Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 18
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202218
Samvera
er besta
jólagjöfin
Fjölskyldan
saman um jólin
Síðastliðinn laugardag var braut
skráning frá Fjölbrautaskóla
Vestur lands á Akranesi. Alls
útskrifuðust 54 nemendur frá skól
anum af sex námsbrautum. 19
útskriftarnemendur luku burtfarar
prófi í húsasmíði, einn nemandi
lauk bæði burtfararprófi í húsa
smíði og viðbótarnámi til stúdents
prófs. Sjö luku burtfararprófi úr
rafvirkjun, tveir nemandur luku
bæði burtfararprófi í húsasmíði og
viðbótarnámi til stúdentsprófs. 18
luku burtfararprófi af sjúkraliða
braut, einn nemandi lauk burtfarar
prófi úr vélvirkjun og alls átta nem
endur luku stúdentsprófi. Kristinn
Benedikt Gross Hannesson lauk
námi í rafvirkjun með glæsilegum
árangri á öllum sviðum og tók á
móti viðurkenningu frá skólanum.
Tónlistarskóli Akraness, Matth
ías Matthíasson stórsöngvari
og Hallgrímur Ólafsson bæjar
listamaður Akraness fluttu tón
list við athöfnina og fulltrúi
útskriftarnema, Anita Ruebberdt,
nýútskrifaður húsasmiður, hélt
ræðu.
Í ræðu sinni við brautskráninguna
talaði Steinunn Inga Óttarsdóttir
skólameistari m.a. um þrennt sem
hver og einn útskriftarnemandi
gæti gert til að gera heiminn aðeins
betri fyrir okkur öll. Í fyrsta lagi að
skoða hugarfarið, í annan stað að
leggja lóð á vogarskál jafnréttis og
loks að velja sér málefni. „Veljið að
minnsta kosti eitt af þessu þrennu,
þá gerið þið heiminn betri,“ sagði
Steinunn Inga.
Eftirtaldir nemendur fengu
viðurkenningu fyrir góðan náms
árangur og dugnað í námi:
Andri Þór Einarsson, viðurkenn
ing frá Íslandsbanka
Árni Salvar Heimisson, viður
kenning frá Tölvuþjónustunni
Bragi Benteinsson, viðurkenning
frá FVA
Daníel Friðriksson, viðurkenning
frá SF smiðum
Daníel Ingi Ragnarsson, viður
kenning frá Sjóvá
Einar Jóhannes Ingvason, viður
kenning frá SF smiðum
Elín Björg Jónsdóttir, viðurkenn
ing frá Soroptimistaklúbbi Akraness
Grímur Kristinsson, viðurkenning
frá BM Vallá
Hilmar Ásu Hansson Jensen,
viðurkenning frá FVA
Kristinn Benedikt Gross
Hannesson, viðurkenning frá
Verkalýðsfélagi Akraness og Penn
anum Eymundsson
Tómas Beck, viðurkenning frá
Trésmiðjunni Akri.
mm/ Ljósm. fva
Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.
Hlýtt á dagskrána.
Hallgrímur Ólafsson
bæjarlistamaður
skemmti við athöfnina.