Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 56
Samfélagið gerir skýra
kröfu til þess að fyrirtæki
hérlendis taki afstöðu til
samfélagslegra málefna. Því
hefur BYKO sjálfbæra þróun
að leiðarljósi.
Umhverfisvitund hefur fylgt
BYKO frá stofnun, þegar stofnfé
félagsins var af lað með garðrækt
í Guðmundarlundi í Kópavogi.
BYKO hefur byggt upp stóran skóg
í landi Drumboddsstaða þar sem
gróðursett hafa verið yfir 130.000
tré af eigendum, starfsfólki og fjöl-
skyldum þess, en áætluð binding
hans er um 1200 tonn CO2 árlega
næstu tíu árin segir Jóna Guðrún
Kristinsdóttir, verkefnastjóri á
Framþróunarsviði. „Það er mikill
vilji og metnaður innan félagsins
til að vera leiðandi í sjálf bærni
og taka virkan þátt í þeirri þróun
sem á sér stað í byggingariðnaði
til að sporna við losun og draga úr
umhverfisáhrifum bygginga.“
Hulda Júlíana Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs,
segir BYKO hafa einsett sér að
taka virkan þátt og hafa áhrif.
Krafan frá samfélaginu sé mjög
skýr um að fyrirtæki taki afstöðu
til samfélagslegra málefna og því
hafi BYKO sjálf bæra þróun að
leiðarljósi. „Við getum ekki lengur
leyft okkur að halda umræðunni
til hliðar í litlum afmörkuðum
hópi því þetta snertir okkur öll.
Við þurfum að mæta þörfum
nútímans án þess að skerða
möguleika komandi kynslóða,
því þurfum við að auka efnahags-
leg verðmæti á sama tíma og við
eflum mannréttindi og viðhöld-
um gæðum náttúrunnar.“
Hugtakið sjálf bærni tengir ein-
mitt saman grunnstarfsemi fyrir-
tækja og þá hugsun að búa til virði
til langs tíma, bætir Sveinborg
Hafliðadóttir mannauðsstjóri við.
„Því erum við stanslaust að greina
hvaða áhrif starfsemi BYKO hefur
á umhverfið, félagslega þætti,
menningarlega þætti, siðferði og
rekstur. Við vitum að byggingar
eru ábyrgar fyrir 40% af orku-
notkun og 1/3 af losun gróður-
húsalofttegunda á heimsvísu og
því verður byggingariðnaðurinn
að leggja sitt af mörkum með því
að auka sjálf bærni og draga úr
loftslagsáhrifum með aðgerðum.“
Vistvænar byggingar
og okkar ábyrgð
Þær segja starfsfólk BYKO hafa
lagt mikla áherslu á að skapa sér
þekkingu á vistvottunarkerfum
bygginga, ásamt því að greina
vöruframboð fyrirtækisins og
safna þeim gögnum sem fram-
vísa þarf til að tryggja vottun.
„Samhliða þessu höfum við sett
saman söluteymi fagaðila af öllum
sviðum, sem sér til þess að eiga
mikilvægt samtal á markaðnum
til að tryggja að við höfum yfirsýn
yfir þróun, lærum af markaðnum
og tryggjum þessi mikilvægu
tengsl við alla aðila,“ segir Jóna
Guðrún. „Þetta teymi hefur einn-
ig staðið fyrir fræðsluerindum,
boðað aðila á kynningar, heimsótt
fyrirtæki með fræðsluerindi og
virkjað þetta mikilvæga samtal.“
„Við viljum leggja okkar af
mörkum til að lágmarka kol-
efnisspor bygginga,“ bætir Hulda
Júlíana við. „Enda erum við hluti
af þessari virðiskeðju og gerum
okkur grein fyrir því að við berum
ábyrgð sem slík. Það var því alveg
ljóst í okkar huga þegar kom að
því að reisa nýjar höfuðstöðvar á
Breiddinni að fylgja eigin ráðum
og sannfæringu og byggja vist-
vænt. Nú rísa því um 2000 m2
höfuðstöðvar og ætlunin er að
byggingin fái BREEAM Excellent
vottun. Þetta ferli styrkir okkur
enn frekar þegar kemur að ráðgjöf
og vali á byggingarefnum.“
Sjálfbærni fyrsta skrefið
Sveinborg segir það skipta miklu
máli að starfsfólk upplifi BYKO
sem góðan vinnustað og lögð
sé mikil áhersla á jafnréttis- og
fjölbreytileikamál. „Árið 2019
skilgreindi BYKO fimm af
Heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna sem kjarnamarkmið
fyrir félagið og hóf innleiðingu ári
síðar, en eitt þeirra markmiða var
jafnrétti kynjanna. Þessi vinna
markar upphafið í jafnréttisveg-
ferð BYKO sem stýrt er af jafn-
réttisnefnd félagsins.“
Síðan þá hefur markvisst verið
unnið að því að hafa áhrif innan
sem utan félagsins, að sögn Svein-
borgar. „Rík áhersla hefur verið
lögð á fjölbreytileika þar sem við
trúum því að með fjölbreyttari
hóp náum við betri árangri. Eitt af
því sem BYKO hefur framkvæmt
sem hluta af jafnréttisvegferð
sinni er að styrkja starfsfólk fjár-
hagslega til töku á fæðingar- og
foreldraorlofi. Gögn okkar sýndu
fram á að karlar voru ólíklegri til
að taka orlof og ef þeir fóru þá var
það alla jafna í stuttan tíma. Með
þessu erum við að hvetja öll kyn
til þess að nýta sér sinn rétt til
fæðingar- og foreldraorlofs.“
Lærdómsrík ferð
Í nóvember síðastliðnum bauð
BYKO konum sem starfa við eða
í kringum mannvirkjageirann í
fræðsluferð til Lettlands. Mark-
mið ferðarinnar, að sögn Huldu
Júlíönu, var að efla tengslanetið
og kynna starfsemi BYKO Lat,
systurfélags BYKO, á sama tíma
og fyrirtækið reynir að styðja við
þátttöku kvenna í byggingariðnað-
inum. „Þetta var gríðarlega vel
heppnuð ferð. Það var svo gaman
að sjá hvað það er sem situr eftir,
enn meiri samvinna hefur skapast,
þekkingarmiðlun og vinskapur.
