Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 45
Við metum fólk
eftir framlagi,
hæfni og getu en ekki
kyni eða uppruna.
Embla
Stefna Banana er að vera
hjartað í lýðheilsu Íslend-
inga. „Með því að bjóða upp
á holla og góða vöru á sann-
gjörnum verðum leggjum
við okkar af mörkum til þess
að stuðla að aukinni neyslu,
bættri lýðheilsu og velferð
samfélagsins,“ segir Jóhanna
Þorbjörg Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Bananar eru eitt stærsta inn-
flutnings- og dreifingarfyrirtæki
á landinu þegar kemur að fersku
grænmeti og ávöxtum. Jóhanna
Þorbjörg Jónsdóttir tók við sem
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
haustið 2021 og síðan þá hefur
reksturinn gengið í gegnum miklar
breytingar.
„Fyrsta starfsárið mitt hjá
Bönunum hefur verið mjög við-
burðaríkt,“ segir Jóhanna. „Ég var
svo lánsöm að fá góðar móttökur
hjá samstarfsaðilum mínum, sem
hefur verið ómetanlegt. Hjá fyrir-
tækinu starfar mjög fjölbreyttur
hópur starfsmanna með mikla
þekkingu og gott samband við við-
skiptavini félagsins.“
Jóhanna segir að eitt af fyrstu
verkefnum sínum í starfinu hafi
verið að taka félagið í gegnum
stefnumótun þar sem meðal
annars hlutverk fyrirtækisins,
gildi og áherslur voru uppfærðar.
Niðurstaða þeirrar vinnu var að í
stað þess að takmarka félagið við
að vera innflutnings- og dreif-
ingarfyrirtæki þá vilja starfsmenn
setja lýðheilsu landsmanna sem
leiðarljós í starfseminni. „Bananar,
hjartað í lýðheilsu Íslendinga, er
okkar nýja slagorð og mantra.“
Starfsemi Banana er viðamikil
og kaupir fyrirtækið vörur alls
staðar að úr heiminum. „Hraðinn
er mikill í starfseminni þar sem
lykilatriði er að koma vörunum
okkar sem hraðast í gegnum
aðfangakeðjuna enda eru vör-
urnar okkar ferskvörur og hafa
þar af leiðandi mjög takmarkaðan
líftíma. Með samstilltu og kraft-
miklu starfsfólki tekst okkur að
viðhalda frábæru þjónustustigi til
viðskiptavina okkar.
Við innkaup þurfum við að
vera meðvituð um aðstæður í
heiminum hverju sinni og getur
til dæmis veðurfar spilað stórt
hlutverk og haft veruleg áhrif á
gæði uppskerunnar. Við þurfum
að vera tilbúin að bregðast við
og leita nýrra birgjasambanda ef
uppskerubrestur verður. Órofin
kælikeðja frá ræktendum um allan
heim til okkar, oft í bylmingssjó
yfir Atlantshafið, getur haft mikil
áhrif á gæði varanna. Þessar
áskoranir kalla oft á lausnamiðaða
hugsun og yfir henni búa starfs-
menn Banana svo sannarlega.“
Tækni spilar lykilhlutverk
Jóhanna segir tæknilausnir spila
mikilvægt hlutverk í fyrirtæki eins
og Banönum.
„Við höfum verið að marka
okkur skýra stafræna stefnu fyrir
næstu árin þar sem tækni kemur
til með að gegna veigamiklu hlut-
verki í okkar rekstri. Fyrirtækið
var komið í talsverða tækniskuld
og erum við að uppfæra grunn-
kerfin okkar ásamt því að innleiða
fjölda nýrra kerfa sem auðvelda
okkur meðal annars birgða-
stýringu, gæðastjórnun, þjálfun og
mælingar á ánægju starfsmanna.
Einnig erum við að innleiða róbóta
í innkaupa- og fjármálaferlum
ásamt vinnslu gagna.
