Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 76
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202276
Í hendi blaðamanns er lítil bók en
þykk, með mynd af fallegri lúpínu
breiðu á kápunni. Hér er um að
ræða ferðahandbók Moon Tra
vel Guides útgáfunnar sem starf
rækt hefur verið allt frá árinu 1973.
Efni hennar er Ísland og höfundur
inn er Jenna Gottlieb. Jenna er frá
New York en býr á Akranesi ásamt
manni sínum Birni Lúðvíkssyni.
Fyrsta spurning blaðamanns er
hvernig þau hafi nú kynnst, Jenna
og Björn. Það er saga að segja frá
því, en þau byrja bæði á að nefna
örlagavaldinn sem varð til þess að
þau kynntust. Það er ekki ómerkari
maður en sjálfur David Bowie. Þau
eru bæði einlægir aðdáendur hans
og það varð til þess að leiðir þeirra
lágu saman. Jenna bjó áður í New
York og er þar fædd og uppalin.
Hún er af fjórðu kynslóð borgarbúa
og þekkti ekki annað en lífið í stór
borg. Þar búa tæplega nítján millj
ónir svo Akranes með um átta þús
und íbúa er trauðla sambærilegt á
nokkurn hátt. „Við þekktumst ekk
ert áður en hún kom til Íslands sem
ferðamaður árið 2007,“ segir Björn.
„En hún hafði samband við mig
vegna þess að Keith, sem er breskur
sameiginlegur félagi okkar í aðdá
endaklúbbi Bowie, hafði nefnt við
hana að hún skyldi heyra í mér sem
heimamanni upp á að fá ábendingar
um hvað væri best að skoða.“
Vön að ganga
á gangstétt
Jenna tekur upp þráðinn og segir:
„Ég var þá þrítug og orðin þreytt
á borgarlífinu. Svo ég ákvað að
ferðast eitthvað og var að hugsa
um að fara annað hvort til Prag
eða Íslands. Þá sagði Keith: „Ef þú
ferð til Íslands skaltu hafa samband
við hann Björn.“ Þeir þekktust úr
Bowie aðdáendahópi sem hafði
hist í London. Nei, ég taldi það
nú ekkert nauðsynlegt því ég yrði
bara í viku. En ég hafði samt sam
band við Björn,“ segir hún bros
andi. „Já, og ég keyrði hana eitt
hvað um til að sýna henni landið,
við fórum meðal annars til Víkur,“
segir Björn. Og hvernig leiðsögu
maður var Björn? spyr blaðamaður.
„Hann var mjög góður og ekki síst
svo stoltur af landinu sínu,“ segir
Jenna. „Það var líka mikil upplifun
fyrir mig að koma til Íslands því
ég hafði áður bara ferðast til stór
borga og ekkert komist í tæri við
náttúruna. Ég var ekta borgarbarn,
hafði ekki einu sinni farið í útilegur
eða neitt slíkt. En hér varð ég dol
fallin. Þetta var þvílík andstæða við
líf mitt í New York; ég get ekki enn
skilið hvað þetta er fallegt land. Við
fórum m.a. til Vestfjarða og ég var
alveg heilluð. En sem dæmi um
hvað ég er mikið borgarbarn þá á
ég enn eftir að venjast því að ganga
annars staðar en á gangstétt því ég
þekkti bara það umhverfi. Svo ég er
enn dálítið hrædd við að ganga úti
í náttúrunni,“ segir hún og brosir.
Fylgdi hjartanu og
hlustar á þögnina
Svo fór að Jenna kom aftur til
Íslands árið 2008. Fyrst milli
lenti hún hér á leið í brúðkaup
vinar í London. Þegar þetta var
voru hún og Björn aðeins vinir.
En hana langaði til að sjá meira af
þessu landi. „Ég var alltaf að hugsa
um Ísland,“ segir hún. „Árið 2008
ákvað ég svo að taka mér leyfi frá
störfum, var hér í sex mánuði og
fór í nám í íslensku fyrir útlendinga
í Háskóla Íslands. Það var eins og
Ísland kallaði á mig. Og ég ákvað
að svara! En allir heima töldu mig
galna. Líka ritstjórinn minn.“
Fjölskylda hennar hefur heim
sótt hana og hún segir þau mjög
hrifin af landinu. En þau komi úr
ólíkum heimi. Hún er í góðu sam
bandi við föður sinn og stjúpmóður
auk yngri bróður, þau eru tvö systk
inin. Bróðir hennar hafði þetta að
segja um Ísland: „Vá, þetta er stór
kostlegt. En hvernig geturðu búið
hérna?“ Jenna segir að hún geri sér
grein fyrir að Ísland sé ekki fyrir
alla. „En New York er heldur ekki
fyrir alla,“ segir hún kímin á svip.
Hugðarefni af hæstu gæðum
Rætt við Björn Lúðvíksson og Jennu Gottlieb um ferðamál, tungumál og áhugamál
Björn og Jenna. Að baki þeim myndir af Bowie. Ljósm. gj.
Stíliseruð mynd Halldórs R. Lárussonar
af Bowie, birt með góðfúslegu leyfi.
Í bakgrunni eru heiti laga Bowies
og platna. Fyrst er lag af plötunni
Heathen: The Angels Have Gone. Lagið
byggði hann að hluta til á ljóðaflokkn-
um Fjórum síðustu söngvum eftir
þýska tónskáldið Richard Strauss. Stödd í Botanical Garden í New York.
Bowie veggurinn á Akranesi.