Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 32
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202232
Það sætir tíðindum
Fréttaannáll 2022 í máli og myndum
Mörgum finnst ótrúlegt að komið sé að lokum ársins. Tíminn
hefur vissulega flogið hjá í erli hversdagsins, enda sést það
glöggt á annál Skessuhorns. Svo margt hefur gerst og ógnir
eins og loftslagsvá og stríðsátök eru sannarlega þar á meðal.
En einnig atburðir á heimavettvangi hér á Vesturlandi sem
Skessuhorn hefur vaktað. Ritstjórnarstefna Skessuhorns er
að segja það sem Vestlendingar þurfa og langar að vita. Við
vonum lesandi góður að þér finnist hún hafa verið vel útfærð
á árinu, alla vega hafa blaðamenn gert sitt allra besta til að
upplýsa og segja frá.
Ekki síst varpa ótal persónuleg viðtöl ljósi á líf einstaklinga
í landshlutanum. Þeir eru á svo margan hátt athyglisverðir,
enda er mannlífið fjölbreytt og skemmtilegt og fátt jafn-
ast á við það. Við vitnum í skáldið góða sem sagði okkur
búa við nyrstu voga og að líf okkar væri eilíft kraftaverk.
Lesendur vita nú líklega hver það var en ég læt bara fylgja
með að hann var á sínum tíma eitt ástsælasta skáld Íslands
og verk hans lifa með okkur í dag.
Hér á eftir fer dálítil samantekt af því helsta sem gerðist á
Vesturlandi á árinu 2022 og Skessuhorn fjallaði um. Það er þó
aðeins fátæklegt brot af því gríðarlega efni sem þar birtist.
Kæru lesendur, fyrst og fremst þökkum við ykkur samfylgd-
ina og óskum ykkur velfarnaðar á komandi ári.
Guðrún Jónsdóttir
Kristín kjörin Vestlendingur
ársins 2021
Skessuhorn hefur frá upphafi útgáfu gengist fyrir vali á Vest
lendingi ársins á grundvelli tilnefninga. Í kjöri fyrir árið
2021 voru tugir einstaklinga, en eitt nafn var oftar nefnt en
önnur. Það var nafn Kristínar Þórhallsdóttur dýralæknis
og kraftlyftingakonu í Borgarfirði, sem náði feiknagóðum
árangri á íþróttasviðinu. Hún varð t.d. á árinu Evrópumeist
ari í klassískum lyftingum og setti Evrópumet í hnébeygju.
Þá vann hún til bronsverðlauna á HM í klassískum kraftlyft
ingum svo nokkuð sé nefnt. Kristín var kjörin kraftlyftinga
kona og tilnefnd til Íþróttamanns ársins hér á landi, elsta
kona sem verið hefur í kjöri frá upphafi. Í byrjun desember
fékk Kristín svo silfurverðlaun á Evrópumótinu í klassískum
kraftlyftingum í Póllandi. Hún er sko hvergi nærri hætt.
Fyrsti Vestlendingurinn
Fyrsta barn ársins 2022 á
Vesturlandi var stúlka sem
kom í heiminn á Akra
nesi klukkan 22:16 sunnu
dagskvöldið 2. janúar. Hún
vó 3.390 grömm og var 51
sentimetri að lengd og fékk
nafnið Avróra Mae. For
eldrar hennar eru Neilalin
Mae Angco Gines og Nikita
Kozlov, þá skráð í Borgar
nesi. Fyrir áttu þau 14 mánaða dóttur.
Brák afhent minningargjöf
um Óskar Þór
Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi fékk nálægt áramótum
afar rausnarlega gjöf í minningu Óskars Þórs Óskarssonar á
Tröðum á Mýrum, en hann hafði látist 31. maí 2021 á sjö
tugasta aldursári. Sigurbjörg Helgadóttir ekkja Óskars Þórs,
dætur þeirra og fjölskyldur færðu sveitinni eina milljón króna
að gjöf til styrktar húsbyggingu hennar á Fitjum í Borgarnesi.
„Styrkurinn er kærkominn og erum við þeim innilega þakk
lát,“ sagði Elín Matthildur Kristinsdóttir formaður Brákar í
samtali við Skessuhorn. Því má við þetta bæta að Brák hefur
fengið fjölmargar gjafir á árinu, enda stendur sveitin í stór
ræðum, en í vor var flutt inn í nýja björgunarmiðstöð við
Fitjar í Borgarnesi.
Metár hjá
Grundarfjarðarhöfn 2021
Metafli kom að landi í Grundarfirði árið 2021 eða alls um
23.700 tonn miðað við tæp 18.500 tonn árið 2020. Einnig voru
komur skemmtiferðaskipa 32 talsins en árið áður hafði ekkert
skip komið vegna COVID19. Alls voru bókaðar 68 komur
árið 2021 og féll því rúmur helmingur þeirra út. En Hafsteinn
Garðarsson hafnarstjóri Grundarfjarðarhafnar sagði menn
vera verulega sátta með árið sem hefði gengið afskaplega vel.
