Fréttablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 90
Umhverfis-
vænn og
eyðslu-
grannur
bíll til sölu.
Börnin sem
Raunveruleikaþáttadrottningin og guð-
móðir Kardashian-veldisins, Paris Hilton, kom
fylgjendum sínum í opna skjöldu og tilkynnti
að hún væri orðin móðir. Stjarnan eignaðist
barnið með aðstoð staðgöngumóður en Hil-
ton er ekki sú fyrsta til þess að eignast barn
án nokkurs fyrirvara. Fréttablaðið rifjar upp
börnin sem hreinlega bara birtust.
odduraevar@frettabladid.is
Jesús
María mey var umsetin af heilögum anda og varð því
skyndilega þunguð. Jesús Kristur er líklega fyrsta
barnið sem vitað er um að hafi hreinlega bara birst.
Að því gefnu að hann hafi raunverulega verið til.
Ronaldo jr.
Annað barn sem hreinlega bara birtist
var Cristiano Ronaldo jr. Portúgalska
ofurstjarnan tilkynnti heiminum
árið 2010 um fæðinguna á sam-
félagsmiðlum og
tók fram að hann
hygðist halda nafni
móðurinnar leyndu.
Sonurinn er auk þess
einungis á hans
forræði.
Jeremiah van Der Beek
Dawson’s Creek stjarnan James van Der Beek og
eiginkona hans kvikmyndaframleiðandinn Kimberly
van der Beek eignuðust sitt sjötta barn Jeremiah
og biðu þar til hann hafði fæðst í nóvember með að
tilkynna um komu hans. Í einlægri Instagram-færslu
útskýrðu þau að þau hefðu misst fóstur í tvígang og
því viljað sitja á fréttunum um Jeremiah litla.
Michael Fassbender jr.
Sænska leikkonan Alicia
Vikander og írski leikarinn Mic-
hael Fassbender tilkynntu það
í september 2021 að þau
ættu eins og hálfs árs
gamlan son. Þau
hafa haldið syni
sínum utan kast-
ljóssins og ekkert
gefið upp um
nafn hans. Alicia
opnaði sig síðar
í viðtölum um
eigin reynslu
af fósturmissi
og má líklega
rekja leyndina
til þess.
Jupiter Seaborn Sheeran
Það var í maí á síðasta ári sem breski hjartaknúsarinn
og bandaríska íshokkístjarnan Cherry Seaborn til-
kynntu heiminum að þeim hefði fæðst önnur dóttir.
Stúlkan var komin í heiminn, falleg og heilbrigð og
fékk nafnið Jupiter.
Exa Dark Sideræl (Y)
X Æ A-12 varð öllum að óvörum stóri bróðir árið 2021 en þá tilkynnti
Grimes öllum að óvörum í viðtali í Vanity Fair í apríl á síðasta ári að þau
Elon Musk hefðu eignast dóttur í desember 2021 með aðstoð staðgöngu-
móður. Barnið fékk eðlilega nafnið Exa Dark Sideræl en foreldrarnir nota
hins vegar gælunafnið Y. En ekki hvað. Grimes sagðist hafa viljað kalla
dótturina Odysseus Musk en lotið í lægra haldi gegn föðurnum.
toti@frettabladid.is
Einar
Þorsteinsson
formaður
borgarráðs
„Þetta er bara
nafnið á bíla-
sölunni,“ segir
Einar Þorsteins-
son, formaður
borgarráðs og
tilvonandi borgarstjóri, þegar
hann er spurður út í torkennilegt
einkanúmerið, DIESEL, sem prýðir
Skoda Octavia G-Tec bifreiðina
sem hann og eiginkona hans Milla
Ósk Magnúsdóttir hafa sett á
sölu.
Einar vakti athygli á því að
bíllinn væri kominn á sölu á Face-
book með þessum orðum: „Um-
hverfisvænn og eyðslugrannur
bíll til sölu. Stórglæsilegt og nær
ónotað ferðabox á toppinn fæst
fyrir lítið í kaupbæti!“
Bifreiðin gengur fyrir bensíni
og metani þannig að diesel-
merkingin stingur dálítið í stúf
eins og Sunna Valgerðardóttir,
fyrrverandi samstarfskona Einars
á RÚV, benti á í athugasemd við
Einar, ertu með einkanúmerið DIESEL?
LykiLspurningin |
Einar og Milla Ósk bjóða nær ónotað ferðabox í kaup-
bæti með Skódanum. MYND/Bilasolur.is
Facebook-færsluna: „Kúl einka-
númer.“
Fyrirhuguð bifreiðaviðskipti
þeirra Millu og Einars hafa vakið
fleiri spurningar á Facebook: Á
núna að færa sig yfir á Borgar-
línuna? Á nagladekkjum? Og eina
merkingarþrungna um hvort
Einar sé þegar kominn með þau
fríðindi borgarstjóra að vera með
einkabílstjóra.
Mörgu er því enn ósvarað en
svarið við lykilspurningunni
liggur þó fyrir og dísillinn er Einari
og störfum hans í borgarstjórn
með öllu óviðkomandi. n
Royce Lillian
Ástralska leikkonan Rebel Wilson
og tískudrottningin Ramona
Agruma eignuðust dóttur sína
Royce Lillian með aðstoð stað-
göngumóður og kynntu
Royce fyrir heiminum í
nóvember síðastliðnum.
Þær kynntust á síðasta
ári og hlutirnir gerðust
hratt í kjölfarið hjá
einstaklingunum sem
allt í einu urðu þriggja
manna fjölskylda.
Michael Cera jr.
Hollywood-leikarinn Michael Cera gefur ekkert upp
um sinn fyrsta son sem fæddist árið 2021 og hann
eignaðist með eiginkonu sinni Nadine. Upp komst
um soninn þegar Amy Schumer blaðraði því í viðtali í
mars í fyrra að leikarinn hefði eignast barn fyrir hálfu
ári. Sjálfur vildi leikarinn lítið segja um barnið annað
en að þetta væri sex mánaða
gamall drengur.
birtust bara
22 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 26. jAnúAR 2023
fiMMTUDAGUR