Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 67
Jófríður Leifsdóttir deildar-
stjóri hefur starfað hjá Isavia
frá því um mitt ár 2014. Hún
er með BS í viðskiptafræði.
Nú standa yfir miklar fram-
kvæmdir og stækkun á Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar.
„Hjá mér liggur meðal annars
rekstur ýmissa þjónustusamninga
við verktaka sem gerðir eru að
undangengnum útboðum, svo
sem um ræstingu í f lugstöðinni,
vetrar- og sumarþjónustu á lóð,
sorphirðu og fleira, svo mín dag-
legu verkefni snúa mikið að rekstri
og samningastjórnun. Það er einn-
ig mikil samvinna á milli deilda
og sviða, hvort sem það snýr að
framkvæmdaverkefnum, upplifun
og þjónustu við farþega eða öðru
og einnig samskipti við ytri aðila
sem starfa á Keflavíkurflugvelli,“
útskýrir hún.
Jófríður segir að þetta sé yfir-
gripsmikið verkefni. „Já, ég myndi
segja það. Deildin mín fellur undir
svið þjónustu og samhæfingar,
sem er ábyrgt fyrir þjónustu við
farþega og samhæfingu rekstrar
á Keflavíkurflugvelli. Það eru því
fjölmargir snertifletir í daglegum
rekstri. Samningur um ræstingu
er einn af umfangsmestu þátt-
unum í rekstri deildarinnar, en sá
samningur var nýlega boðinn út og
urðu Dagar þar hluskarpastir.
Sjáfbærni og
umhverfisvæn stefna
Ein nýjungin í því útboði var aukin
áhersla á umhverfisþætti í valfor-
sendum, en hún tók til 30 prósenta
útboðsins, sem er mögulega hæsta
hlutfall af umhverfisþáttum í
útboði á Íslandi. Þar er verið að
meta eldsneytisnotkun og þar með
kolefnisspor, umhverfisvæna efna-
notkun og ISO 14001 vottun. Þessar
áherslur eru í skýru samræmi við
sjálfbærnistefnu okkar hjá Isavia,
en við ætlum að verða kolefnislaus
í okkar eigin rekstri árið 2030.
Við erum að auka sjálfbærni
í flugvallarsamfélaginu á Kefla-
víkurflugvelli og viljum virkja alla
sem þar starfa með okkur í þá veg-
ferð,“ segir Jófríður, en auk hennar
starfa átta umsjónarmenn eigna
og búnaðar í hennar deild. Þessir
starfsmenn sinna ýmiss konar
eftirliti og viðbragðsverkefnum
auk þjónustufulltrúa í brottfarasal.
„Síðan hef ég nýlega ráðið í stöðu
sérfræðings sem hefur störf á næstu
vikum.“
Spennandi þróun
Talsverðar breytingar eiga sér stað
í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli
sem farþegar munu sjá á næstunni.
„Breytingar sem farþegar munu
helst geta orðið varir við á næstu
vikum og mánuðum eru opnun
nýrrar landamærabyggingar og
einnig eru fyrirhugaðar breytingar
á bílastæðum umhverfis flug-
stöðina á næstu mánuðum. Einnig
er í framkvæmd stækkun um
22.000 fermetra en breytingar
verða meðal annars í komuverslun
Fríhafnar og töskuafhendingu í
komusal.
Áhrifin að loknum framkvæmd-
um munu skila sér í auknum
afköstum og betri aðstæðum, en
þau eru einnig nokkur á meðan
á framkvæmdum stendur. Við
leggjum áherslu á samstarf og gott
skipulag á milli framkvæmda-
eininga og rekstrarhlutans til að
lágmarka bein áhrif á farþega á
framkvæmdatíma. Yfirstandandi
framkvæmdir við bygginguna eru
eins og stendur nokkuð aðskildar
frá þeim hluta sem er í fullum
rekstri og það dregur úr því að
gestir verði fyrir áhrifum,“ segir
Jófríður og bendir á að ýmsar nýj-
unar séu fram undan.
„Nú stendur yfir innleiðing á
nýjum innritunarlausnum og verið
er að uppfæra farangurskerfið,
breytingar sem munu auka afkasta-
getu þess til muna,“ bætir hún við.
