Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 22
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202222
Í dag eru liðnir sex mánuðir frá
því að nýtt bæjarráð Akraneskaup
staðar tók til starfa eftir kosningar
og ég sat minn fyrsta bæjarráðsfund
sem formaður bæjarráðs. Jafnframt
fór fram síðasti bæjarráðsfundur
ársins 2022 síðastliðinn föstudag,
16. desember.
Af þessu tilefni ákvað ég að setj
ast niður og koma nokkrum orðum
niður á blað en mér eru minnis
stæð þau orð margra forvera minna
sem hafa komið að sveitarstjórnar
málum víðs vegar um land að árin
fjögur myndu líða hratt og að ég
ætti ekki að láta mér bregða. Þess
vegna fannst mér upplagt að nýta
þessa sex mánaða vörðu til þess að
segja frá því hvað á daga mína og
okkar í bæjarráði hefur drifið.
Í vikunni sem leið fór fram seinni
umræða um fjárhags og fjár
festingaráætlun Akraneskaupstaðar
en í fjárhagsáætlun ársins 2023 er
gert ráð fyrir að rekstrarafkoma
A hluta bæjarsjóðs verði jákvæð
um rúmar 252 milljónir króna og
að rekstrarafkoma A og B hluta
verði jákvæð um samtals rúmar 142
milljónir króna. Á sama tíma gerir
fjárfestinga og framkvæmdaáætlun
ráð fyrir fjárfestingum upp á rúm
lega 2,5 milljarða króna sem sýnir
glögglega metnað bæjarstjórnar til
að halda áfram uppbyggingu mikil
vægra innviða með það að mark
miði að Akranes verði áfram í
fremstu röð sveitarfélaga í að bjóða
upp á góða þjónustu fyrir íbúa á
öllum aldri.
Staðan er hins vegar sú að efna
hagslíf á Íslandi er í þrengingum.
Verðbólga hefur vaxið, vaxtastig
er hátt og heimilin í landinu finna
sannarlega fyrir verðhækkunum í
sínu daglega lífi. Á milli umræðna
fór fram góð vinna með starfsfólki
á fjármálasviði kaupstaðarins þar
sem skoðuð voru sérstaklega áhrif
lækkunar á álagningarprósentu á
greiðslur úr Jöfnunarsjóði. Eins fór
fram mikil greiningarvinna þar sem
markmiðið var samanburður á milli
sveitarfélaga til þess að átta sig betur
á hvernig staðan væri hér miðað við
í öðrum sveitarfélögum. Bæjar
stjórn samþykkti á fundi sínum
13. desember að koma til móts við
heimili og fyrirtæki á Akranesi með
því að lækka álagningarprósentu
fasteignagjalda, með það að mark
miði að draga úr áhrifum hækk
unar fasteignamats á upphæð fast
eignagjalda. Eftir þá breytingu eru
greiðslur íbúa að hækka í takti við
verðlag almennt, en ekki í takti við
hækkun fasteignaverðs eitt og sér.
Þegar fasteignagjöld eru skoðuð
kemur Akranes mjög vel út saman
borið við önnur svæði á suðvestur
horni landsins og trónir á toppnum
með lægstu fasteignagjöldin.
Allar gjaldskrár koma til með að
hækka um 7% á milli ára en leik
skólagjöld hækka ekkert á milli ára
og sama gildir um gjaldskrá félags
legrar heimaþjónustu. Þannig
hlífum við sérstaklega þeim hópum
sem þiggja og greiða fyrir þessa
þjónustu og fyrir verðhækkunum
sem að öðrum kosti hefðu getað sett
strik í heimilisbókhaldið. Þá hækka
loks niðurgreiðslur til foreldra
barna hjá dagforeldrum. Mánað
arleg niðurgreiðsla er óbreytt 70
þúsund krónur en til viðbótar bæt
ast 35 þúsund krónur þegar barn
hefur náð þeim aldri sem tekinn er
inn á leikskóla ár hvert. Þá minnkar
ósamræmið á milli greiðslna for
eldra barna á leikskólum annars
vegar og dagforeldrum hins vegar.