Við höfum farið reglulega í svona
ferðir en alltaf með hóp karlmanna
enda byggingariðnaðurinn mjög
karllægur. Þetta er í fyrsta sinn
sem við buðum eingöngu konum
og rímar það vel við jafnréttisveg-
ferðina sem við erum á.“
Stöðugt hugað
að umhverfismálum
Þær eru sammála því að BYKO sé
stöðugt að huga að umhverfismál-
um og að nýta náttúruauðlindir
með ábyrgum hætti. „Það gerum
við með því að velja umhverfis-
vænar vörur í rekstri, við drögum
úr magni sorps með aukinni
f lokkun og stefnum á pappírs-
lausan rekstur innan skamms.
Á sama tíma vilja stjórn-
endur BYKO hvetja viðskiptavini
til að gera það sama og bjóða upp
á lausnir með þessa þætti í huga,“
segir Hulda Júlíana. „Á síðasta ári
byrjuðum við að taka við rafrænum
beiðnum í gegnum Síminn Pay í
stað gömlu góðu pappírsbeiðna-
bókarinnar. Þetta hljómar eins og
eitt lítið skref en þegar við tökum
saman öll þessi litlu skref þá kom-
umst við áfram. Við viljum gera allt
sem við getum til að veita sem besta
þjónustu og sem hluta af því veitum
við fræðslu í þróun á vistvænum
byggingarefnum og aðstoðum við-
skiptavininn við að auka skilvirkni
og að verða umhverfisvænni.“
Gerum þetta saman
Að þeirra sögn verður áskorun
ársins 2023 þriðja stoð sjálf bærn-
innar, eða birgjar fyrirtækisins.
„Til að geta náð markmiðum um
sjálf bærni verðum við líka að
skoða aðfangakeðjuna og hafa
áhrif á birgja okkar. Þetta snýr
ekki einungis að vöruframboði
heldur vinnu- og mannréttindum
og því mikilvægt að fyrirtæki
setji sér siðareglur og geri kröfur
á birgja sína,“ segir Jóna Guðrún.
„Einnig munum við fara af stað
með þróunarvinnu varðandi
hringrásarhagkerfið og hvað við
getum gert til að tryggja hringrás
sem efnissali og aðili á bygginga-
markaði. Þetta munum við vinna
út frá fjölmörgum tillögum og
ábendingum sem við höfum
fengið frá viðskiptavinum okkar
ásamt því að horfa til þess sem
aðilar um allan heim eru að gera í
þessum málum.“
Sveinborg segir þetta því ósköp
einfalt í huga starfsfólks BYKO.
„Félög þurfa að taka meðvitaða
ákvörðun um sjálf bærni, setja
sér stefnu, innleiða hana og fylgja
eftir. Það er auðvelt að skrifa
stefnuna en fyrirtæki þurfa að
sýna í verki að þeim sé alvara með
vegferðinni.“ n
Í nóvember bauð BYKO konum sem starfa í mannvirkjageiranum í fræðsluferð til Lettlands. MYND/BYKO
F.v. eru Hulda Júlíana Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Jóna Guðrún Kristinsdóttir, verkefnastjóri fyrir vistvottanir og vistvænt vöruframboð og Sveinborg Hafliðadóttir mannauðsstjóri.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sjálfbærni
er ákvörðun
Það er mikill vilji
og metnaður innan
félagsins til að vera
leiðandi í sjálfbærni og
taka virkan þátt í þeirri
þróun sem á sér stað í
byggingariðnaði.
Jóna Guðrún Kristinsdóttir
40 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu