Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1977, Blaðsíða 74

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1977, Blaðsíða 74
72 dýrmæt. Og fleira heillaði en ljóðin, jafnvel fyrir fermingu, og minni á það, sem ég sagði í erindi mínu „Minningábrot“ (Rökkur I. Nýr flokkur), um Gunrilaugs sögu ormstungu. Enga íslendinga- sagnanna hefi ég lesið oftar á langri ævi. Fleira heillaði því en ljóðin. Og það kom svona hægt og hægt, að ég eignaðist íslendinga- sögurnar í útgáfu Sigurðar Kristjánssonar. Þær voru svo ódýrar. Ég hefi litið á Sigurð heitin sem velgerðarmann bernsku minnar og einn mesti velgerðarmaður íslenzku þjóðarinnar var hann vegna bókaútgáfu sinnar. Ef til vill hefi ég hér að framan verið að endurtaka það, sem ég hefi áður sagt, og afsökunin eina, að þetta er svo hugstætt þegar minningunum skýtur upp um hvernig þetta allt þróaðist, en þegar á unglingsárunum fór ég að uppgötva æ fleiri bækur, þeirra á meðal voru „litlu ljóðakverin“, en í þeim voru svo margar perlur, sem hrifu svo hugann, að áhrifin tengdust með næstum dularfullum hætti, að mér fannst, áhrifunum að sumu því, sem skráð var í fyrstu Poesi-bókina mína. Öll voru þessi litlu ljóða- kver í litlu broti, óbundin, næsta óásjáleg, en í þeim var slegið á strengi harpnanna þannig, að það náði til hjartnanna, með nýj- um andblæ, sem á stundum eins og hlýr vorblær „leitar inn — inn í þitt insta sinni“ (tilvitnun úr kvæði eftir Árna Pálsson bóka- vörð). Hið fyrsta þessara litlu ljóðakvera, sem ég eignaðist, kom út tveimur árum áður en ég fæddist, prentað í ísafoldarprentsmiðju 1893. Ég eignaðist það á unglingsárum. Það var aðeins 64 bls. í mjög litlu broti, og nefndist: Ljóðmœli, eftir Einar Hjörleifsson. 1 því voru allmörg af fegurstu ljóðum hans, og snilldar kvæði bættust við síðar. Ég hefi alla tíð síðan ég eignaðist þetta kver á unglingsárum, verið þeirrar skoðunar, að ljóð hans hafi ekki verið metin sem skyldi, en fjölyrði ekki nánara um það hér, því að ég gerði þeirri skoðun minni nokkur skil í útvarpserindi, sem flutt var tvívegis, í síðara skiptið sem „endurtekið efni“. Erindið var svo birt á prenti (Rökkur, Nýr flokkur I, Rvk 1969). Nokkrar tilvitnanir eru að sjálfsögðu í erindinu, sem ég vísa til í þeirri von, að þær varpi að minnsta kosti nokkru ljósi á það hverjar mætur ég fékk á ljóðskáldinu og manninum Einari Hjörleifs- syni þegar á unglingsárum, og tel mig í rauninni enn í dag hafa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.