Skessuhorn - 20.12.2022, Síða 100
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022100
Andrea Ýr Arnarsdóttir bauð sig
fram til setu í sveitarstjórn Hval
fjarðarsveitar í sveitarstjórnar
kosningunum sem haldnar voru
14. maí sl. hvar hún hlaut afger
andi kosningu í fyrsta sæti. Hún
var því fyrsti valkostur sem oddviti
og var síðar kosin í það embætti af
sveitarstjórn. Þetta var í fyrsta sinn
sem Andrea gaf kost á sér í sveit
arstjórnarkosningum en í Hval
fjarðarsveit voru í ár óbundnar
kosningar, eða persónukjör. Með
fram oddvitastarfinu situr Andrea
sem aðalmaður í stjórn Minn
ingarsjóðs Einars Darra – Eitt líf
og vinnur að ýmsum verkefnum
innan sjóðsins sem á persónulegan
stað í hjarta hennar þar sem Einar
Darri er yngri bróðir Andreu.
„Ég segi „er“ en ekki „var“ af því
hann mun aldrei hætta að vera
bróðir minn þótt hann sé látinn.“
Systkinasamband þeirra var og er
einstakt og segir Andrea frá því að
Einar hafi alltaf haft óbilandi trú
á henni og var einkar duglegur
við að stappa í hana stálinu, hvetja
hana áfram og minna hana á að
hafa trú á sjálfri sér.
Hversdagslegar
samverustundir
eru dýrmætastar
Andrea er fædd og uppalin í Reykja
vík en flutti með fjölskyldu sína
í Hvalfjarðarsveit sumarið 2018.
Eiginmaður Andreu er Pétur Freyr
Jóhannesson, húsasmíðameistari
og byggingafræðingur. Saman eiga
þau þrjú börn: Ísabellu Rós 9 ára,
Baltasar Aron 7 ára og Móeyju Báru
1 árs. Þá á Pétur fyrir eina dóttur,
Evu Marín sem er 12 ára.
Fjölskyldan býr í Melahverfi í
Hvalfjarðarsveit. „Það er óhætt
að segja að við búum í drauma
húsinu okkar sem við hönnuðum
og byggðum að miklu leyti sjálf,“
segir Andrea en þau hjónin hafa
bæði mikinn áhuga á hönnun og
listsköpun. Að sögn segist Andrea
hafa verið mikil listakona sem
barn og átti það til að gleyma sér
í alls konar föndri en hún hefur
líka alltaf verið mikil tilfinninga
vera. „Samvera er eitt af því sem
lýsir minni fjölskyldu hvað best.
Við höfum alltaf verið gott teymi
og mjög náin. Mínar uppáhalds
minningar úr æsku eru þess vegna
þessar hversdagslegu samveru
stundir með fjölskyldunni, þar sem
við höfum bæði hlegið og grátið í
bland og spjallað um allt milli
himins og jarðar.“
Fyrstu kynni af
Hvalfjarðarsveit
Andrea hefur átt tengingu við
Hvalfjarðarsveit frá árinu 2007 en
þá fluttu móðir hennar, Bára Tóm
asdóttir, og systkini í sveitina. Árið
eftir, 2008, dvaldi Andrea um tíma
hjá móður sinni og vann þá við leik
skólann Skýjaborg í Hvalfjarðar
sveit og voru það hennar fyrstu
kynni af því að vinna á stofnun sem
heyrir undir sveitarfélagið. Þegar
Andrea flutti svo endanlega í Hval
fjarðarsveit árið 2018 tók hún að
sér formennsku í foreldrafélagi
leik og grunnskólans og sat í þeirri
stjórn í þrjú skólaár. Einnig sat hún
sem áheyrnarfulltrúi í fræðslunefnd
um tíma og fékk þar smjörþefinn af
því hvernig vinna í slíkum nefndum
fer fram.
Hefur áhuga á
mannlegu eðli
Árið 2020 útskrifaðist Andrea frá
Háskólanum á Akureyri með MSc
gráðu í heilbrigðisvísindum með
áherslu á geðheilbrigði en áður
hafði hún lokið BAgráðu í sálfræði.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á mannlegu eðli og þá sérstak
lega hvað varðar geðheilbrigði. Ég
var þó ekki alltaf ákveðin í að taka
þessa stefnu, hvað nám varðar, en ég
ætlaði mér lengi að læra arkítektúr
og útskrifaðist þess vegna sem stúd
ent af Hönnunarbraut við Tækni
skólann,“ segir Andrea. Áhuginn á
hönnun og list hefur þó ekki dalað
og fær listsköpunin að blómstra
í hjáverkum. „Svo er einstaklega
skemmtilegt þegar maður fær tæki
færi til að láta hvorutveggja list
sköpunina og áhugann á mannlegu
eðli njóta sín saman,“ segir Andrea
en hún ásamt fleirum á vegum
Minningarsjóðsins, í samstarfi við
Menntamálastofnun eru að vinna
að gerð fræðsluefnis sem ætlað er
efstu bekkjum í grunnskóla (7. til
10. bekk). Um er að ræða náms
efni í lífsleikni með forvarnargildi.