Ég vil að við höldum áfram að
vinna með þennan málaflokk, við
tilheyrum jú barnvænu og þar með
fjölskylduvænu samfélagi. Ég vil
að við skoðum nánar möguleikann
á sérstökum heimgreiðslum og að
við gætum þess með öllum hætti
að niðurgreiðslan til foreldra barna
hjá dagforeldrum sé endurskoðuð
árlega með það að markmiði að
við endum ekki aftur með stórt bil
á milli þess sem við greiðum niður
og hvað þjónustan kostar.
Talandi um fjölskylduvænt sam
félag að þá hófst á síðasta kjör
tímabili vinna við innleiðingu á sér
stökum frístundastrætó fyrir börn
til notkunar á skólatíma til að auð
velda börnum og ungmennum að
komast á íþróttaæfingar og annað
frístundastarf eftir að skóla lýkur
á daginn. Frístundastrætó hóf að
ganga í október og er ennþá verk
efni í þróun en hann er hugsaður
sem viðbót við núverandi innan
bæjarstrætisvagn og er ætlað að
létta á honum á álagstímum.
Í október einnig voru fartölvur
afhentar nemendum í báðum
grunnskólum í 9. og 10. bekk til
notkunar við námið. Tölvukaup
unum er ætlað að stuðla að aukinni
tæknivæðingu innan veggja skól
anna og gera nemendum kleift að
nýta tölvur við ákveðin verkefni
og í einhverjum tilvikum kynnast
notkun þeirra fyrr en ella.
Það er erfitt að halda lengra án
þess að minnast á húsnæðismálin
sem sannarlega hafa verið okkur
krefjandi. Áfram höfum við glímt
við loftgæðavandamál, afleiðingar
bruna og hafa ófá verkefni hausts
ins verið tengd húsnæðismálunum.
Þessi verkefni hafa sannarlega
minnt okkur á mikilvægi þess að
sinna reglubundnu viðhaldi á okkar
eignum og halda vel á spöðunum í
framkvæmdum sem framundan eru
á húsnæði sem þarfnast lagfæringa.
Ef við snúum okkur að fjár
festinga og framkvæmdaáætlun
næstu ára þá gerir sú áætlun ráð
fyrir fjárfestingum upp á rúm
lega 2,5 milljarða króna sem sýnir
glögglega metnað bæjarstjórnar til
að halda áfram uppbyggingu mikil
vægra innviða með það að mark
miði að Akranes verði áfram í
fremstu röð sveitarfélaga og bjóði
upp á góða þjónustu fyrir íbúa á
öllum aldri.
Stærstu fjárfestingarverkefni
næsta árs eru áframhald upp
byggingar á nýju íþróttahúsi við
Jaðarsbakka og stórfelldar endur
bætur og í raun endurbygging
á hluta húsnæðis Grundaskóla.
Meðal annarra verkefna sem áætluð
eru á næstu árum má nefna endur
bætur á húsnæði Brekkubæjarskóla,
byggingu húsnæðis fyrir áhalda
hús, dósamóttöku og Búkollu og
byggingu á nýjum íbúðakjarna fyrir
fatlaða. Þá ætlum við að byggja
samfélagsmiðstöð þar sem aðstaða
verður fyrir fjölbreytta þjón
ustu á vegum bæjarfélagsins. Þá
má einnig nefna að á næstu árum
verður unnið að verulegum fram
kvæmdum í gatnagerð, en í fjár
festingaáætlun er gert ráð fyrir að á
árinu 2023 verði lagðar nýjar götur
fyrir um 600 milljónir króna og
þeirri gatnagerð svo haldið áfram
af krafti næstu ár þar á eftir.
