Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 99
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 99
leiðir og það liðu nokkur ár þar
til þau hittust aftur og ákváðu þá
að taka saman. Í millitíðinni hafði
Hulda eignast litla dóttur, Bryndísi.
Ekkert að marka út
af inniskónum
Hulda segir svo frá um þessi
straumhvörf: „Við Soffi tókum
saman eftir að hafa hist aftur árið
1959. Þá giftum við okkur og ég
flutti hingað í Grundarfjörð, Bryn
dís var þá þriggja ára. Brúðkaup
okkar Soffa fór fram í Kópavogi
um hávetur, 4. febrúar. Það var sr.
Árelíus Níelsson sem gifti okkur og
veisluhöld voru engin. En frænka
mín og sambýlismaður hennar
voru svaramenn.“ Hulda brosir
við tilhugsunina. „Við vorum
gift heima í stofu hjá sr. Árelíusi
og konan hans spilaði á gítar og
söng. Svo var farið á veitingastað
inn Naustið og þar voru svara
mennirnir einu veislugestirnir.
Löngu seinna vorum við hjónin
eitthvað að grínast með þetta og
þá sagði Soffi: „Tókstu eftir því að
karlinn var á inniskónum?“ Nei ég
hafði nú ekkert tekið eftir því. En
sr. Árilíus hafði verið á inniskónum.
Ja, nú verð ég bara að fara að hugsa
allt upp á nýtt, hugsaði ég, það er
kannski bara ekkert að marka þessa
giftingu fyrst presturinn var á inni
skónum. Hann hlýtur að hafa átt
einhverja spariskó en var ekki í
þeim. En hjónabandið dugði vel
engu að síður,“ segir hún brosandi.
Svo var haldið heim í Grundar
fjörð. „Ég man að við vorum dálítið
öfunduð þegar við komum því
við áttum Fíat bifreið. Ég hafði
samt ekkert vit á því, pældi aldrei
í bílum, enda voru engir bílar í
Hrísey og ég hafði bara farið einu
sinni til Reykjavíkur þar sem ég var
í hálft ár í vist.“
Heimferðin gekk ekki hnökralaust
enda hávetur og allra veðra von.
„Þetta var 6. febrúar og leiðinda
veður. Svo þegar við fórum niður
Kerlingaskarðið var ég nærri farin
að gráta því ég var svo hrædd. En þá
sat Bryndís aftur í með lítinn gítar
og sagði; „mamma þú þarft ekki að
vera hrædd, ég skal spila fyrir þig!“
Svo það lagaðist náttúrulega allt
strax við það,“ segir Hulda. Þau Soffi
áttu saman þrjú börn til viðbótar,
Magnús, Kristínu og Sóleyju. Þau
eru öll búsett í Grundar firði nema
Bryndís sem býr í Svíþjóð.
Veikindi steðja að
Hvað voruð þið Soffi saman lengi?
„Hann dó árið 1999. Ég trúi því
varla að það séu komin 23 ár síðan
hann fór. Hann dó úr krabbameini
í beinmerg og þjáðist mikið, þetta
tók í allt um tvö ár og ég var nánast
allan þann tíma á Akranesi því hann
lá á sjúkrahúsinu þar. Svo voru
börnin okkar þar líka til skiptis.
Soffi var orðinn blindur undir það
síðasta en heyrnin var það sem
hann hélt hvað lengst. Ég var þarna
og hélt í hendina á honum. Kom
tvisvar á dag og alltaf á sama tíma
og líklega fékk hann verkjalyf áður
en ég kom. En það dugði alls ekki
til.“
Þetta tók verulega á og Hulda
gerði sér eiginlega ekki grein fyrir
því hvað hún var orðin þreytt að
leiðarlokum og var lengi að ná
sér. „Ég ætla rétt að vona að þetta
sé breytt núna og auðveldara að
verkjastilla fólk,“ segir hún.
Sumarfrí eftir
fimmtán ár
„Soffi var nýhættur að vinna þegar
þetta var og var bara 74 ára. Við ætl
uðum einmitt að fara að njóta lífs
ins saman. Hann hafði alltaf unnið
gríðarlega mikið og hafði ekki
farið í sumarfrí í fimmtán ár þegar
hann loksins leyfði sér slíkt. Hver
heldurðu að geri svoleiðis í dag?
