Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202244
Fréttaannáll ársins 2022 í máli og myndum
Verkefnisstjórn Sundabrautar
hélt fyrsta fund
Nú er stefnt að því að hefja framkvæmdir við lagningu Sunda
brautar árið 2026 og að hún verði tekin í notkun árið 2031.
Mikil tímamót urðu í byrjun september þegar verkefnis
stjórn þessara samgöngubóta hélt sinn fyrsta fund og setti
hann ákveðinn tón um að Sundabrautin verði að lokum að
veruleika.
Mikill kraftur í Ferðafélagi
Mikill kraftur var í Ferðafélagi Borgarfjarðarhéraðs á árinu. Í
september var t.d. farinn leiðangur á topp Hafnarfjalls til að
undirbúa uppsetningu útsýnisskífu. Í leiðangrinum tóku þátt
Jakob Hálfdánarson, Jón Víðis Jakobsson, Bragi Hannibals
son og Jónína H. Pálsdóttir. Verkið gekk vel, hópurinn lagði
af stað fyrir birtingu og kom ekki niður fyrr en tekið var að
skyggja. Áður hafði Ferðafélagið sett upp upplýsingaskilti við
rætur fjallsins, stikað leiðina upp á topp og hreinsað gamlar
girðingar meðfram henni. Meðal annarra verkefna ársins var
uppsetning veglegra upplýsingaskilta fyrir Vatnaleið, 50 km
gönguleið milli Hlíðarvatns á Snæfellsnesi og Hreðavatns í
Norðurárdal.
Vestanátt kynnti vindorkukosti
Í september bauð Vestanátt til þriggja kynningarfunda með
íbúum á Vesturlandi vegna fyrirhugaðra vindorkuvera á
ýmsum stöðum í landshlutanum. Vestanátt er samstarfs
verkefni fjögurra vindorkufyrirtækja auk Norðuráls á
Grundartanga. Af umræðum á fundunum var ljóst að málið
er umdeilt auk þess sem skýrar reglur um staðsetningu slíkra
vera vantar frá yfirvöldum áður en lengra verður haldið.
Örnefnanefnd mælti
með þremur nöfnum
Innviðaráðherra staðfesti sameiningu Helgafellssveitar og
Stykkishólmsbæjar í eitt sveitarfélag 4. apríl og í byrjun júlí
var óskað eftir því við Örnefnanefnd að hún tæki til umsagnar
tillögur að nafni nýs sveitarfélags. Alls höfðu borist 72 til
lögur sem sveitarstjórn fór yfir og ákvað að óska eftir umsögn
nefndarinnar. Taldi hún eftirtalin nöfn helst koma til greina:
Þórsnesþing, Stykkishólmsbær og Sveitarfélagið Stykkis
hólmur. Mánudaginn 5. desember var haldinn íbúafundur
þar sem greinargerð Örnefnanefndar var kynnt og tillögurnar
ræddar. Endanleg niðurstaða lá ekki fyrir við ritun annálsins.
Samfelld þrjátíu tíma
steypa yfir Þorskafjörð
Föstudaginn 16. september var byrjað að steypa gólfið á
brúnni yfir Þorskafjörð. Það var steypt í einu lagi og í þessum
áfanga var helmingur brúarinnar tekinn fyrir, 130 metrar að
lengd. Steypustöð var komið fyrir við Bjarkalund til að lág
marka flutninga. Mikinn undirbúning þurfti fyrir þetta stóra
steypu en verkið gekk án mikilla áfalla og tók um 30 klukku
tíma. Framkvæmdum við brúna yfir Þorskafjörð miðaði vel
í sumar og verður hún fullbúin 260 metrar að lengd. Þá er
Borgarverk byrjað á vegagerð um hinn afar umdeilda Teigs
skóg. Þar með er lokið tveggja áratuga þrætum um veginn.