Við erum einnig að hefja vinnu
við smíði á vefverslun fyrir veit-
ingamarkaðinn sem opnar von-
andi á þessu ári. Hún mun bæta
þjónustu okkar verulega þar sem
við verðum þá opin allan sólar-
hringinn fyrir pöntunum, sem er
orðin sjálfsögð krafa viðskiptavina
okkar.“
Samfélagsleg ábyrgð
Jóhanna segir að samfélagsleg
ábyrgð sé starfsmönnum fyrir-
tækisins hugleikin „enda erum
við þjóðhagslega mikilvæg þegar
kemur að því að sjá landsmönnum
fyrir hollum ávöxtum, grænmeti
og berjum. Um 30% af fram-
leiddum mat í heiminum í dag er
hent. Bananar leggja mikla áherslu
á að lágmarka sóun í innkaupum
og birgðastýringu og þannig
höfum við bein áhrif á matarsóun
í heiminum. Við höfum markað
okkur stefnu í sjálf bærni og felast
meginstoðirnar í að draga úr vöru-
og matarsóun í aðfangakeðjunni,
rækta gott og fjölbreytt starfsum-
hverfi með áherslu á jafnrétti á
vinnustað og tryggja að stjórnar-
hættir séu ávallt til fyrirmyndar
og í samræmi við lög og reglur.“
Allir starfsmenn
eiga jafna möguleika
Embla Grétarsdóttir, mannauðs-
stjóri Banana, segir Banana vera
alþjóðlegan vinnustað þar sem
áhersla sé lögð á jafnrétti hvort
sem það sé á milli kynja, þjóðerna
eða annarra þátta.
„Bananar hafa verið með jafn-
launastefnu í nokkur ár og við
förum reglulega í jafnlaunavottun.
Við viljum tryggja að allir eigi
jafna möguleika í starfi og njóti
sömu kjara fyrir sömu eða jafn-
verðmæt störf. Jafnframt leggjum
við áherslu á að allir hafi sömu
tækifæri til starfsþróunar, náms
og fræðslu. Fyrirtækið hefur líka
skýra eineltis-, of beldis-, áreitnis-
og áreitistefnu og aðgerðaáætlanir
til að bregðast við ef slík tilfelli
koma upp á vinnustaðnum.“
Fjölbreyttur vinnustaður
Hjá Banönum starfa um 100
starfsmenn og eru um 30% þeirra
konur. Í söludeild og vöruhúsi
fyrirtækisins starfa nær eingöngu
karlmenn en aðrar deildir hafa
jafnari kynjahlutföll. Í fram-
leiðsludeildinni er hæsta hlutfall
kvenna eða 60% starfsmanna. Á
skrifstofu fyrirtækisins eru um
40% starfsmanna konur og sama
hlutfall er í framkvæmdaráði
fyrirtækisins.
„Við erum mjög meðvituð um
að reyna að jafna kynjahlutföllin í
fyrirtækinu en stundum getur það
verið áskorun hreinlega vegna eðli
starfanna. Einn mesti styrkleiki
Banana eru starfsmenn fyrir-
tækisins sem leggja sig fram við
að skapa góðan starfsanda sem
einkennist af samvinnu, virðingu
og fjölbreytni.“
Embla segir konur og karla hafa
jafna möguleika til starfsframa
innan fyrirtækisins. „Við metum
fólk eftir framlagi, hæfni og getu
en ekki kyni eða uppruna. Við
erum með fjölmörg dæmi þess
að góðir starfsmenn hafi fengið
möguleika til að þróast í starfi og
jafnvel fengið stjórnendastöður í
fyrirtækinu. Við horfum ekki sér-
staklega til kyns í ráðningum þar
sem við veitum öllum sömu tæki-
færi en að sjálfsögðu væri gaman
að ná að jafna kynjahlutfallið í
framtíðinni“. n
Hjartað í lýðheilsu Íslendinga
Konurnar í framkvæmdaráði Banana. Þær eru frá vinstri: Guðbjörg Helgadóttir fjármálastjóri, Steingerður Þorgilsdóttir gæðastjóri, Jóhanna Þorbjörg Jónsdóttir framkvæmdastjóri og Embla Grétars-
dóttir mannauðsstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
kynningarblað 29FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag kvenna Í atvinnulÍFinu