hjarta flugstöðvarinnar. „Við áætlum að verkið taki um 5 ár en verði algjör bylting á þjónustu við farþega og undirstaða þess að geta svo fjölgað hliðum og aukið afkastagetu flugvallarins,“ segir Gunnhildur og bætir við: „Núver- andi verslunar- og veitingasvæði er að taka breytingum á þessu ári til þess að við getum veitt farþegum góða þjónustu á meðan á fram- kvæmdatímanum stendur. Hluti af núverandi svæðum mun lokast sökum framkvæmda og flæði far- þega milli bygginga mun breytast.“ Jómfrúin og Elda í flugstöðinni Gunnhildur segir að í vor verði tveir nýir veitingastaðir opnaðir. „Það eru Jómfrúin og Elda, nýr bistrostaður, sérhannaður að þörf- um flugstöðvarinnar. Með þessum tveimur nýju stöðum erum við að svara þörfum farþega um meira úrval, meiri þjónustu og aukin gæði í veitingum. Hægt verður að panta mat frá sætinu sínu í gegnum símann og fá þjónustað til borðs til að sleppa við raðir og báðir staðir verða með úrval rétta sem hægt verður að fá afgreidda á 15 mínút- um,“ greinir hún frá og bætir við að ný og nútímaleg gleraugnaverslun Eyesland verði einnig opnuð í vor í f lugstöðinni. „Þar verður mikið úrval af vinsælustu merkjum í sjóngleraugum, sólgleraugum og íþróttagleraugum sem dæmi. Hægt verður að skoða og fyrirframpanta á heimasíðu verslunarinnar og í verslunum innanlands til að fá sem hröðustu þjónustuna og einnig munu þau framleiða sjóngleraugu jafnóðum á staðnum. Útboði á þremur nýjum kaffi- húsum með breiðu veitingaúrvali lýkur nú í febrúar og munu þeir staðir opna næsta haust á mismun- andi stöðum í flugstöðinni. Þar ætlum við að þjónusta sérstaklega vel þá sem eru á hraðferð en vilja gæðamat og drykki til að borða á staðnum eða taka með sér um borð. Við hlökkum mikið til að sjá niðurstöður í þessu útboði en sam- keppnin er sterk og við erum viss um að farþegar verði mjög ánægðir með þessa nýju viðbót. Meiri fjölbreytni í vor Á næstu tveimur mánuðum munum við opna útboð á versl- unum með gjafavörur og úti- vistarfatnað, fjármálaþjónustu og tveimur stórum matarmörkuðum. Þessar þjónustur munu opna á þessu ári og á því næsta. Lögum samkvæmt eru öll stór verslunar- og veitingatækifæri boðin út á Evrópska efnahags- svæðinu. Okkur er heimilt að semja án úboðs um skemmri tækifæri sem við höfum verið að gera með pop-up svo sem hjá Epal, Kormáki og Skildi, Jens og Maikai og við munum áfram leitast eftir að gera slíkt enda frábært tæki- færi til að prófa nýjungar og bjóða farþegum upp á fjölbreytni,“ segir Gunnhildur en fjöldi brottfarar- og komufarþega er orðinn sambæri- legur og árið 2019. „Við gerum reglulega mælingar á ánægju með þjónustu í f lug- stöðinni og þar hefur verslunar- og veitingaþjónustan komið mjög vel út í samanburði við aðrar flug- stöðvar sem hvetur okkur áfram til góðra verka og við viljum gera enn betur þarna,“ segir Gunnhildur. Hún var spurð hvort starfið væri skemmtilegt og það stóð ekki á svari: „Ég hélt alltaf að ég væri svona týpa sem myndi ekki endast lengur en 5 ár í sama starfi því ég þrífst á að takast sífellt á við nýjar áskoranir. Ég er núna á tíunda starfsári og ég er enn með mikinn eldmóð fyrir starfinu enda starfa ég í sífelldri nýsköpun og þróun. Teymið mitt er mjög metnaðarfullt og samstillt og verkefnin skemmti- leg, krefjandi og gefandi. Vinnu- dagurinn getur orðið mjög langur en við munum eftir að halda upp á litlu sigrana sem þá stóru, erum jákvæð og hvetjandi við hvert annað.“ n Miklar breytingar fram undan í flugstöðinni Jófríður Leifsdóttir og Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir eru ánægðar í starfi hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Framkvæmdir við stækkun flug- stöðvarinnar munu standa yfir næstu árin og það verður spennandi að sjá þær taka á sig mynd, undirbúa okkur fyrir umfangsmeiri rekstur á næstu árum, en á sama tíma viðhalda góðum árangri. Jófríður Leifsdóttir kynningarblað 51FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag kvenna í atvinnulíFinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.