Pétursvirki forðað
frá eyðileggingu
Í september lauk Unnsteinn Elíasson grjóthleðslumeistari
við endurbætur á svonefndu Pétursvirki á jörðinni Englandi
í Lundarreykjadal. Mannvirkið var orðið illa farið og hafði
laskast enn frekar um sumarið, sennilega vegna jarðskjálfta
inni á afréttinum. Pétursvirki er hlaðinn steinstöpull; 2,66
metrar á lengd, 1,8 metrar á breidd og 1,6 metrar á hæð.
Virkið er á Hrútaborgum á Englandshálsi og var byggt af
Pétri Georg Guðmundssyni árið 1889, en þá var hann aðeins
tíu ára gamall og sat yfir ánum á hálsinum. Pétursvirki þykir
einstaklega haganlega gert, ekki síst í ljósi þess hversu ungur
hleðslu maðurinn var.
RÚV réð ekki í stöðuna
Í september auglýsti RÚV starf fréttamanns á Vesturlandi
og Vestfjörðum laust til umsóknar. Fáar umsóknir bárust og
sagði Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV í samtali
við Skessuhorn að ákveðið hefði verið að ráða ekki í starfið
að sinni. RÚV myndi heldur nýta tækifærið til að endurhugsa
landsbyggðarþjónustu RÚV í heild sinni. Þar til ráðið verður
í starfið sagði Heiðar að fréttastofan myndi halda áfram að
sinna fréttaflutningi af svæðunum með því að senda frétta
menn úr Efstaleiti í fréttaferðir vestur. Í árslok lá ekki enn
endanlega fyrir hvernig RÚV muni sinna þessum svæðum í
náinni framtíð.
DalaAuður úthlutar
Stuðningsverkefnið DalaAuður í Dölum lagðist greinilega
vel í íbúa, því samtals bárust 30 umsóknir í frumkvæðissjóð
sem var í fyrsta skipti úthlutað úr í ár. Umsóknarfrestur fyrir
verk efnið rann út í lok september og var þetta fyrsta árið þar
sem opnað var fyrir umsóknir. Verkefnið DalaAuður er hluti
Brothættra byggða sem Byggðastofnun hefur unnið að víða í
dreifðari byggðum undanfarin ár. Alls bárust 30 umsóknir og
21 verkefni hlutu styrk á úthlutunarhátíðinni sem haldin var
að Laugum í Sælingsdal 4. nóvember.
Eyja- og Miklaholtshreppur
ræðir sameiningu
Hreppsnefnd Eyja og Miklaholtshrepps sendi í október
bréf til allra sveitarfélaga á Snæfellsnesi um mögulegar
sameiningar viðræður. Var það gert á grundvelli skoðana
könnunar meðal íbúa um sameiningarmál frá því í maí. Þar
greiddu 58 íbúar atkvæði um nokkra kosti og voru niður
stöður afgerandi í þágu þess að allt Snæfellsnes myndi sam
einast. Þess ber að geta að Kolbeinsstaðahreppur og Skógar
strönd hafa þegar sameinast Borgarbyggð og Dalabyggð en
tilheyra Snæfellsnesi engu að síður. Ekki hefur frést af við
brögðum viðtakenda við erindinu.
Akraneskaupstaður óskar
eftir að kaupa land
Síðla sumars festi Akraneskaupstaður kaup á jörðinni Akra
koti í landi Hvalfjarðarsveitar, en lönd sveitarfélaganna liggja
saman þar sem mörk voru áður við InnriAkraneshrepp.
Akraneskaupstaður óskaði í framhaldi eftir samkomulagi
við Hvalfjarðarsveit um færslu sveitarfélagamarkanna, svo
og viðræðum um kaup eða makaskipti á landi í eigu Hval
fjarðarsveitar. Niðurstaða Hvalfjarðarsveitar lá ekki fyrir við
skrif annálsins.
Banaslys í Kirkjufelli
Í lok október varð banaslys í fjallinu Kirkjufelli við Grundar
fjörð. Erlendur ferðamaður um þrítugt lést eftir hátt fall í fjall
inu. Þrír sjúkraflutningamenn komu fyrstir á staðinn og hlúðu