Fréttablaðið - 26.01.2023, Síða 54
ELKO er á virkilega
spennandi vegferð
þar sem allt kapp er lagt
á að veita framúrskar-
andi þjónustu og eru
þarfir viðskiptavina
okkar alltaf í fyrsta sæti.
Loforð okkar er „það
sem skiptir þig máli,
skiptir okkur máli“ og
höfum við þetta loforð
að leiðarljósi í öllu sem
við gerum.
Jónína Birgisdóttir
ELKO er stærsta raftækja-
verslun landsins, en hjá fyr-
irtækinu starfa 255 manns
á mörgum starfsstöðvum.
ELKO rekur fimm verslanir
staðsettar í Lindum, Granda,
Skeifu, Akureyri og á Kefla-
víkurflugvelli, ásamt því að
vera með eina öflugustu vef-
verslun landsins. Að auki er
vörulager ELKO staðsettur á
Bakkanum, Skarfagörðum.
Berglind R. Guðmundsdóttir,
María Elísabet Ástudóttir og
Jónína Birgisdóttir starfa allar í
stjórnunarstöðum hjá ELKO og
sitja jafnframt í framkvæmda-
stjórn. Berglind er forstöðumaður
innkaupa- og vörustýringasviðs
og stýrir öflugri deild vörustjóra,
vöruupplýsingafulltrúa, tollafull-
trúa og bókhaldsfulltrúa. María
Elísabet Ástudóttir er forstöðu-
maður sölu- og verslanasviðs
og undir hana heyrir allt versl-
unarsvið og fyrirtækjaþjónusta
ELKO, þar af leiðandi sinnir hún
verkefnum af ýmsum stærðar-
gráðum. Jónína Birgisdóttir er
forstöðumaður þjónustusviðs og
ber ábyrgð á þjónustu og þjónustu-
stefnu ELKO, það er, þjónustu-
upplifun, þjónustusölu, eftir-
kaupaþjónustu og vörudreifingu.
Undir hana heyrir þjónustuver,
vefverslun ELKO, þjónustusala og
öll eftirkaupaþjónusta.
Berglind bendir á að innan ELKO
starfi fjölbreyttur hópur einstakl-
inga þar sem öll fái jöfn tækifæri til
starfsþróunar og til að vaxa í starfi.
Mikið sé lagt upp úr því að styrk-
leikar hvers og eins fái að njóta sín.
María tekur undir og segir að
fyrirtækið stuðli einnig að öflun
menntunar og bættri velferð
starfsfólks sem styrki þar með
stöðu einstaklingsins og geri
viðkomandi kleift að nýta hæfi-
leika sína í starfi og auka þar með
vellíðan og bæta starfsanda. Hún
segir ELKO bjóða starfsfólki sínu
upp á velferðarpakka með það að
markmiði að stuðla að bættri and-
legri og líkamlegri heilsu. Einnig
bjóði fyrirtækið upp á fjölda nám-
skeiða hjá Stjórnvísi, Dokkunni og
Akademias.
Jónína segist sammála og tekur
fram að ELKO sé eftirsóknar-
verður vinnustaður, enda séu
mörg tækifæri fyrir starfsfólk til
að vaxa, bæði í starfi en líka sem
einstaklingar því hægt sé að fá svo
mörg tól til að vinna með og nýta
í formi námskeiða eða undir hatti
velferðarpakkans.
Vilja fleiri kyn til starfa
„Kynjahlutfall starfsfólks mætti
vera betra og við viljum fá fleiri
kyn til starfa. Raftæki eru nefni-
lega ekki bara fyrir eitt kyn.
Þau sem hefja störf hjá ELKO fá
góða fræðslu og fá leiðbeinanda í
verslun til að leita til. Við viljum
gjarnan stuðla að fjölbreytileika
starfsfólks og auka hlut allra
kynja,“ segir Berglind. „ELKO er
vinnustaður fyrir öll kyn, þar sem
öll fá jöfn tækifæri og tryggt er
að starfsfólki sé ekki mismunað
vegna kyns, aldurs, uppruna, trúar
eða annarra þátta. Við reynum
að hanna atvinnuauglýsingarnar
þannig að þær höfði til allra og
hvetjum öll kyn til þess að sækja
um auglýst störf hjá okkur. Einnig
höfum við breytt vaktafyrirkomu-
lagi í verslunum til þess að reyna
að ná til breiðari hóps og bjóðum
þar með upp á sveigjanlegri vinnu-
tíma en áður,“ bætir María við.
Umhverfismál í forgrunni
Að sögn Berglindar hefur ELKO
lagt aukna áherslu á umhverfis-
mál í rekstrinum og tekið fjölmörg
skref til þess að minnka kolefnis-
sporið. ELKO hefur komið upp
snyrtilegum endurvinnsluskápum
í öllum verslunum á höfuðborgar-
svæðinu og á Akureyri, þar sem
tekið er við smærri raftækjum,
rafhlöðum, blekhylkjum, gló- og
flúorperum. „Viðskiptavinir geta
því losað sig við alla þessa hluti
sem eiga það til að safnast upp á
heimilinu og komið þeim í ábyrga
endurvinnslu án þess að þurfa
að gera sér sérstaka ferð á stærri
endurvinnslustöðvar. Við kaupum
einnig eldri raftæki af viðskipta-
vinum þar sem hægt er að koma
með gömul raftæki til okkar og
ELKO sér svo um að koma eldri
tækjum í ábyrgt endurvinnslu-
kerfi.“
ELKO er auk þess alltaf að leita
leiða til þess að gera enn betur í
umhverfismálum, að sögn Jónínu.
