Skessuhorn - 20.12.2022, Síða 4
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 20224
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 4.357 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.763. Rafræn áskrift kostar 3.413 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 3.146 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir gb@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is
Steinunn Þorvaldsdóttir sth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Siggi Sigbjörnsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Líður að
helgum tíðum
„Hátíð fer að höndum ein, hana vér allir prýðum, lýðurinn tendri ljósin
hrein, líður að tíðum, líður að helgum tíðum.“ Þannig komst Dalaskáldið
góða Jóhannes úr Kötlum svo vel að orði í íslenskri þjóðvísu sinni. Helgasta
hátíð kristinna manna gengur í garð um næstu helgi. Fyrir okkur Íslendinga
eru jólin ekki einvörðungu hátíð sökum fæðingar frelsarans fyrir rúmum
tvö þúsund árum, heldur og ekki síður vegna þess að þá tekur daginn aftur
að lengja. Allt fram að síðustu helgi var jörðin marauð og því litla birtu að
fá þann stutta tíma sem sól var á lofti. Snjórinn sem féll um helgina birti því
til í öllu tilliti. Jafnvel þótt færð hafi spillst um tíma á laugardaginn, var það
einmitt þetta veður sem minnti mig allavega á jólin í æsku. Svo fannst mér
sérlega ánægjulegt að fá loksins snjó, því vissulega finnst manni á stundum
erfitt að réttlæta eign á vel búnum jeppa, ef ekki kæmi einstaka ófærðar
dagur. Ég gladdist því mjög og leitaði uppi alla þá snjóskafla sem ég gat.
Rétt eins og lítið barn með leikfangið sitt.
Hér á síðum blaðsins eru nokkrir sem rifja upp jólasiði sína og minningar.
Alltaf finnst mér skemmtilegur og sérlega hátíðlegur hluti af mínu starfi að
lesa slíkt efni inn til birtingar. Sjálfur á ég afskaplega bjartar minningar úr
æsku. Það voru forréttindi að fá að alast upp í sveit þess tíma. Á bænum var
lítið, blandað bú með kúm, kindum, nokkrum hrossum, hænum, fjósketti
og barngóðum heimilishundi. Um jólin var sérlega passað upp á að allar
skepnur, stórar sem smáar, fengju góðan viðurgjörning. Útigangshrossum
var gefið ríflega að deginum og jafnvel farið með brauðmola í poka til að
gleðja þau sem þorðu að þiggja. Við kvöldmjaltir á aðfangadag hljómaði
messan í útvarpinu og engu líkara var en kýrnar skynjuðu kyrrðina sem
fylgdi helgri hátíð mannfólksins. Þær vingsuðu halanum letilega í takti við
Heims um ból Dómkirkjukórsins og nutu þess að éta bestu töðuna sem
fundin hafði verið í hlöðunni. Í fjárhúsunum var sömuleiðis ágæt stemn
ing, en kannski eilítið frjálslegri. Hrútarnir voru nefnilega á þessum tíma í
óða önn að gera sér dælt við ærnar sem létu þá ákveðið vita ef þeirra atlota
væri vænst. Ilmandi taða var gefin á garðana og dálitlu fiski og maísmjöli
sáldrað yfir. Svona rétt eins og við notum sósu eða sultu til að gera hátíðar
matinn okkar einstakan. Að lokinni gjöf settist maður ætíð niður á jötu
bandið og naut þess að horfa á þakklátar ærnar kjamsa í sig fóðrinu. Lágvær
kliður frá þeim var engu líkur. Meira að segja fjóskötturinn fékk sinn jóla
mat. Skata í afgang frá deginum áður, eða jafnvel nýsoðin ýsa með spen
volgri mjólk. Allir skyldu jú fá eitthvað extra á jólunum. Um leið og ljósin
voru slökkt í útihúsunum var sagt gleðileg jól við blessuð dýrin. Þeim bar
að þakka og óska alls hins besta, enda áttu og eiga bændur allt sitt undir
velferð þeirra.
Þegar inn var komið var þvottastund áður en sest var að hátíðarborði.
Dagskráin var nokkuð þétt því öllu þurfti að vera lokið í tæka tíð fyrir bíl
ferð í Reykholt þar sem aftansöngur hófst á slaginu tíu. Órjúfanleg hefð
sem viðhöfð hafði verið á mínu heimili síðan löngu fyrir mína tíð. Afi
var organisti í kirkjunni og foreldrarnir áttu sinn stað í kórnum. Messa
á aðfangadagskvöld var þannig í senn heilög og heilandi stund. Í minn
ingunni var nánast alltaf kalt veður, en stjörnubjart. Skítkalt var í Willys
jeppanum á heimleiðinni enda miðstöð í slíkum bílum ekki það sem áhersla
hafði verið lögð á við hönnun þeirra. Þegar heim var komið, á tólfta tím
anum um kvöldið, tók við lestur jólabókar fram á nótt. Jafnvel að laumast
var í kökudunkana og einhverjar þeirra fimmtán sorta af smákökum sem
þar var að finna hafðar sem nesti í rúmið. Meinlætalíf vissulega, en þetta
mátti. Það var jú jólanóttin.