Þar er farið yfir ýmsa þætti með
fræðslu, umræðum og verkefnum.
Fjallað er um ábyrga lyfjanotkun,
fíkn, geðheilbrigði, sjálfsmynd,
svefn, ofbeldi, heilbrigð bjargráð til
að takast á við reiði, kynheilbrigði,
málefni hinsegin fólks, að setja heil
brigð mörk, þrautseigju og fleira.
Fyrst og síðast elska
ég sveitarfélagið mitt
Fyrstu mánuðina í starfinu segir
Andrea hafa verið gefandi ekki síður
en lærdómsríka og krefjandi. „Það
er mikið að læra inn á og þar sem
ég hef ekki setið í sveitarstjórn áður
þá hefur mikill tími farið í það að
koma mér inn í það hvernig sveit
arstjórnarmál á landsvísu virka, sem
og stjórnsýslan í Hvalfjarðarsveit.“
Þá hjálpar það til að annað sveit
arstjórnarfólk og starfsfólk sveitar
félagsins hefur stutt vel við bakið á
henni. „Það er ómetanlegt að hafa
þetta hæfileikaríka fólk með mér
og gæti ég þetta ekki án þeirra. Svo
eru þau líka öll svo skemmtileg og
það gerir alla vinnu auðveldari,“
segir Andrea og brosir. En af hverju
ákvað hún að gefa kost á sér til setu
í sveitarstjórn? „Fyrst og síðast elska
ég sveitarfélagið mitt og vildi þess
vegna leggja mitt af mörkum til
að vinna í þágu þess. Ég ber mikla
virðingu fyrir þeim sem hafa unnið
sveitarstjórnarstarf í gegnum tíð
ina því það er ekki sjálfgefið að fólk
sé tilbúið að leggja sig fram við að
hlúa að samfélaginu en þannig lít
ég á starf í sveitarstjórn. Við erum
að hlúa að, efla og standa vörð um
sveitarfélagið okkar. Við erum ekki
alltaf sammála um hvernig sé best
að gera það en markmið allra er það
sama,“ segir Andrea og bætir við að
það hafi einnig alltaf blundað í henni
smá áhugi á stjórnmálum almennt.
„Fjölskyldan mín og vinir hafa
alltaf verið viss um að einn daginn
tæki ég þátt í stjórnmálum en ég var
þó ekki endilega sammála því. Það
var kannski helst út af því að þau
átök sem oft einkenna stjórnmál
geta reynst tilfinningarverunni sem
ég er, virkilega erfið.“ Hún lét það
þó ekki stoppa sig og ákvað að gefa
kost á sér eftir mikla hvatningu frá
sínu fólki. „Ég bjóst þó alls ekki við
að fá þá kosningu sem ég svo fékk
og það kom mér virkilega á óvart.
Ég var og er enn full þakklætis fyrir
traustið sem mér hefur verið sýnt,“
segir Andrea.
Fjölbreyttir vinnudagar
Þann 1. júní 2022 tóku gildi nýjar
reglur í Hvalfjarðarsveit er varða
laun sveitarstjórnarfulltrúa og
nefndarmanna. Nú er staða odd
vita t.a.m. metin sem 50% af þing
fararkaupi alþingismanna og sinnir
Andrea því sem aðalstarfi og stefnir
á að gera svo út kjörtímabilið. Hún
vinnur mikið heiman frá sér en er
einnig með skrifstofu til afnota
í stjórnsýsluhúsi sveitarfélags
ins. Hún segir vinnudagana vera
mjög fjölbreytta og einkennast af
fundum, kynningum, ráðstefnum,
símtölum, almennri skipulagsvinnu
og tölvupóstsamskiptum. „Annars
einkennast allir mínir dagar af því
að hugsa um börnin mín, skutla
og sækja, lesa heima, elda kvöld
mat og þar fram eftir götunum –
í góðri samvinnu við betri helm
inginn minn,“ segir Andrea en hún
reynir líka að koma inn hreyfingu
nokkrum sinnum í viku. Þá er það
helst hlaup sem verður fyrir valinu
þar sem hlaup virkar bæði sem
hreyfing og núvitund sem veitir
henni þá ákveðna hugarró.
Hafðu trú á þér
Rætt við Andreu Ýr Arnarsdóttur oddvita Hvalfjarðarsveitar og aðalmann
í stjórn Minningarsjóðs bróður síns, Einars Darra – Eitt líf
Andrea Ýr Arnarsdóttir er oddviti Hvalfjarðarsveitar.
Andrea og Pétur með dóttur sína, Móeyju Báru.
Systkinin Einar Darri, Andrea Ýr og Aníta Rún.