Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1977, Blaðsíða 9

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1977, Blaðsíða 9
7 verið þar frá alda öðli, heldur væru það innflytjendur, sem komið hefðu lengst norðan úr heimi, þar væru frumstöðvar þeirra, og væru þeir kallaðir ,,Svíar“. Það var nú ekki smáræðis fróðleikur að vita þetta, en Rúða bættist líka enn meiri fróðleikur fyrir ann- an góðan félagsskap, þar sem hann hafði náin samkynni við það af dýrunum, sem fyrir var á heimilinu. Það var stór hundur, er Ajola hét og átt hafði faðir hans og það var fressköttur; var það einkum kötturinn, sem Rúða mátti þykja mikils um vert, því hann hafði kennt honum að klifrast. „Komdu með út á þakið,“ hafði kötturinn sagt og það alveg skýrt og skilmerkilega, því þegar maður er barn og hefir ekki enn fengið málið, þá skilur maður prýðilega hænsn og endur, hunda og ketti, þau tala eins skiljanlegu máli og pabbi og mamma, sé maður að eins nógu lítill; enda stafurinn hans afa getur þá hneggjað, orðið að hesti, með höfði, fótum og tagli. Hjá sumum börnum þverrar þessi skilningur seinna en hjá sumum; er þá sagt um þau, að þau séu seinþroska og langt á eftir og lengur börn en góðu hófi gegnir. Það er nú svo margt, sem talað er. „Komdu með út á þakið, Rúði litli.“ Það var það fyrsta sem kötturinn hafði sagt og Rúði skilið. „Þetta, sem þeir tala um, að detta, það er eintóm innbyrling, eng- inn dettur, ef hann ekki óttast að hann detti. Komdu bara, settu aðra framlöppina svona, og hina svona, hafðu framlappirnar fyrir þér og augun hjá þér, vertu snar og liðugur í limum. Verði fyrir þér gjá, þá engdu fast saman, það geri ég — og hentu þér yfir.“ Og það gerði Rúði líka, þess vegna sat hann svo oft uppi á mæn- inum hjá kettinum; hann sat hjá honum uppi í trétoppinum, já enda á klettabrúninni, hærra en kötturinn náði að komast. „Hærra, hærra!“ sögðu tré og runnar. „Líttu á hvað við klifr- umst hátt og hvað við komumst hátt og hversu fast við höldum okkur, enda yst á tæpustu klettasnösum." Og Rúði komst upp á fjallshnúkinn, oft og tíðum fyrr en sólin var komin þangað, og þar fékk hann morgundrykkinn sinn, hið ferska og heilsustyrkjandi f jallaloft, og drykkinn þann sem drott- inn einn getur tilbúið, þó uppskriftina geti mennirnir ekki lesið, þar sem svo greinir: „Hinn ferski ilmur af jurtum fjallsins og af krúsmintunni og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.