Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 20222
Forsetaheimsókn á Akranes 14–15
Brautskráð úr framhaldsskólum 11 og 18
Hvað er það besta við jólin? 24
Hugvekja prests 26
Jólamyndagáta 28
Jólakrossgáta 30
Fréttaannáll 32–45
Kveðjur úr héraði 46–54
Gleðina vantaði og úr því var bætt 56–57
Feigðarför Jóhannesar Helgasonar 58–59
Það er notalegt að hafa frelsið 62–64
Ég er háður því að vera hér 66–68
Sjómaður og harðfisksali 70–71
Hvítir sloppar henta ekki vel 72–74
Hugðarefni af hæstu gæðum 76–78
Svona er Villi Hjörleifs 80–82
Netagerðarmaður í Ólafsvík 84–85
Fólk þarf að viðra vængina til að læra að fljúga 86–88
Jólavísnahorn 89
Bankamaður og þrefaldur Íslandsmeistari 90–91
Hönnun snýst um fólk 92–94
Iddi Biddi og mamma hans í pod– og hláturskasti 95
Íslendingar þurfa að verða svangir 96–97
Það skemmtilega í tilverunni 98–99
„Hafðu trú á þér.“ 100–101
Að veita hversdagsleikanum athygli 102
Hlustar á jólalög allan desember 104–105
Birgir á vit nýrra ævintýra 106–107
Hundrað kindur og örlög Steina í Laxárholti 108–109
Þá mega jólin koma fyrir mér 110–111
Í sjúkraliðanám eftir þrjá áratugi á vinnumarkaði 112
Lítur stoltur til baka yfir ferilinn 114–115
Meðal efnis í
Jólablaði
Skessuhorns
Akraneskaupstaður og Hvalfjarðar
sveit lækka álagsprósentu fast
eignaskatta á íbúðarhúsnæði milli
áranna 2022 og 2023 til að koma
til móts við íbúa vegna mikillar
hækkunar á fasteignamati. Íbúar í
Stykkishólmi munu einnig njóta
prósentulækkunar á næsta ári en í
Helgafellssveit er hækkun miðað
við síðasta ár. Álagningarhlutfallið
verður óbreytt milli ára í Borgar
byggð, Dalabyggð, Grundar
fjarðarbæ, Eyja og Miklaholts
hreppi, Skorradalshreppi og Snæ
fellsbæ. Íbúar þar geta því vænst
hækkunar fasteignagjalda á nýju ári
í ljósi hækkunar fasteignaverðs.
Akranes
Bæjarstjórn Akraness ákvað á
fundi sínum 13. desember síðast
liðinn að lækka álagningarprósentu
íbúðarhúsnæðis á næsta ári. Eftir
þá breytingu eru greiðslur íbúa að
hækka í takti við verðlag almennt,
en ekki í takti við hækkun fast
eignaverðs eitt og sér. Í færslu Sæv
ars Freys Þráinssonar bæjarstjóra
á Akranesi á Facebook í kjölfar
fundarins kemur fram að Akranes
komi afar vel út í samanburði fast
eignagjalda á suðvesturhorni lands
ins þar sem unnið er úr gögnum
frá Byggðastofnun fyrir árið 2022.
Akranes er þar með lægstu fast
eignagjöld sveitarfélaga á þessu
svæði, en tekið er fram að miðað er
við að suðvesturhorn landsins nái
frá Hvítá í Borgarfirði til Hvítár í
Árnessýslu. Einnig er tekið fram
af hálfu Byggðastofnunar að sum
svæði innan viðkomandi sveitar
félaga voru hagstæðari en sveitar
félagið í heild.
Hvalfjarðarsveit og
Stykkishólmur
Hvalfjarðarsveit lækkar álagningar
hlutfall fasteignaskatts í Aflokki
einnig, úr 0,380% af fasteigna
mati yfir í 0,360% á næsta ári.
Auk þess skal tekið fram að
álagningar prósenta nýs sam
einaðs sveitarfélags Stykkishólms
og Helgafellsveitar verður 0,380%
sem er lægra en var í Stykkishólmi
áður, en hærra en var í Helgafells
sveit, (sjá töflu hér neðar).
Fasteignaverð
hefur hækkað
Ljóst er að fasteignamat hefur
hækkað umtalsvert milli ára og
má sem dæmi nefna að fasteigna
mat í Borgarbyggð hækkar á milli
áranna 2022 og 2023 um 17,6% að
meðaltali skv. greinargerð sveitar
stjóra með fjárhagsáætlun. Heildar
mat fasteigna á Íslandi hækkar um
19,9% frá yfirstandandi ári, sam
kvæmt nýju fasteignamati Þjóð
skrár fyrir árið 2023.
Nánar um fasteignaskatt
Fasteignaskattur er annar stærsti
tekjustofn sveitarfélaga og er lagður
árlega á flestar fasteignir í landinu.
Það er svokallaður Askattur sem
er lagður á íbúðarhúsnæði og getur
verið allt að 0,5% af fasteignamati.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts
á Vesturlandi á íbúðahúsnæði árin
2022 og 2023 má sjá hér í saman
burði.
gj
Álagningarprósenta lækkar í þremur
sveitarfélögum en stendur í stað í sex
Álagningarhlutfall fasteignaskatts
á íbúðahúsnæði á Vesturlandi 2022 og 2023
2022 2023
Akraneskaupstaður 0,251% 0,231%
Borgarbyggð 0,350% 0,350%
Dalabyggð 0,500% 0,500%
Eyja og Miklaholtshreppur 0,500% 0,500%
Grundarfjarðarbær 0,500% 0,500%
Helgafellssveit 0,360%
Hvalfjarðarsveit 0,380% 0,360%
Skorradalshreppur 0,450% 0,450%
Snæfellsbær 0,440% 0,440%
Stykkishólmur/Helgafellssveit 0,420% 0,380%
Húseignir á Akranesi í skammdegissólinni þessa dagana. Ljósm. gj.