Jófríði finnst starfið bæði fjöl-
breytt og skemmtilegt. „Fyrir mig
persónulega skiptir máli að fá
tækifæri til að sinna fjölbreyttum
verkefnum og takast á við nýjar
áskoranir. Umhverfið er mjög kvikt
og mér finnst gott að sinna ekki
sömu verkefnum dag eftir dag og að
suma daga þarf að hlaupa hraðar
en aðra, en svo gefst betra næði til
að sinna verkefnum þess á milli.
Við störfum líka í nokkuð alþjóð-
legu umhverfi, erum í samstarfi við
flugvelli erlendis og alþjóðlega ráð-
gjafa, sem víkkar oft sjóndeildar-
hringinn í verkefnum.“
Fjölbreytt starf og
margar áskoranir
Þegar hún er spurð hvort eitthvað
hafi komið henni á óvart í starfinu,
svarar hún: „Ég þekkti ekki til starf-
seminnar á Keflavíkurflugvelli
þegar ég hóf þar störf, ég hef verið
búsett í Reykjanesbæ frá árinu 1993
og er því ekki alin upp á Suður-
nesjum og hafði því ekki reynslu af
til dæmis sumarstörfum þar, eins
og margir hér hafa, svo það var auð-
vitað ýmislegt sem kom á óvart í
upphafi. Á þessum árum sem ég hef
starfað hjá Isavia höfum við gengið
í gegnum bæði mikinn og hraðan
vöxt en líka erfiða tíma þar sem
þurfti að draga saman seglin og
bregðast við ýmsum áskorunum,
svo maður er kannski orðinn ýmsu
vanur og reynslunni ríkari,“ segir
hún.
„Samfélagið á Keflavíkurflug-
velli er heilt yfir lifandi og það má
alltaf gera ráð fyrir einhverjum
nýjungum. Það má kannski frekar
segja að fram undan séu mjög
áhugaverðir tímar. Framkvæmdir
við stækkun flugstöðvarinnar
munu standa yfir næstu árin og
það verður spennandi að sjá þær
taka á sig mynd, undirbúa okkur
fyrir umfangsmeiri rekstur á næstu
árum, en á sama tíma viðhalda
góðum árangri. Þar held ég að mörg
spennandi tækifæri og áskoranir
liggi, meðal annars í því að hugsa í
snjallari lausnum og að vera opin
fyrir þróun og nýjungum en ekki
festast í að gera hlutina nákvæm-
lega eins og við gerum þá í dag. Það
sem virkar í dag hentar kannski
ekki best eftir fimm eða tíu ár.“
Breytingar í takti við þarfir
Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir
hefur starfað hjá Isavia síðan í nóv-
ember 2013. Ábyrgðarsvið hennar
deildar er að hámarka tekjur innan
flugstöðvarinnar af verslunar- og
veitingasvæðum, auglýsingum og
viðbótarþjónustu. Gunnhildur
stýrir níu manna teymi sérfræð-
inga og verkefnastjóra.
Gunnhildur er fædd og uppalin
í Reykjanesbæ og er viðskipta-
fræðingur BS og MBA. „Flugstöðin
er dýnamísk og alltaf að breytast
í takti við þarfir viðskiptavina;
flugfélaga, farþega og viðskipta-
félaga. Fram undan eru miklar
breytingar sem farþegar mun verða
varir við. Seint á þessu ári munum
við taka í notkun 20 þúsund fer-
metra stækkun með stækkuðu
farangurskerfi, stærri töskusal,
stærri komufríhöfn, nýjum brott-
farahliðum og veitingasvæði,“ upp-
lýsir hún og bætir við að á næsta
ári hefjist stærsta framkvæmd sem
farið hefur verið í, þegar um 25
þúsund fermetrar verða byggðir
við hjarta flugstöðvarinnar.
„Við áætlum að verkið taki um 5
ár en verði algjör bylting á þjónustu
við farþega og undirstaða þess að
geta svo fjölgað hliðum og aukið
afkastagetu flugvallarins,“ segir
Gunnhildur og bætir við: „Núver-
andi verslunar- og veitingasvæði er
að taka breytingum á þessu ári til
þess að við getum veitt farþegum
góða þjónustu á meðan á fram-
kvæmdatímanum stendur. Hluti
af núverandi svæðum mun lokast
sökum framkvæmda og flæði far-
þega milli bygginga mun breytast.“
Jómfrúin og Elda í flugstöðinni
Gunnhildur segir að í vor verði
tveir nýir veitingastaðir opnaðir.