„Við tókum stórt skref þegar við
hættum að prenta út allar pantanir
og reikninga í vöruhúsinu okkar.
Þess í stað bjóðum við viðskipta-
vinum okkar að sækja allar kaup-
nótur rafrænt í gegnum „mínar
síður“ á vefsíðunni okkar.“
Traust viðskiptasamband
til framtíðar
ELKO á í samstarfi við stóra
erlenda birgja til að tryggja hag-
kvæmt vöruverð og fjölbreytt
úrval, segir Berglind. „Fyrir
rúmum tveimur árum hóf ELKO
að birta verðsögu vara en með
birtingu verðsögunnar vill ELKO
auka gegnsæi og stuðla þannig um
leið að traustu viðskiptasambandi
við viðskiptavini sína til fram-
tíðar.“ Viðskiptavinir eru ávallt
á tánum varðandi réttindi sín og
ósjaldan skapast þarfar umræður
um verðbreytingar á einstökum
vörum. „Þessi umræða er yfirleitt
hvað hæst í kringum útsölur eða
aðra tilboðsdaga þegar mikið er
pantað inn af nýjum vörum og
verðbreytingar eru örar. Því er
verðsagan tæki sem viðskiptavinir
geta treyst.”
Traustir ráðgjafar
Þá segir María eitt stærsta verkefni
ársins í fullum undirbúningi, en
stefnt er á endurbætur á verslun
ELKO í Lindum síðar á árinu.
„Endurbætur og framkvæmdir eru
ansi stórt verkefni sem tekur tíma,
en markmiðið með þeim er að
lyfta upp útliti verslunarinnar líkt
og við gerðum þegar við fluttum
ELKO í Skeifunni í nýtt húsnæði,
sem opnaði um mitt síðasta ár. Sú
framkvæmd gekk mjög vel og það
er frábæru starfsfólki að þakka.“
Hún segir mikla samstöðu ríkja
innan fyrirtækisins og að starfs-
fólk hafi lagst á eitt við flutninga
og breytingar. „Hjá ELKO starfar
nefnilega fjölbreyttur og kraft-
mikill hópur sem leggur heldur
betur sitt á vogarskálarnar. Við
erum stolt af verslunum og starfs-
fólki okkar og leggjum mikið upp
úr reglulegri þjálfun innanhúss,
sem og fræðslu um nýjar vörur. Það
skilar sér svo beint til viðskipta-
vina okkar í formi ráðlegginga og
upplýsingagjafar.“
Til að viðhalda þekkingu og
styrkja tengslin við framleiðendur
er hópur starfsfólks sendur út á
hverju ári á ráðstefnu sem haldin
er á vegum Elkjøp. „Þar koma
saman allir stærstu raftækjafram-
leiðendurnir til að kynna nýjustu
vörurnar, tæknina og aukahlutina
sem eru í sölu eða á leiðinni á
markað. Þannig er hægt að miðla
fræðslu og þekkingu áfram innan
fyrirtækisins og ýta undir að
starfsfólk ELKO séu traustir ráð-
gjafar í raftækjum.“
Viðskiptavinurinn í fyrsta sæti
„ELKO er á virkilega spennandi
vegferð þar sem allt kapp er lagt á
að veita framúrskarandi þjónustu
og eru þarfir viðskiptavina okkar
alltaf í fyrsta sæti. Loforð okkar er
„það sem skiptir þig máli, skiptir
okkur máli“ og höfum við þetta
loforð að leiðarljósi í öllu sem við
gerum,“ segir Jónína.
„Ólíkar kröfur viðskiptavina
um aukna og bætta þjónustu er
sífellt að aukast og því fylgja nýjar
áskoranir og spennandi verkefni.
Við höfum til að mynda lagt mikið
í stafræna þróun og erum með
tiltölulegan nýjan vef, mjög öfluga
leitarvél og vorum fyrst á Íslandi
til að bjóða upp á myndsímtöl við
sölufulltrúa í verslun. Þar erum við
í raun að færa persónulega versl-
unarupplifun beint til viðskipta-
vina, hvar sem þeir eru staddir.“
Jónína segir að þar fyrir utan
hafi ELKO lagt mikla áherslu á
áframhaldandi uppbyggingu
þjónustuvers. „Til dæmis er opið til
níu á kvöldin í netspjalli hjá okkur
og hefur það reynst gífurlega vel.
Allar þessar lausnir auðvelda við-
skiptavinum okkar, óháð búsetu
eða aðstæðum, að sækja þjónustu
til ELKO. Þetta eru allt lausnir sem
hafa verið innleiddar til þess að
eiga ánægðustu viðskiptavinina á
raftækjamarkaði og við munum
halda áfram að betrumbæta þær
og leita nýrra leiða til þess að þróa
þær áfram.“ n
ELKO er eftirsóknarverður vinnustaður
Jónína Birgisdóttir, María Elísabet Ástudóttir og Berglind R. Guðmundsdóttir starfa allar í stjórnunarstöðum hjá ELKO og sitja jafnframt í framkvæmdastjórn. fréTTABLAÐIÐ/vALLI
38 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFéLag KvEnna í atvinnuLíFinu