Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 74
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202274
vera leiðréttir, alveg eins og börn
læra að tala. Svo er besta leiðin
til að læra tungumál að finna ein
hver falleg lög og detta í það. Það
kunna allir Pólverjar smá íslensku
þegar þeir eru búnir að fá svolítið
vodka,“ segir hann og hlær.
Sjávarútvegurinn
Það má sjá á bloggi Þórðar að hann
hafi ekki átt skap með Granda eftir
að það fyrirtæki sameinaðist Har
aldi Böðvarssyni á Akranesi árið
2004. „Við vorum með stóran
rekstur þegar þetta var og með
allt að 100 manns í vinnu. En svo
verður þessi sameining. En hún
var aldrei sameining, bara fjand
samleg yfirtaka Granda á Haraldi
Böðvarssyni. Það átti enginn séns
eftir þetta, það var allt gert til að
loka öllu á Skaganum sem þeir að
lokum gerðu,“ segir Þórður. „Þá
urðum við að draga saman. Það
er rosalega auðvelt að stýra fyrir
tæki þegar það er að stækka, en það
er mun erfiðara að minnka fyrir
tæki eins og við gengum í gegnum
þarna. Það erfiðasta sem þú getur
lent í er samdráttur og að þurfa
að segja upp fólki.“ Hann segir að
hvaða bjáni sem er geti rekið fyrir
tæki meðan allt sé í uppgangi, en
sauðirnir skiljist frá höfrunum
þegar draga þarf saman.
Góð höfn í Grundarfirði
Þórður dregur ekki fjöður
yfir skoðanir sínar á Hafrann
sóknastofnun. „Við getum
montað okkur af því að Djúpi
klettur hefur, þrátt fyrir hryðju
verkasamtökin sem kalla sig
Hafró, náð því að stækka ár frá ári.
Við vorum með löndun upp á 24
þúsund tonn í fyrra og það voru
langmest aðkomuskip. Höfnin
í Grundarfirði var líka fjórða
stærsta löndunarhöfn landsins á
árinu 2021. Og þrátt fyrir tilraunir
Hafró til að drepa niður sjávarút
veg á Íslandi munum við slá öll
fyrri met í ár,“ segir hann bros
andi. Það er staðreynd að þjón
ustan á höfninni er mjög góð og
höfnin sjálf algerlega frábær. Í dag
leggja menn mesta áherslu á fersk
leika vöru, vera ekki nema 23
daga á sjó og koma fiskinum svo
á áfangastað í hvelli. Þar liggur
Grundarfjörður rosalega vel við,
að mínu mati ein af bestu höfnum
landsins. Þú getur spurt hvaða
skipstjóra sem er. Þarna er skjól í
öllum áttum nema sunnanátt. En
þá er auðvelt að leggja skipinu að
hafnargarðinum sem snýr vel við
vindáttinni. Svo er bryggjan yfir
300 metra löng og yfir 10 metra
djúp. Ég á eitthvað í þessu, það
er búið að stækka höfnina þrisvar
eftir að ég kom í Grundarfjörð,“
segir Þórður. Ég var lengi í bæjar
stjórn og því öllu saman. Allir hafa
metnað fyrir staðnum sem þeir
búa á og Grundarfjörður hefur
verið mér mjög góður. Ég gleðst
yfir að honum gengur vel.“
Sæunn var áhrifavaldur
Atorka Þórðar og áhugi hans á
viðfangsefnum sínum leynir sér
ekki. Það er nærtækast að spyrja
hver hafi haft mest áhrif á hann.
„Sú einstaka manneskja sem hafði
hvað mest áhrif á mig var Sæunn
Axelsdóttir sem lést fyrir stuttu,“
segir Þórður. „Hún var með fyrir
tæki á Ólafsfirði og það var hún
sem kynnti mig fyrir sjávarútvegi.
Mér fannst magnað hvernig fjöl
skylda hafði getað byggt allt upp
frá grunni og ekki verið með neitt
helvítis væl. Ég er sjálfur ekk
ert fyrir væl,“ segir hann ákveðið.
„Svo er það bara þannig að til að
ná árangri í bissness þarftu eigin
lega að vera svolítið heimskur. Þú
ætlar á milli A og B og þú mátt
ekki stoppa. Ef eitthvað er fyrir
þér ýtirðu því til hliðar eða gengur
yfir það. Ég er stundum kallaður
frekja, en til að ná árangri þarf
maður að vera stefnufastur og þá
þýðir ekkert að væla. Ef það er
eitthvað sem kemur upp á er það
líka næstum alltaf manni sjálfum
að kenna,“ segir Þórður.
Białystok
Viðtalið fer fram í myndsíma því
Þórður og Dóra eru stödd á fallegu
heimili sínu í Białystok í norðaustur
Póllandi. Það er heimabær hennar
og þar eru þau í grennd við fjöl
skyldu hennar.
Þórður segir að vorin og haustin
séu yndislegur tími þarna, eins
og sumur verða best á Íslandi.
Á næsta ári hyggjast þau hjónin
byggja sér nýtt hús sem verður
framtíðarheimili þeirra. „Ég vil
gera ráð fyrir því að ég verði fyrsti
karlmaður inn í minni ætt sem nær
að verða eldri en sjötugur og húsið
sem við byggjum á að miðast við
að ég verði hundrað ára gamall,“
segir hann. En synirnir og tvö
barnabörn eru heima á Íslandi.
Finnst ykkur erfitt að vera svona
langt frá þeim? Þórður kveður
fast að orði. „Langt? Það er orðið
dýrara bensínið til Keflavíkur en
flugfargjaldið hingað til Póllands.
Svo þetta er ekki langt.“
Lífið
Að fara í frí er hluti lífsins hjá Þórði
og Dóru þrátt fyrir annríkið og þau
fara gjarnan í golf. Áður fyrr var
Þórður með mikla mótorhjóladellu
og segir í skrifum sínum að það sé
ekki hægt að þroskast frá slíku. En
hann hafi komist út á annan máta.
„Ég kom niður úr prjóni á GSXr
1000 Súkkunni minni á sennilega
rúmlega 200 km hraða og lenti illa.
Lenti á gjörgæslu eftir smá aðstoð
þyrlu. Það var öllu öðru og öllum
öðrum en mér að þakka að ég lifði
þetta af. Starfsfólk Borgarspítala og
síðar á Grensási á allar mínar þakkir,
forsjónin og svo náttúrulega konan.“
Þetta gerðist árið 2012 og Þórður
var um tvö ár að ná sér. En þarna var
mótorhjólaferli hans lokið.
Blaðamaður hefur á orði að
bloggið hans beri þess vott að hann
sé víðlesinn og vel ritfær auk þess
að vera skynsamur maður. „Það
finnst mér líka! Eini gallinn við mig
er að maður er að burðast gegnum
lífið með þessa óverðskulduðu hóg
værð!“ segir Þórður. Það er góður
endir á skemmtilegu samtali.
gj/ Ljósm. úr einkasafni.
Störfin í Vélsmiðju Grundarfjarðar eru krefjandi og margvísleg og gott starfsfólk er lykilatriði.