Akranes er sannarlega samfélag í
sókn en aldrei hefur jafn miklu fjár
magni verið veitt til fjárfestinga og
framkvæmda og við erum hvergi
nærri hætt.
Framundan er einnig stórt verk
efni á nýju ári í umhverfismálum.
Við fáum loks að sjá grenndar
stöðvar í bænum og með breyttri
löggjöf mun íbúum gefast kostur
á því að flokka sinn úrgang í fjóra
flokka við heimilin. Með þessu
erum við að gefa öllum íbúum
nauðsynleg tól til að leggja sitt af
mörkum við að minnka sóun og í
leiðinni sitt kolefnisspor.
Þá eru sannarlega spennandi
verk efni að banka upp á hjá okkur
er snúa að atvinnumálum og mik
ilvægt að við spilum rétt úr þeim
og höldum áfram að kynna græna
iðngarða sem kost fyrir framtíðar
uppbyggingu fyrirtækja. Einnig
er fyrirhuguð sókn í uppbyggingu
atvinnu í samstarfi við þróunar
félögin á Breið og Grundartanga.
Það er í raun efni í heila grein sem
væri gaman að setja saman á nýju
ári.
Á aðeins persónulegri nótum vil
ég þakka mínum samferðamönnum
í bæjarráði og bæjarfulltrúum
öllum í bæjarstjórn ásamt bæjar
stjóra fyrir gott samstarf á undan
förnum mánuðum.
Við erum einnig rík af mannauði
í embættismönnum Akraneskaup
staðar þar sem öflugt starfsfólk
sinnir mikilvægum verkefnum á
hverjum degi og sýnir í mörgum
tilvikum ótrúlega útsjónarsemi í
sínum störfum.
Starf bæjarfulltrúa getur sannar
lega verið krefjandi, mikilvægt er
að skoða öll mál frá hinum ýmsu
hliðum og samtalið við íbúana þarf
að vera virkt.
Ég hef átt samtöl við ófáa íbúa
sem hafa komið að máli við mig
með hin ýmsu mál, hugmyndir og
leiðir til þess að gera góðan bæ
betri og fyrir það er ég mjög þakk
lát. Orð eru til alls fyrst, við erum
að vinna fyrir íbúa bæjarins og ég
hlakka til að gera það áfram! Það
eru spennandi tímar framundan
á Akranesi og við íbúarnir erum
okkar allra bestu talsmenn hvort
sem það er inn á við eða út á við.
Ég óska bæjarbúum öllum gleði
legrar hátíðar og farsældar á nýju ári.
Líf Lárusdóttir.
Höf. er formaður bæjarráðs
Akraneskaupstaðar og
oddviti Sjálfstæðisflokksins.
Slökkvilið Grundarfjarðar og
Grundarfjarðarbær settu upp skautasvell
Í frosthörkunum sem hafa gengið
yfir landið hafa vötn og tjarnir lagt
svo hægt er að fara á skauta og
leika sér. Þá þótti líka tilvalið að
útbúa lítið skautasvell við Grunn
skóla Grundarfjarðar þar sem stutt
er að fara til að renna sér á svell
inu. Slökkvilið Grundarfjarðar fór
á dögunum og lét vatn renna yfir
lítið notað bílaplan nálægt skól
anum og eftir nokkrar umferðir af
vökvun var komið hið prýðilegasta
svell til að renna sér á. Þetta mælt
ist vel fyrir og ekki leið á löngu
þar til glaðir krakkar voru farnir
að leika sér á svellinu.
tfk
Sex mánuðir í starfi formanns bæjarráðs
Akranes er sannarlega samfélag í sókn en aldrei hefur
jafn miklu fjármagni verið veitt til fjárfestinga og
framkvæmda og við erum hvergi nærri hætt
Pennagrein
Þessir kátu krakkar skemmtu sér prýðilega hvort sem þau voru á skautum eða ekki.