Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 72
Ólöf Rún Tryggvadóttir er
stofnaði vörulínunnar Eylíf.
Hún kom fyrstu vörum
sínum á markað árið 2020.
Eylíf framleiðir fæðubótar-
efni úr hágæða íslenskum
hráefnum frá sjálfbærum
auðlindum. Vörur hennar
hafa fengið frábærar við-
tökur.
Ólöf Rún var lengi eini starfsmað-
urinn hjá Eylíf en bætti við sölu-
fulltrúa fyrir skömmu. Fyrirtækið
er staðsett í Sjávarklasanum á
Granda. Hún segir frábært að vera
staðsett þar vegna þess hversu góð
samvinna sé meðal fólksins. „Það
er góður andi í húsinu og góðar
tengingar. Mörg frábær tækifæri
hafa skapast og ég hef tekið þátt
í ýmsum verkefnum og kynn-
ingum, hér opnast mörg tækifæri.
Sömuleiðis er gott tengslanet og ég
er sannarlega á réttum stað.
Upphaflega fór ég út í þessa
framleiðslu því ég sá tækifæri á
markaði til að nýta íslensk hráefni
í vörur sem hafði ekki verið gert
áður. Það eru til sérstakar vörur
úr þessum íslensku hráefnum en
þeim hefur ekki verið blandað
saman fyrr,“ segir Ólöf, sem alltaf
hefur haft mikinn áhuga á heilsu
og betri líðan.
Ólöf rak lengi fyrirtækið Icecare
áður en hún fór að framleiða fæðu-
bótarefni úr íslenskum auðlind-
um. „Áhuginn er það sem drífur
mann áfram,“ segir hún. „Það
hefur gengið vel að fá fyrirtæki til
samstarfs. Hráefnisframleiðendur
um allt land skaffa hráefnið,“
bætir hún við. „Vissulega tók ferlið
að þróa vörurnar tíma, en þá var
mikilvægt að vera í samstarfi
með sérfræðingunum hjá Matís.
Ég kaupi sérfræðiþjónustu hjá
Matís, sem tekur þátt í vöruþróun
á heilsuvörunum, vali á hráefnum,
stýrir innihaldslýsingum og sér
um að stilla upp næringarinni-
haldi,“ segir hún.
Ánægðir viðskiptavinir
Í fyrstu var Ólöf með tvær fæðu-
bótartegundir frá Eylíf. Þeim
fjölgaði f ljótt í fimm. „Vörunum
hefur verið sérlega vel tekið og
þá sérstaklega Active Joints. Fólk
er mjög ánægt með þá vöru og
margir hringja í mig og segja mér
hversu vel varan virkar. Active
Joints er bólguhamlandi, en það
eru einmitt bólgur sem hrjá oft
fólk. Það er ekki til fæðubótarefni
sem byggir upp brjósk, en Active
Joints hefur hjálpað fólki varðandi
liðavandamál. Það er gaman að
segja frá því að viðskiptavinir
Eylífar nota margir f leiri en eina
vöru. Það eru bæði kynin sem láta
vel af Active Joints frá Eylíf,“ segir
hún.
Fékk góðan styrk
„Ég hef frá upphafi fjármagnað
allt sjálf og spara mikið í yfirbygg-
ingu með því að kaupa sérfræði-
þjónustu eftir þörfum, úthýsa
verkefnum svo sem dreifingu, en
það gerir mér kleift að láta dæmið
ganga upp,“ segir hún, en nýverið
fékk Ólöf loks styrk frá Matvæla-
sjóði upp á 10 milljónir króna sem
hún segir koma sér afar vel. Hún
hefur hug á að færa út kvíarnar og
er stefnan tekin á breska og þýska
markaði. Auk styrks frá Matvæla-
sjóði eru vörur frá Eylíf loksins að
fara í sölu á Amazon.com, eftir 33
mánaða vinnu og bið. „Salan mun
fara í gang á Amazon á næstu mán-
uðum. Það er áhugavert að í Þýska-
landi er allt íslenskt í hávegum
haft og talið að allar vörur frá
Íslandi séu mjög hreinar og góðar.
Hvað varðar breska markaðinn,
þá er hann líkur okkar markaði,
það má segja að eðlilegt sé að stíga
skrefin inn á þann markað með
breskum dreifingaraðilum.“
Ólöf segir að það hafi verið
stefnan frá upphafi að koma
vörum Eylíf á markaði erlendis.
Vörurnar hafa fengið frábærar
móttökur hér á landi. „Fyrsta árið
seldum við lagerinn jafnan upp
og tókum því stórt stökk inn á
íslenska markaðinn.
Vöxturinn var mikill á milli
fyrstu tveggja áranna, eða 100%,
en núna er salan orðin stöðug og
ætli vöxturinn verði ekki 10–15%
í ár sem er eðlilegra,“ segir hún.
„Ég hef núna skráð vörumerkið
í 30 löndum og stefni á frekari
útflutning, jafnt til Evrópu og
Bandaríkjanna,“ segir hún.
