Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 118
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022118
Spurning
vikunnar
Hvernig getið þið gefið
svona mörgum börnum í
skóinn á einni nóttu?
Spurt við fjallsrætur
á nokkrum stöðum
Stekkjastaur
„Við erum bara svo svakalega
orkumiklir bræðurnir og förum
þess vegna mjög hratt yfir!“
Bjúgnakrækir og Kjetkrókur
B: „Bara góð samvinna!“ K:
„Já, og mamma skipuleggur allt
rosalega vel fyrir okkur.“
Gáttaþefur
„Ég bara reyni að flýta mér og
hoppa bara og skoppa út um
allt þangað til þetta klárast.“
Gluggagægir
„Mamma passar að við æfum
okkur vel allt árið, við erum í
ströngum æfingabúðum yfir
sumartímann. Svo heldur
maður bara vel á spöðunum
þegar að þessu kemur.“
Kertasníkir
„Góð einbeiting og frábært
skipulag. Við höfum líka verið
að prófa nýja tækni upp á
síðkastið, svona svifbretti, en
það hefur reyndar gengið upp
og ofan, aðallega ofan. En ég
þarf að drífa mig Gleðileg jól
allir saman!“
Arnleifur með
tveggja ára
samning við ÍA
Arnleifur Hjörleifsson er genginn
til liðs við Knattspyrnufélag ÍA og
hefur skrifað undir samning sem
gildir til ársins 2024. Arnleifur er
vinstri bakvörður og á að baki alls
91 deildarleik með Skallagrími,
Kára og Kórdrengjum og hefur
skorað í þeim leikjum níu mörk.
Arnleifur sem er fæddur árið
2000 er uppalinn í Ólafsvík en með
tengingu á Akranes. Hann spilaði
með ÍA í þriðja og öðrum flokki
og var þar hluti af sigursælu liði hjá
2. flokki ÍA. Síðustu þrjú tímabil
hefur Arnleifur spilað með liði
Kórdrengja í 2. deild og í Lengju
deildinni síðustu tvö ár en liðið
vann sér sæti þar tímabilið 2020.
vaks
Fótboltastelpur í Grundarfirði hafa
verið duglegar að æfa í allt haust og
voru kátar er ljósmyndari Skessu
horns kíkti inn á síðustu æfinguna
hjá þeim fyrir jólafrí. Kristján Freyr
þjálfarinn þeirra kom þá með smá
góðgæti fyrir þær að lokinni æfingu
sem var ekki með hefðbundnu sniði
enda leyfilegt að brjóta upp æfingar
aðeins svona rétt fyrir jólafrí.
tfk
ÍA og Selfoss áttust við í 1. deild
karla í körfuknattleik á föstudags
kvöldið og var viðureignin í íþrótta
húsinu við Vesturgötu á Akranesi.
Leikmenn beggja liða voru ekki
alveg að finna fjölina sína fyrstu
mínútur leiksins því eftir akkúrat
fimm mínútur var staðan 6:5 fyrir
ÍA. Í kjölfarið hristu þó bæði lið af
sér slenið og fóru að hitta af ein
hverju viti úr skotum sínum. Þegar
fyrsta leikhluta lauk voru Skaga
menn með fimm stiga forskot,
25:20, og til alls líklegir. Selfyss
ingar mættu grimmari til leiks í
öðrum leikhluta og náðu að jafna
metin eftir tæpar þrjár mínútur.
Þeir voru síðan með undirtökin
fram að hálfleik, sneru leiknum sér
í hag og leiddu með fimm stigum,
staðan 37:42 fyrir gestina.
Þeir juku síðan við forystuna enn
meira í þriðja leikhluta og staðan
44:53 eftir rúman fimm mínútna
leik. Lítið gekk hjá Skagamönnum
að koma sér inn í leikinn á ný og
þegar flautan gall voru gestirnir í
fínum málum, staðan 50:63 fyrir
Selfossi. Um miðjan fjórða leik
hluta var munurinn tíu stig, 61:71,
og virtist lítið ætla að breytast.
Undir lok leiksins hleyptu heima
menn smá spennu í leikinn þegar
þeir minnkuðu muninn í fimm stig,
74:79, en nær komust þeir ekki og
Selfyssingar héldu þetta út. Síðustu
sjö stig þeirra í leiknum komu öll af
vítalínunni og þeir unnu að lokum
sigur, lokastaðan 79:86 Selfossi í vil.