Enginn!,“ segir Hulda ákveðin.
„Við vorum búin að vera gift í
fimmtán ár þegar við fórum fyrst
í sumarfrí og það var bara vegna
þess að ég hótaði honum öllu illu ef
hann ekki kæmi og sagði; „allt í lagi
Soffi minn, ef þú mátt ekki vera að
því að koma með fer ég bara ein.“
En hann vildi það nú ekki. Svo við
fórum til Mallorca.“
Gott að vera í fríi
En hugarfar Soffa breyttist við að
upplifa sólina og fríið, segir Hulda.
„Fyrst þegar við komum út fannst
honum molla og hiti og vildi fara
heim með næstu vél. En ég hafði
pantað þrjár vikur sem honum
fannst að yrði allt of langt. „Hálfur
mánuður væri nú nóg,“ sagði Soffi.
En svo þegar fólk sem var með
okkur fór að búa sig til heimferðar
eftir hálfan mánuð klappaði hann
á öxlina á mér og sagði: „Hulda
mín, ég er nú bara eiginlega mjög
sáttur við að þú skulir ekki hafa
pantað hálfan mánuð.“ Hulda segir
að þau hafi ferðast mikið eftir að
þau gátu farið að leyfa sér að fara
í frí, meðal annars með góðum
félögum í Ferðaklúbbnum Eddu.
Henni hafði ekki fundist hún hafa
nóg að gera eftir að róðurinn létt
ist á heimilinu og opnaði verslun.
En hún hafði góða aðstoð þar og
gat skipulagt sig til að komast burt.
„Við fórum líka í einar níu heims
reisur með Ingólfi Guðbrandssyni
sem var frábær skipuleggjandi, það
komst enginn með tærnar þar sem
hann var með hælana á því sviði,“
segir hún.
Enginn lífeyrissjóður
Það hefur ekki verið mikið um það
að Hulda hafi fengið greidd form
leg laun fyrir vinnu sína. „Þegar ég
vann í frystihúsinu heima í Hrísey
eitt sumar fékk ég launaumslag,
en síðar vann ég mest hjá mínum
manni og þar voru nú ekki launa
umslögin. En það var engu að síður
mikil vinna. Ég sat t.d. stundum
hérna í tröppunum heima hjá mér
ásamt samstarfskonu og við töldum
í launaumslögin. Svo voru alltaf
menn sem komu í mat og stundum
með skömmum fyrirvara. Það voru
engir veitingastaðir hérna og ein
hvers staðar urðu menn að borða ef
þeir voru á ferðinni. Þetta og heim
ilið var vinnan mín. Svo ég borg
aði aldrei neitt í lífeyrissjóð. Svo
þegar minn maður dó, þá fékk ég
alveg heilar 77 þúsund krónur, takk
fyrir.“ Soffi hafði greitt í lífeyris
sjóð atvinnurekenda, sem reyndist
ekki vera til lengur þegar á reyndi.
Tískan óþekkt hugtak
Þegar fram liðu stundir voru Hulda
og Soffi orðin betur stæð en margir
í plássinu. Hulda segir það ekki
hafa verið alfarið auðvelt vegna
umtals í bænum. Þau þóttu öðru
vísi. „Það lenti svolítið á krökk
unum sem var strítt út af þessu.
Jú, vissulega áttum við peninga, en
við höfðum líka unnið mikið, farið
vel með og keyptum aldrei neitt
nema að eiga fyrir því. Er það ekki
einmitt út af slíku sem fólk eign
ast eitthvað? Þó það reyki þrjár
sígarettur á dag eða eitthvað svo
leiðis,“ segir hún hlæjandi og á
þar við sjálfa sig. „Ég veit t.d. ekk
ert hvað tíska er og hef aldrei fylgt
henni, ég fer bara í eitthvað sem
mér finnst fallegt og kemur ekkert
við þótt ég sé þá öðruvísi en aðrir.“
Uppgötvun á Siglufirði
Hulda segist aldrei hafa haft neitt af
Vilmundi blóðföður sínum að segja
og slíkt getur orsakað óvænt atvik.