„Þegar salan hefst erlendis mun
ég þurfa að ráða starfsfólk í við-
skiptaþróun á erlendum mörk-
uðum, með það fyrir augum að
auðvelda ferlið og kynninguna út
fyrir landsteinana.
Með hægum skrefum er best að
stefna á sölu erlendis, því þetta eru
stórir markaðir og mjög dýrt að
skala sig upp, sérstaklega með til-
liti til þess að ég ætla að stefna á að
vera áfram eini eigandinn.“
Frábært samstarf
„Samstarfsaðilar mínir á Grenivík,
sérfræðingarnir hjá Pharmarc-
tica, eru algerlega ómetanlegir í
þessu ferli með mér. Þau taka þátt
í þróuninni með sérfræðingum
frá Matís, gera formúleringar og
prufulotur auk þess að standa í
framleiðslunni sem er algerlega í
þeirra höndum. Framleiðslan hjá
þeim er undir GMP-gæðastaðli
sem mér finnst mjög mikilvægt
fyrir Eylíf vörurnar. Þórunn I.
Lúthersdóttir er í fararbroddi í
þróun og samsetningum á Eylíf
vörunum hjá þeim,“ heldur hún
brosandi áfram.
„Ég hef átt einstaklega gott
samstarf við þau á Grenivík.
Sérfræðingar þar taka líka þátt í
vöruþróun. Hráefnið kemur jafnt
frá sjó og landi. Þangað sæki ég
líka nafnið á fyrirtækinu, það
táknar lífið á eyjunni til eilífðar. Ég
auðvelda almenningi aðgengi að
þessum frábæru hráefnum sem til
eru hér heima. Ég kem með aðeins
aðra nálgun að hráefnunum en
margir aðrir. Ég blanda til dæmis
saman efnum sem aðrir hafa ekki
verið að blanda saman, eins og
kalkþörungum, smáþörungum,
íslenskum jurtum og kísli sem
kemur frá heitavatnsaffallinu á
Hellisheiði, og geri með því virkni
þeirra jafnvel enn þá öflugri,“
útskýrir Ólöf.
„Auk náttúrulegra hráefna sem
vaxa hér á landi styrki ég blönduna
með til dæmis C- og D-vítamíni.
En hugsunin er að nota þessi
hreinu, íslensku, frábæru hráefni
frá sjálfbærum auðlindum til að
bæta heilsu fólks. Að geta boðið
upp á vöru sem fólki líður vel af
er mjög gefandi starf. Öll hrá-
efnin hafa staðfesta verkun. Þess
vegna vel ég þau. Mig langar að
selja hugmyndafræðina um að
Ísland sé gott og hreint land og að
efnin sem þaðan koma séu góð og
kröftug. Jurtirnar hér á landi hafa
bara um 3–4 mánuði til að vaxa og
blómstra, þær þurfa að lifa af harð-
an vetur og þegar þær blómstra þá
eru þær mjög kröftugar.“
Gott tengslanet í FKA
Þegar Ólöf er spurð hvort hún sé
virk í FKA, svarar hún: „Ég er frekar
áhorfandi. Mér finnst gagnlegt að
vera í félaginu og ég vil fylgjast með
hvað er að gerast. FKA hefur nýst
mér sem tengslanet. Það er hægt
að setja inn fyrirspurn á síðuna
hjá þeim og spyrja til dæmis hvort
þær þekki einhverjar sem taka hin
og þessi verkefni að sér. Ég hef nýtt
mér það svolítið. Tengingar eru
öflugt tól hjá þeim,“ segir hún.
„Það er svolítið sérstakt fyrir
Ísland,“ segir hún. „Grunnstoðir
heilsu; svefn, næring, hreyfing og
hugarfar, er eitthvað sem skiptir
mig miklu máli. Ég vil leggja
áherslu á þetta og hjálpa fólki að
hjálpa sér sjálft. Það er frábært að
geta hjálpað fólki að finna lausn á
sínum málum.“
Vörurnar frá Eylíf eru unnar úr
hreinum íslenskum hráefnum og
er framleiðslan á Íslandi. Margra
ára staðfestar rannsóknir eru að
baki öllum hráefnunum. „Við hjá
Eylíf vöndum til verka og sækjum
í sjálfbærar auðlindir úr sjó og
landi. Við notum hreinar íslenskar
náttúruafurðir, náttúruleg og
hrein hráefni sem ekki eru erfða-
breytt og eru vörurnar án allra
aukaefna,“ segir frumkvöðullinn
Ólöf. n
Í útrás með íslensk fæðubótarefni
Ólöf Rún hefur byggt upp fyrirtæki sitt Eylíf sem hefur vaxið og dafnað á skömmum tíma. mynd/aðsend
Vörulínan frá Eylíf samanstendur af fimm tegundum af mismunandi fæðubótarefnum.
Ég hef núna skráð
vörumerkið í 30
löndum og stefni á
frekari útflutning, jafnt
til Evrópu og Bandaríkj-
anna.
Ólöf Rún Tryggvadóttir
56 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna Í atvinnulÍFinu