Marko Jurica var stigahæstur hjá
ÍA með 33 stig, Gabriel Adersteg
var með 18 stig og 10 fráköst og
Lucien Christofis var með 15 stig.
Hjá Selfossi var Gerald Robinson
með 31 stig og 18 fráköst, Kennedy
Aigbogun með 15 stig og Ísak Júl
íus Perdue með 14 stig.
Staðan í deildinni er ansi jöfn því
þó að Álftanes sé langefst með 24
stig eru aðeins átta stig sem skilja
að lið Hamars sem er í öðru sæti
með 18 stig og lið Ármanns, ÍA og
Fjölnis sem eru í 7. til 9. sæti með
tíu stig. Sindri er í þriðja sætinu
með 16 stig, Selfoss í fjórða með 14
stig, Skallagrímur og Hrunamenn
með 12 stig á meðan Þór Akureyri
er langneðst með aðeins 2 stig.
Næsti leikur íA í deildinni verður
á nýju ári á móti Ármanni föstu
daginn 6. janúar í Kennaraháskól
anum í Reykjavík og hefst klukkan
19.15.
vaks
Skallagrímsmenn gerðu sér ferð
norður á föstudaginn og léku gegn
heimamönnum í Þór í 1. deild karla
í körfuknattleik í Höllinni á Akur
eyri. Það var jafnt á öllum tölum í
byrjun leiks en um rúman miðjan
fyrsta leikhluta var staðan orðin
14:22 gestunum í vil. Sá munur
breyttist lítið fram að lokum hans
og staðan 21:27 fyrir Skallagrími.
Um tæpan miðjan annan leik
hluta var Skallagrímur sjö stigum
yfir í leiknum, 30:37, en þá skor
uðu Þórsarar tíu stig í röð og voru
komnir með forystu, staðan 40:37
fyrir Þór. Keith Jordan Jr. átti síðan
síðasta orðið og skotið þegar hann
kom Skallagrími í þriggja stiga for
skot á síðustu sekúndu fyrri hálf
leiks, staðan 44:47 Skallagrími í vil.
Skallagrímur gerði svo nánast út
um leikinn fljótlega í þriðja leik
hluta þegar þeir skoruðu 16 stig í
röð án nokkurs svars frá Þórsurum
sem voru heillum horfnir á þessum
tíma, staðan 48:65 og gestirnir
í afar góðum málum eftir tæpan
fimm mínútna leik. Lítið gekk hjá
heimamönnum að minnka muninn
það sem eftir lifði af leikhlutanum
heldur juku Skallarnir forskotið og
staðan fyrir lokafjórðunginn 59:85
fyrir Skallagrími. Í fjórða leik
hluta höfðu Þórsarar enga trú á því
að snúa leiknum sér í hag sem var
kannski skiljanlegt, Skallagrímur
bætti bara enn meir í og vann að
lokum yfirburðasigur, lokatölur
74:108 Skallagrími í hag.
Keith Jordan Jr. var eins og
undanfarið atkvæðamestur hjá
Skallagrími með 31 stig og 12 frá
köst, Björgvin Hafþór Ríkharðs
son var með 19 stig, 12 fráköst
og 10 stoðsendingar og Milorad
Sedlarevic með 17 stig. Hjá Þór var
Arturo Rodriguez með 23 stig og
þeir Smári Jónsson og Toni Cutuk
voru með 15 stig hvor auk þess sem
Cutuk var með 14 fráköst.
Næsti leikur Skallagríms verður
eftir jólafrí á nýju ári föstudaginn
6. janúar gegn Hrunamönnum á
Flúðum klukkan 19.15. vaks
Skagamenn töpuðu á móti Selfossi
Skagamenn eru komnir í jólafrí. Ljósm. vaks
Skallagrímur með stórsigur á Þór Akureyri
Björgvin Hafþór var öflugur á móti Þór. Ljósm. glh
Arnleifur er genginn til liðs við ÍA.
Ljósm. kfía
Síðasta stelpuboltaæfingin
fyrir jólafrí
Hópurinn stillti sér upp fyrir ljósmyndara og sjáanleg jólastemning í hópnum.