Tímarit lögfræðinga - 01.04.2012, Qupperneq 72
0
5.1 Nánar um tilboðin í skuldabréfaflokk Exista
Á tímabilinu frá 25. janúar til 22. febrúar 2008 setti miðlarinn, í sex
tilvikum, inn kauptilboð í tilboðabókina örfáum mínútum fyrir lok
un markaðar samkvæmt fyrirmælum frá sjóðsstjóranum. Tilboðin
féllu niður þegar viðskiptadegi lauk og því voru þau virk í afar
stuttan tíma. Í athugun Kauphallarinnar á viðskiptaháttum miðlar
ans kom í ljós að töluverður verðmunur var á þeim tilboðum sem
miðlarinn setti inn við lok viðskiptadagsins og þeim tilboðum sem
fyrir voru í viðskiptakerfinu. Auk þess var verulegur munur á fjölda
hluta sem lá að baki tilboðunum hjá miðlaranum. Tilboðin sem
miðlarinn setti fyrir lokun markaðar hljóðuðu upp á 5.000 bréf en
önnur tilboð miðlarans hljóðuðu flest upp á 50.000 bréf. Í rannsókn
sinni tók Kauphöllin saman þau tilboð sem miðlarinn setti í lok við
skiptadags og verðbreytinguna frá síðasta tilboði í tilboðabókinni,
sbr. eftirfarandi töflu:66
Dags. Tilboðabók Tími67 Miðlari Verð68 Verð síðasta tilboðs Buy/Sell Magn
(fjöldi bréfa) Verðbr.
25.1.2008 EXISTA 07 2369 17:19 STEAGN470 98,98 95,8 B571 5.000672
3,32%773
14.2.2008 EXISTA 07 2 17:21 STEAGN 99;95 95,2 B 5.000 4,99%
15.2.2008 EXISTA 07 2 17:21 STEAGN 99,95 95,23 B 5.000 4.96%
18.2.2008 EXISTA 07 2 17:20 STEAGN 99,96 95,23 B 5.000 4,97%
19.2.2008 EXISTA 07 2 17:20 STEAGN 99,95 95,26 B 5.000 4,92%
22.2.2008 EXISTA 07 2 17:22 STEAGN 99,38 95,29 B 5.000 4,29%
Í síðustu tveimur tilvikunum var gengið að kauptilboði miðl
arans og viðskipti urðu því úr.
5.2 Atriði sem lágu til grundvallar sakfellingu
Í máli þessu komst héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að miðlarinn
og sjóðsstjórinn hefðu í sameiningu gerst sekir um markaðsmis
notkun eins og henni er lýst í alið 1. tl. 1. mgr. 117. gr. vvl. Hæsti
réttur staðfesti niðurstöðu héraðsdómsins um sakfellingu ákærðu
66 Taflan er birt í dómi héraðsdóms.
67 Tímasetning á því hvenær tilboðið var sett í tilboðabókina.
68 Gengið sem miðlarinn er tilbúinn að kaupa bréfin á.
69 Tiltekinn skuldabréfaflokkur Exista.
70 Miðlaraauðkenni miðlarans sem var ákærður í málinu.
71 Gengið á síðasta tilboði sem fyrir var í tilboðabókinni. B þýðir kauptilboð.
72 Nafnverð bréfanna sem nefnist ensku nominal value.
73 Hlutfallsleg breyting á milli síðasta fyrirliggjandi kauptilboði og tilboði miðlarans í lok
viðskiptadagsins.
Dags. Tilboðabók Tími Miðlari Verð Verð
síðas a
tilboðs
Buy/Sell
Magn
(fjöldi
bréfa)
Verðbr.
25.1.2008 EXISTA 07 2 17:19 STEAGN 98,98 95,8 B 5.000 3,32 %
14.2.2008 EXISTA 07 2 17:21 STEAGN 99;95 95,2 B 5.000 4,99%
15.2.2008 EXISTA 07 2 17:21 STEAGN 99,95 95,23 B 5.000 4.96%
18.2.2008 EXISTA 07 2 17:20 STEAGN 99,96 95,23 B 5.000 4,97%
19.2.2008 EXISTA 07 2 17:20 STEAGN 99,95 95,26 B 5.000 4,92%
22.2.2008 EXISTA 07 2 17:22 STEAGN 99,38 95,29 B 5.000 4,29%
1 Tímasetning á því hvenær tilboðið var sett í tilboðabókina.
2 Gengið sem miðlarinn er tilbúinn að kaupa bréfin á.
3 Tiltekinn skuldabréfaflokkur Exista.
4 Miðlaraauðkenni miðlarans sem var ákærður í málinu.
5 Gengið á síðasta tilboði sem fyrir var í tilboðabókinni. B þýðir kauptilboð.
6 Nafnverð bréfanna sem nefnist ensku nominal value.
7 Hlutfallsleg breyting á milli síðasta fyrirliggjandi kauptilboði og tilboði miðlarans í lok
viðskiptadagsins.
67 68
69 70 71 72 73