Nýr hafnarkantur væri kominn í notkun sem gjörbylti aðstöð
unni, bæði fyrir fiskiskip og skemmtiferðaskip.
Ríkið keypti Mið-Fossa
Á árinu var gengið frá kaupum ríkisins á MiðFossum í Anda
kíl og aðstaða á jörðinni þannig tryggð Landbúnaðarháskóla
Íslands til frambúðar. Skólinn hafði áður leigt aðstöðuna
á MiðFossum í ein 16 ár og nýtt hana til kennslu í hesta
fræðum og reiðmennsku. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor
skólans sagði þetta gleðilegar fréttir sem skólinn hefði stefnt
að allt frá vormánuðum 2019. „Nú opnast ýmis tækifæri fyrir
okkur til uppbyggingar,“ sagði hún. „Það hefur verið mikil
óvissa hjá okkur frá því jörðin var sett á sölu en samstarfið við
fyrrum eigendur hefur ávallt verið mjög gott. Það var alltaf
þessi möguleiki að fjársterkir aðilar myndu kaupa jörðina og
við myndum missa aðstöðuna,“ segir Ragnheiður í samtali við
Skessuhorn.
Bílastæði fyrir göngufólk
á Hafnarfjall
Á fyrstu dögum ársins réðst Vegagerðin í lagfæringar á bíla
stæði við Hafnarfjall við Borgarnes. Voru þær gerðar að
beiðni Ferðafélags Borgarfjarðar sem hafði stikað leiðina
sumarið áður og fór þá einnig langt með að hreinsa í burtu
ónýtar girðingar. „Þá kom fram sú ábending að bílastæðum
við rætur Hafnarfjalls væri ábótavant,“ sagði Gísli Einarsson
forseti Ferðafélagsins í samtali við Skessuhorn. Leitað var til
Vegagerðarinnar og óskað eftir úrbótum. „Vegagerðin féllst
á að öryggi vegfarenda stafaði ógn af ástandi bílastæðisins,
meðal annars vegna þess að hægt væri að aka inn á það á fleiri
en einum stað. Á fyrstu dögum nýs árs var ráðist í að lag
færa planið, með tilliti til öryggissjónarmiða, og á það núna að
standast allar kröfur,“ sagði Gísli. Síðar á árinu var vígt nýtt
upplýsingaskilti við bílastæðið.
Sjötíu ára rekstri Brauðgerðar
Ólafsvíkur hætt
Brauðgerð Ólafsvíkur hætti rekstri á árinu eftir að hafa verið
hluti af fyrirtækjaflóru bæjarins í sjö áratugi; sannkallað hand
verksbakarí, hvort sem átt er við brauð, vínarbrauð, kökur
eða annað. Að sögn Jón Þórs Lúðvíkssonar bakara hafði allt
rekstrarumhverfi versnað mikið og gert smærri bakaríum erfitt
fyrir. Nefndi hann að laun hefðu hækkað og tryggingagjald
og alls kyns álögur gert rekstraraðilum erfitt fyrir. Þá hefðu
aðföng einnig hækkað verulega samhliða því að verslanir væru
orðnar fullar af innfluttum brauðvörum. Jón Þór hafði starfað
í 40 ár í fyrirtækinu og eiginkona hans Bjarney Jörgensen m.a.
sinnt bókhaldi fyrir fyrirtækið. Það var Lúðvík Þórarinsson
faðir Jón Þórs sem stofnaði Brauðgerð Ólafsvíkur árið 1951.
Hugmyndasamkeppni um
Breiðina á Akranesi
Breið þróunarfélag efndi til hugmyndasamkeppni í janúar
mánuði. Var það gert fyrir hönd Brims hf. og Akraneskaup
staðar og var um skipulagningu á Breið á Akranesi, um 16
hektara svæði með ýmsa
möguleika. Valdís Fjölnis
dóttir framkvæmdastjóri hjá
Breið sagði svæðið vera eitt
það fallegasta á Akranesi, þar
væri ekki lengur fiskvinnsla,
þetta væri einstakt svæði og
mikil náttúruperla. Senda átti
inn hugmyndir í samkeppn
inni fyrir lok apríl og þrjár
bestu tillögurnar fengju peningaverðlaun. Það reyndist síðan
vera Arkþing sem sigraði í samkeppninni og var það tilkynnt
í júní.
Verndandi arfgerðin
ARR fundin í sauðfé
Straumhvörf urðu í sauðfjárrækt á Íslandi og baráttunni
við riðuveiki þegar greint var frá því á síðu Ráðgjafarmið
stöðvar landbúnaðarins (RML) að búið væri að finna hina
klassísku verndandi arfgerð (ARR) gegn riðuveiki í sauðfé.