Tímarit lögfræðinga - 01.04.2012, Page 43
5.2.6 Neytenda- og vinnusamningar, sbr. 5. og 6. gr. laga nr.
43/2000
Í ákvæðum 5. og 6. gr. laga nr. 43/2000 er að finna reglur, annars
vegar um neytendasamninga og hins vegar um vinnusamninga.
Reglurnar eiga það sammerkt að vernda með tilteknum hætti neyt
endur og launþega þannig að þeir séu ekki verr settir en samkvæmt
þeim landslögum sem gilda þar sem þeir eru búsettir eða starfa.
Varðandi neytendasamninga á 5. gr. laganna við um samninga
sem maður (neytandi) gerir um afhendingu vöru eða þjónustu í til
gangi sem verður að telja að varði ekki atvinnu hans eða samning
um lán til að fjármagna kaupin, sbr. 1. mgr. ákvæðisins. Ákvæðið er
í raun tvískipt hvað varðar markmið þess um vernd neytenda og
um undantekningar frá meginreglum um lagaval á grundvelli 3. og
4. gr. Í fyrsta lagi þannig að ef samningur kveður á um lagaval þá
getur slíkt val aldrei haft þau áhrif að skerða þá réttarstöðu neyt
anda sem hann nýtur í því landi sem hann býr. Í öðru lagi þannig að
ef ekki er samið um lagaval þá nýtur neytandinn engu að síður
verndar hinna ófrávíkjanlegu reglna landsins sem hann býr í. Ef
samningsákvæði er á hinn bóginn hagstæðara en ákvæði ófrávíkjan
legra laga í því landi þar sem hann býr þá gilda þau ákvæði samn
ingsins.
Í 2. mgr. 5. gr. er að finna ákvæði sem felur í sér undantekningu
frá samningsfrelsisákvæðinu í 3. gr. laganna, en þar segir að þrátt
fyrir ákvæði 3. gr. geti ákvæði um lagaval í samningi aldrei tak
markað þá vernd sem neytandi nýtur samkvæmt ófrávíkjanlegum
reglum í lögum þess ríkis á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem
hann býr. Sett eru þrjú skilyrði fyrir undantekningunni, en fullnægj
andi er að eitt þeirra eigi við. Skilyrðin eru í fyrsta lagi þau að undan
fari samningsins hafi verið sérstakt tilboð til neytandans eða almenn
auglýsing og allar nauðsynlegar ráðstafanir til samningsgerðarinn
ar af hans hálfu fóru fram í því landi. Í öðru lagi að gagnaðilinn eða
umboðsmaður hans hafi tekið við pöntun neytandans í því landi og
í þriðja lagi að samningur hafi verið um sölu vöru og neytandinn
ferðaðist frá því landi til annars lands og gerði pöntun sína þar, hafi
ferðin verið skipulögð af seljandanum í þeim tilgangi að hvetja neyt
andann til kaupanna.
Í 3. mgr. 5. gr. er síðan tekið af skarið um að ákvæði ófrávíkjan
legra reglna landsins þar sem neytandinn býr gildi þrátt fyrir að
ekki sé samið um lagaval og gengur það því framar ákvæðum 4. gr.
laganna.
Um vinnusamninga er fjallað í 6. gr. laga nr. 43/2000, en þar kem
ur fram að þrátt fyrir 3. gr. laganna skuli vinnusamningar ekki leiða
til lakari verndar launþega en þeir myndu njóta samkvæmt þeim