Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1977, Blaðsíða 68

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1977, Blaðsíða 68
66 hokur nokkur ár, og dvaldist þar sumarmánuðina fjögur ár, þá fór ég að hugleiða nánara hvar kistan væri niður komin, með þeim árangri, að ég fann hana og flutti að Þverholtum í jeppa- kerru minni, en svo þegar allt breyttist síðar og ég hættur hokr- inu, geymdi ég hana nokkur ár í bílskúrnum mínum á Flókagötu 15, og var hún ónotuð og hálfgleymd. Svo vaknaði áhugi minn fyrir henni að nýju, og ástæðurnar aðrar. Ég hafði fylgst með starfi Ragnars Ásgeirssonar ráðunauts í þágu byggðasafnanna. Við höfðum lengi verið góðkunningjar. Ég hringdi nú til hans og sagði honum frá kistunni og varð hann góðfúslega við beiðni minni, að líta á gripinn. Hann skoðaði kistuna í krók og kring og kvað kleift, að gera úr henni fagran grip, sem orðið gæti mikil stofuprýði, en vanda þyrfti til undirbúningsins, og bauðst til þess að annast hann sjálf- ur og einnig að hreyfa því við dóttur sína, að annast skrautmáln- ingu kistunnar. Allt gekk þetta að óskum. Hún valdi fallegt norskt mynstur og leysti það af hendi sem vænta mátti af mestu prýði. Og síðan hefir kistan verið stofugripur og vakið aðdáun margra. Til gamans get ég þess, að þegar kistan var í vörzlu Ragnars, hringdi hann eitt sinn til mín og spurði: „Vissurðu, að það er leynihólf í kistunni?“ Ég varð að játa, að það hafði aldrei flögrað að mér, að í henni gæti verið leynihólf. Eins konar hólf með loki yfir var efst við annan gaflinn, vafa- laust ætlað til geymslu smámuna, bréfa eða slíks, og ekkert leynd- ardómsfullt við það. En þarna var nú samt leynihólfið, því að í þessu hólfi var tvöfaldur botn, sem kom í ljós, ef kippt var upp innri hlið hólfsins, þannig frá gengið, að þess sáust engin merki, að henni mátti kippa upp og renna niður. „Þarna geymdu karlarnir spesíurnar sínar,“ sagði Ragnar, þeg- ar hann hann hafði leitt mig í allan sannleika um „leynihólfið“. Jólahald á bernskuheimili mín var um sumt ekki ýkja frá- brugðið því sem enn er. Það var allt af keypt jólatré, allstórt, og allt af sami jólatrésfóturinn. Jólatrénu var komið fyrir í bláu stofunni. Það var nokkur leynd yfir skreytingunni, en á aðfanga- dagskvöld fengum við ekki að sjá það, fyrr en að stundinni miklu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.