Tímarit lögfræðinga - 01.04.2012, Qupperneq 11
Í fyrsta lagi reynir á lagaskilareglur þegar fjallað er um lögsögu
dómstóla. Í öðru lagi þegar reynir á viðurkenningu og aðfararhæfi
erlendra dóma. Í þriðja lagi þegar fjallað er um lagavalsreglur sem
gilda í lögskiptum aðila. Verður nú fjallað stuttlega um þessa þætti
en þungamiðja greinarinnar er annar þátturinn um lagaval innan
samninga.
Á lagaskilarétt reynir þegar fjallað er um lögsögu (e. jurisdiction)
dómstóla. Almennar varnarþingsreglur íslenskra laga koma fram í
V. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í 32.42. gr. er að
finna meginreglur laganna um varnarþing í einkamálum, s.s. heim
ilisvarnarþing, fasteignavarnarþing, efndastaðavarnarþing o.fl. Í 1.
mgr. 43. gr. laganna kemur fram að ákvæðum 32.42. gr. verði beitt
til að sækja mann sem er búsettur erlendis, svo og félag, firma,
stofnun eða samtök, sem er eins ástatt um, nema annað leiði af
samningum við erlent ríki. Ísland er aðili að slíkum samningi, sbr.
lög nr. 7/2011 um Lúganósamninginn um dómsvald og um viður
kenningu og fullnustu dóma í einkamálum. Ber því að beita þeim
lögum, en ekki lögum nr. 91/1991, þegar samningurinn á við.7 Um
varnarþingsreglurnar er fjallað í II. hluta laganna. Þó skal tekið fram
að reglur laga nr. 7/2011 taka ekki fram hvar á Íslandi skuli höfða
mál heldur hvort dómstólar hérlendis hafi lögsögu, þó mörkin í
þessu sambandi séu ekki alltaf skýr.8 Það er fyrir utan efni þessarar
greinar að fjalla frekar um lagaskilarétt er varðar lögsögu dóm
stóla.
Í öðru lagi reynir á reglur um alþjóðlegan einkamálarétt í
tengslum við viðurkenningu og aðfararhæfi erlendra dómstóla.
Álitamálið hér lýtur að því hvenær unnt er að fullnusta dóms
úrlausnir erlendra dóma hér á landi. Ef t.d. erlendur aðili hefur
höfðað mál gegn íslenskum aðila í erlendu ríki kann að standa
nauðsyn til að fullnusta hann hérlendis, t.d. vegna þess að eignir
fyrirfinnast aðeins hér á landi. Í slíkum tilvikum reynir á lög nr.
7/2011 um Lúganósamninginn um dómsvald og um viðurkenningu
og fullnustu dóma í einkamálum, sem nefndur var hér að framan í
tengslum við varnarþingsreglur. Reglur um viðurkenningu dóma
og fullnustu þeirra er að finna í III. hluta laganna. Að öðru leyti
verður í grein þessari ekki fjallað um lagaskilareglur er varða viður
kenningu og aðfarahæfi erlendra dóma.
7 Ása Ólafsdóttir: „Réttaráhrif varnarþingssamninga samkvæmt 1. mgr. 17. gr. Lúganó
samningsins“, bls. 327. Lög nr. 7/2011 um Lúganósamninginn um dómsvald og um viður
kenningu og fullnustu dóma í einkamálum leystu af hólmi lög nr. 68/1995 með sama nafni.
Sjá um aðdraganda að Lúganósamningnum Eyvindur G. Gunnarsson: „Varnarþingsreglur
Lúganósamningsins“, bls. 317370.
8 Ása Ólafsdóttir: „Réttaráhrif varnarþingssamninga samkvæmt 1. mgr. 17. gr. Lúganó
samningsins“, bls. 327.