Ég vil enda þennan síðasta pistil ársins með að þakka lesendum Skessu
horns, velunnurum og góðum vinum fyrir árið sem er að kveðja. Vonandi
færir hækkandi sól og nýtt ár ykkur öllum gleði og hamingju.
Magnús Magnússon
Þrátt fyrir talsvert kalda daga
undanfarið hefur ekki gætt skorts
á heitu vatni á þeim svæðum á
Vesturlandi sem Veitur ohf. ann
ast. Í samtali við Skessuhorn sagði
Gissur Ágústsson rekstrarstjóri
fyrirtækisins að kerfið stæði undir
álaginu en þó væri Deildartungu
aðveituæðin sem stendur fullnýtt,
en hún gefur um 220 sekúndulítra.
Spáð er áframhaldandi köldu veðri
þessa dagana.
Gissur segir að auðvitað geti
brugðið til beggja vona, en vonast til
þess að ekkert óvænt gerist og grípa
þurfi til ráðstafana. Aðspurður um
neyðaráætlun ef til þess kæmi svar
aði hann því til að ef ekki yrði nægt
vatn yrði líklega fyrst gripið til þess
að loka sundlaugum þó ástandið sé
vel ásættanlegt núna. Hann hvatti
að lokum til þess fólk færi vel með
heita vatnið meðan kuldinn varir,
t.d. með því að yfirfara ofna. Ekki
væri þó ástæða til annars en að fólk
hefði hlýtt inni hjá sér.
gj
Líkt og víða á landinu hefur
snjóað talsvert í Ólafsvík frá því
á föstudaginn, samhliða vindi og
skafrenningi. Börnin í Ólafsvík
hafa ekki látið blásturinn á sig fá
og héldu með sinn snjósleða í Sjó
mannagarðinn til þess að renna
sér. Þetta er bara gaman sögðu þau
þegar fréttaritari rakst á þau síð
degis á laugardaginn.
af
Skautasvellið við Krúsina gömlu
við Grundaskóla á Akranesi hefur
nú verið tekið í notkun. Að sögn
Jóns Arnars Sverrissonar garð
yrkjustjóra Akraneskaupstaðar er
það nú tilbúið, botnfrosið, renni
slétt og alveg óhætt að stíga út á
það.
„Vonandi fær það frið fyrir fljúg
andi stórum steinum sem sumum
finnst gaman að leika með en
verk efnið er alla vega tilraunar
innar virði enda margir sem hafa
kallað eftir að skautasvelli verði
komið upp í bænum. Þessi stað
setning varð fyrir valinu þar sem
grunnur var til staðar og auðvelt
að komast að. Einnig er staðsetn
ingin miðsvæðis í bænum og góð
lýsing til staðar. Slökkviliðinu eru
hér færðar þakkir fyrir þeirra þátt
í verkefninu en verkefnið er einn af
80 ára afmælisliðum Akraneskaup
staðar. Svo nú er um að gera að
taka fram skautana og nýta frostið
framundan,“ segir Jón Arnar að
lokum.
vaks
Á fundi bæjarstjórnar Grundar
fjarðarbæjar síðla í nóvember var
samþykkt að veita afslátt af gatna
gerðargjaldi af tilteknum eldri
lóðum í bænum. Í sumar sam
þykkti bæjarstjórn að veita til
reynslu 75% afslátt af gatnagerðar
gjöldum til ársloka. Á fundi sínum
24. nóvember samþykkti bæjar
stjórn svo að þessi afsláttur muni
gilda til áramóta og renna þá út, en
frá 1. janúar til 30. júní 2023 býðst
50% afsláttur gatnagerðargjalda af
lóðunum.
Lóðirnar sem um ræðir eru:
Fellabrekka 1, Grundargata 63,
Grundargata 82, Grundargata 90,
Hellnafell 1, Ölkelduvegur 17,
Ölkelduvegur 19 auk þess iðnaðar
lóðir og metralóðir meðfram núver
andi götu við Hjallatún. Nú eru ell
efu íbúðir og íbúðarhús í byggingu
í Grundarfirði og bæjarstjórn hefur
síðan í júlí síðastliðnum samþykkt
úthlutun tíu íbúðarlóða og tvær
úthlutanir á iðnaðarlóðum.
mm
Ekki skortur á heitu vatni í bili
Gott er að yfirfara ofnkrana til að
hitinn nýtist sem best.
Veita ríflegan afslátt af
gatnagerðargjöldum
Byggt í Grundarfirði. Ljósm. úr safni Skessuhorns frá 2007.
Skautasvellið tilbúið til notkunar
Nýja skautasvellið við Grundaskóla. Ljósm. Jón Arnar Sverrisson
Njóta þess
að renna í
snjónum