Fréttablaðið - 26.01.2023, Síða 13
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
„Ég dáist að Arsenal. Þar á bæ
ákvað fólk greinilega að vinna eftir
einhverju langtímaplani. Gefa
Arteta smátíma til að búa til lið.“
Þetta er tilvitnun í ummæli
Guðna Th. Jóhannessonar for-
seta Íslands í Fréttablaðinu um
síðustu helgi. Þessi snotru orð lét
forsetinn falla í garð Arsenal þótt
hann sjálfur haldi með Manchester
United.
Það er hvorki ætlun mín að skrifa
um enska boltann né draga for-
setann inn í pólitík. Ég hnaut bara
um þetta orð: Langtímaplan.
Langtímastjórn
Á íslenskan mælikvarða er ríkis-
stjórnin orðin langtímastjórn.
Heilbrigðismálin hafa frá fyrsta
degi verið mikilvægasta viðfangs-
efni hennar.
Stöðug umræða um vandræði
heilbrigðisþjónustunnar sýnir að
samasemmerki kemur ekki sjálf-
krafa á milli hugtakanna: lang-
tímastjórn og langtímaplan.
Á öðru ári stjórnarsamstarfs-
ins staðfesti heilbrigðisráðherra
krabbameinsáætlun til 2030 og
Alþingi samþykkti heilbrigðisáætl-
un til 2030. Í hvorugri áætluninni
var verkefnum raðað í tímasetta
forgangsröð og hvorug áætlunin
var fjármögnuð.
Þessi skjöl áttu því lítið skylt
við langtímaplan nema ártalið á
forsíðu. Kannski skorti þáverandi
heilbrigðisráðherra metnað. Hitt er
líklegra að við ríkisstjórnarborðið
hafi allir verið sammála um að
engin leið væri fyrir jaðarflokka
stjórnarinnar að ná saman um
alvöru langtímaplan.
Málamiðlunin var að gera bara
ekkert langtímaplan.
Samanburður
Áhugavert er að bera þetta saman
við verklag tveggja danskra ríkis-
stjórna við tíu ára varnarmála-
áætlun.
Í mars í fyrra gerði minnihluta-
stjórn sósíaldemókrata samkomu-
lag við tvo stuðningsflokka og
tvo stjórnarandstöðuflokka um
varnarmálaáætlun til 2033. Á þeim
tíma eiga framlög til varnarmála að
hækka í áföngum í tvö prósent af
þjóðarframleiðslu.
Ný meirihlutastjórn ákvað að
hækka ekki skatta í þessu skyni.
Í fyrsta áfanga felst fjáröflun til
þessarar langtímaáætlunar í kerfis-
breytingu með afnámi lögbundins
frídags, kóngsbænadagsins. Þetta
er orðið mikið hitamál.
Þrír af flokkunum, sem stóðu
að sáttinni um varnarmálaáætlun
og eru nú í stjórnarandstöðu, vilja
halda í kóngsbænadaginn. Til
þess að geta áfram talist aðilar að
sáttinni verða þeir að koma fram
með raunhæfan valkost um fjár-
mögnun. Það hafa þeir gert.
Þarna nálgast menn viðfangsefn-
ið með markvissum og ábyrgum
hætti þótt tekist sé á um fjármögn-
unarleiðir.
Tímabært frumkvæði
Í þessu ljósi var áhugavert að lesa
grein Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur formanns Viðreisnar í
Fréttablaðinu fyrir tveimur vikum
um nýja nálgun varðandi fram-
kvæmd heilbrigðisáætlunar til
2030.
Þar sagðist hún hafa í hyggju að
leggja fram þingsályktunartillögu
um að ljúka þeim þætti hennar,
sem skilinn var eftir fyrir fjórum
árum. Tilgangurinn væri að leita
eftir pólitískri samstöðu um að
setja verkefni í tímaröð, tengja
þau við fjármálaáætlun, ákveða
hlutdeild heilbrigðisþjónustu í
þjóðarútgjöldum og finna leiðir til
fjáröflunar.
Mikilvægt er að eins verði tekið á
krabbameinsáætluninni.
Engir kraftaverkamenn, hvorki
í ráðuneytinu né inni í einstökum
stofnunum, munu leysa þetta verk-
efni með skyndiaðgerðum.
Frumkvæðið í umræðunni
er tímabært og lýsir skilningi á
vandasömu langtíma viðfangsefni
heilbrigðisráðherrans.
Fullreynt
Viðfangsefnið er hins vegar ekki
einfalt.
Sumir flokkar telja að ekki þurfi
að stækka sneið heilbrigðisþjónust-
unnar í þjóðarkökunni. Svo deila
aðrir um hvort stækka eigi sneiðina
með sköttum eða tilfærslum frá
öðrum útgjaldaliðum eins og
vaxtagjöldum, sem eru þau hæstu
meðal vestrænna þjóða og kalla á
kerfisbreytingu.
Eftir sex ár er fullreynt að jaðar-
flokkarnir í ríkisstjórninni finna
ekki sameiginlega lausn á þessum
úrlausnarefnum.
Þess vegna er eðlilegt að kanna
möguleika á samstarfi um pólitíska
hluta heilbrigðisáætlunarinnar
með meiri þyngd á miðjunni, sem
gæti aukheldur lifað ólík stjórnar-
mynstur á gildistímanum.
Dauður tími
Fram að kosningum eru bara tvö
þing. Það er hæfilegur tími til
samninga af þessu tagi.
Öllum þykir sjálfsagt að vinna að
samgöngumálum með tímasettri
og fjármagnaðri langtímaáætlun.
Langtíma heilbrigðisáætlun kann
að vera flóknari. En breið pólitísk
samstaða um slíkt plan er jafn
mikilvæg fyrir samfélagið.
Ríkisstjórnin treður bara mar-
vaða til kosninga. Heilbrigðisráð-
herra gæti nýtt þann dauða tíma
til þess að finna breiðan pólitískan
grundvöll fyrir langtímaplan.
Ef vel tækist til mætti byrja að
vinna eftir endurbættu plani strax
í upphafi næsta kjörtímabils. Með
því myndi ráðherrann marka djúp
spor. n
Langtímaplan
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
ÚTSALA
á sýningarvörum í verslun
Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar,
sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60%
afsláttur
Ciro 3 litir
Áður 39.900
NÚ 29.900
Alison
snúnings
Áður 33.900
NÚ 27.000Sierra
nokkrir litir
Áður 25.700
NÚ 19.200
Kato svart
Áður 29.900
NÚ 19.400
Adele
Áður 39.900
NÚ 23.900
Obling 3ja sæta
Áður 129.000 NÚ 103.000
Brookliyn borðstofuborð
220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik
Áður 199.000 NÚ 149.000
Notthingham sófaborð
Áður 116.000 NÚ 58.000
Hill hvíldarstóll með tauáklæði
Áður 176.000 NÚ 123.000
Staturn 3ja sæta
Áður 159.000 NÚ 119.000
25%
25%
25%
25%
40%
50%
35%
30%
20%
20%
FréttabLaðið sKoðun 1326. janúar 2023
FIMMTuDAGuR