Tímarit lögfræðinga - 01.04.2012, Síða 73
með vísan til forsendna dómsins. Verður hér að neðan vikið nánar
að þeim atriðum sem héraðsdómur byggði á í forsendum sínum
fyrir niðurstöðu um sakfellingu.
a) Kauptilboðin viku verulega til hækkunar frá fyrirliggjandi
tilboðum
Fyrir dómi bar B, sérfræðingur hjá Kauphöllinni vitni. Í framburði
hans kom fram að viðvörunarkerfi Kauphallarinnar hefði gefið
merki við tvö síðustu kauptilboðin en með réttu hefði viðvörun átt
að koma fram vegna allra tilboðanna sex. Tilgangur með viðvör
unarbjöllum er að gefa merki ef eitthvað á sér stað sem er frábrugð
ið öðru á markaðinum. B kvað stillingu viðvörunarkerfisins hafa
gert það að verkum að viðvörunarbjöllurnar hringdu ekki vegna
kauptilboðanna sem ekki var tekið. Um þetta segir í dómi héraðs
dóms:
Með því sem nú hefur verið rakið, og með öðrum gögnum málsins, þar á
meðal með vitnisburði [B…], og er hafður er í huga tilgangur kauptilboð
anna, sbr. það sem síðar verður rakið, er sannað, gegn neitun ákærðu, að
kauptilboðin viku verulega til hækkunar frá fyrirliggjandi kauptilboðum í
viðskiptakerfinu, eins og í ákæru greinir.
Héraðsdómur slær hér föstu að kauptilboðin sex hefðu verið
verulega frábrugðin fyrirliggjandi kauptilboðum. Til stuðnings nið
urstöðu sinni vísaði héraðsdómur til ofangreinds vitnisburðar
starfsmanns Kauphallarinnar og tilgangs kauptilboðanna, en vikið
verður að tilganginum í blið hér að neðan. Með því að slá þessu
föstu virðist dómurinn vera að leggja grunn að niðurstöðu sinni um
að tilboð miðlarans hafi gefið eftirspurn og verð bréfanna misvís
andi til kynna, sbr. orðalag aliðar 1. tl. 1. mgr. 117. gr. vvl. Með
öðrum orðum virðist dómurinn líta þannig á að þar sem tilboðin
voru óvenjuleg, þ.e. ekki í samræmi við önnur tilboð í sömu bréf,
bendi það til þess að tilgangurinn hafi verið annar en sá að hagnast
á viðskiptunum.
b) Tilgangur tilboðanna
Eins og kom fram hér að ofan voru öll kauptilboðin sett inn við lok
un markaðar. Í hljóðrituðum símtölum ákærðu kom fram að þeir
ræddu ítrekað um að setja kauptilboðin inn við lokun markaðar.
Dómurinn taldi sannað að tilgangurinn með kauptilboðunum hafi
verið sá að hafa áhrif á dagslokaverð skuldabréfaflokksins. En hvaða
hagsmunir skyldu liggja að baki því að hækka dagslokaverðið í
þessum tiltekna skuldabréfaflokki?