„Það eru Jómfrúin og Elda, nýr
bistrostaður, sérhannaður að þörf-
um flugstöðvarinnar. Með þessum
tveimur nýju stöðum erum við að
svara þörfum farþega um meira
úrval, meiri þjónustu og aukin
gæði í veitingum. Hægt verður að
panta mat frá sætinu sínu í gegnum
símann og fá þjónustað til borðs til
að sleppa við raðir og báðir staðir
verða með úrval rétta sem hægt
verður að fá afgreidda á 15 mínút-
um,“ greinir hún frá og bætir við að
ný og nútímaleg gleraugnaverslun
Eyesland verði einnig opnuð í vor
í f lugstöðinni. „Þar verður mikið
úrval af vinsælustu merkjum í
sjóngleraugum, sólgleraugum og
íþróttagleraugum sem dæmi. Hægt
verður að skoða og fyrirframpanta
á heimasíðu verslunarinnar og í
verslunum innanlands til að fá sem
hröðustu þjónustuna og einnig
munu þau framleiða sjóngleraugu
jafnóðum á staðnum.
Útboði á þremur nýjum kaffi-
húsum með breiðu veitingaúrvali
lýkur nú í febrúar og munu þeir
staðir opna næsta haust á mismun-
andi stöðum í flugstöðinni. Þar
ætlum við að þjónusta sérstaklega
vel þá sem eru á hraðferð en vilja
gæðamat og drykki til að borða
á staðnum eða taka með sér um
borð. Við hlökkum mikið til að sjá
niðurstöður í þessu útboði en sam-
keppnin er sterk og við erum viss
um að farþegar verði mjög ánægðir
með þessa nýju viðbót.
Meiri fjölbreytni í vor
Á næstu tveimur mánuðum
munum við opna útboð á versl-
unum með gjafavörur og úti-
vistarfatnað, fjármálaþjónustu og
tveimur stórum matarmörkuðum.
Þessar þjónustur munu opna á
þessu ári og á því næsta.
Lögum samkvæmt eru öll stór
verslunar- og veitingatækifæri
boðin út á Evrópska efnahags-
svæðinu. Okkur er heimilt að
semja án úboðs um skemmri
tækifæri sem við höfum verið að
gera með pop-up svo sem hjá Epal,
Kormáki og Skildi, Jens og Maikai
og við munum áfram leitast eftir
að gera slíkt enda frábært tæki-
færi til að prófa nýjungar og bjóða
farþegum upp á fjölbreytni,“ segir
Gunnhildur en fjöldi brottfarar- og
komufarþega er orðinn sambæri-
legur og árið 2019.
„Við gerum reglulega mælingar
á ánægju með þjónustu í f lug-
stöðinni og þar hefur verslunar- og
veitingaþjónustan komið mjög vel
út í samanburði við aðrar flug-
stöðvar sem hvetur okkur áfram til
góðra verka og við viljum gera enn
betur þarna,“ segir Gunnhildur.
Hún var spurð hvort starfið
væri skemmtilegt og það stóð ekki
á svari: „Ég hélt alltaf að ég væri
svona týpa sem myndi ekki endast
lengur en 5 ár í sama starfi því ég
þrífst á að takast sífellt á við nýjar
áskoranir. Ég er núna á tíunda
starfsári og ég er enn með mikinn
eldmóð fyrir starfinu enda starfa
ég í sífelldri nýsköpun og þróun.
Teymið mitt er mjög metnaðarfullt
og samstillt og verkefnin skemmti-
leg, krefjandi og gefandi. Vinnu-
dagurinn getur orðið mjög langur
en við munum eftir að halda upp
á litlu sigrana sem þá stóru, erum
jákvæð og hvetjandi við hvert
annað.“ n
Miklar breytingar fram undan í flugstöðinni
Jófríður Leifsdóttir og Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir eru ánægðar í starfi hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Framkvæmdir við
stækkun flug-
stöðvarinnar munu
standa yfir næstu árin og
það verður spennandi að
sjá þær taka á sig mynd,
undirbúa okkur fyrir
umfangsmeiri rekstur á
næstu árum, en á sama
tíma viðhalda góðum
árangri.
Jófríður Leifsdóttir
kynningarblað 51FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag kvenna í atvinnulíFinu