„Hann átti fjögur börn í lausaleik
áður en hann giftist og var ábyggi
lega sprellfjörugur karl. Hann var
sjómaður og var t.d. á togaranum
Agli Rauða þegar hann fórst hér
við Snæfellsnes í ársbyrjun 1955
og var einn þeirra sem bjargaðist,“
segir Hulda.
En svo gerðist svolítið skrýtið.
„Þegar ég var í síldinni á Siglu
firði fyrir tvítugt kynntist ég stúlku
sem var á sama ári og ég og við
urðum góðar vinkonur. Hún hét
Erna. Þarna var líka maður sem
heitir Björgvin Jónsson sem síðar
varð maður Ernu. Honum fannst
við eitthvað keimlíkar og sagði við
okkur eitt sinn: „Það kæmi mér
bara ekki á óvart þótt þið væruð
hálfsystur.“ Við komum af fjöllum,
en vorum þó báðar skrifaðar Vil
mundardætur. Svo kom það nátt
úrulega í ljós að við vorum hálf
systur. Mér hafði ekki komið þetta
til hugar,“ segir Hulda. „Svo átti
ég líka tvo bræður, tvíbura sem
ég kynntist löngu seinna og vissi
heldur ekkert af þeim. Annar þeirra
var á olíuflutningaskipi sem kom
hingað og sagði mér þá frá því að
við værum systkini.“ Aðspurð hvort
hún telji að hún sé lík þessum týnda
föður sínum segir hún: „Þetta var
léttur og skemmtilegur karl held
ég en ég þekkti hann svo sem ekk
ert. En ég reyni alltaf að sjá það
skemmtilega í tilverunni.“
Að koma í Grundarfjörð
Ég áræði að spyrja hvernig henni
hafi fundist að koma inn í sam
félagið í Grundarfirði á sínum
tíma. „Það tók tíma, ég var eigin
lega svarti sauðurinn, það sagði sig
sjálft, manneskja sem átti barn og
svo reykti ég og drakk. Aumingja
Soffi minn þurfti að ganga í
gegnum þetta,“ segir Hulda. „Ég
var líka tólf árum yngri en Soffi. En
þó það væri um okkur talað þótt
ist maður bara hvorki sjá né heyra.
Mér var alveg sama þótt fólk segði
af okkur ósannar sögur. Við áttum
að vera svo rík, en unnum samt
eins og skepnur. Við byggðum t.d.
þetta hús hér 1964 en fluttum inn í
það alveg óklárað. Soffi var heldur
ekki alinn upp við ríkidæmi. Pabbi
hans drukknaði á vertíð frá fimm
börnum, það var skotið á skipið
þegar það var að fara út úr Reykja
víkurhöfn og hann var úti á dekki
að beita.“
Hulda segir að lífið hafi gefið sér
þykkan skráp. „Svo ég kippi mér
ekki upp við hluti. Ég var utanað
komandi og var öðruvísi en þeir
sem hér bjuggu. En það er kostur
samt að hér er enginn sérstaklega
háttsettur. Svo þó þetta hafi verið
á margan hátt erfitt var þetta samt
gott samfélag að koma í,“ segir
Hulda. Hún tók fljótlega dyggan
þátt í mannlífinu á staðnum. „Ég
var í öllu, t.d. í Kvenfélaginu,
Lions klúbbnum og félagi eldri
borgara og ég var fyrsti formaður
björgunar sveitarinnar. Ég gekk
í Kvenfélagið strax í september
árið 1961 að ráðum tengdamóður
minnar. Gegnum það kynntist
ég konum eins og Möggu í Dals
mynni. Það var stórkostleg kona og
við brölluðum margt saman, leikrit
og hvað eina,“ segir hún með hlýju
í röddinni.
Frelsið
Afrakstur ævistarfs Huldu og Soffa,
fyrirtækið Soffanías Cecilsson hf.
var selt til FISK Seafood ehf. fyrir
nokkrum árum. Lofað var að starf
semin yrði áfram í Grundarfirði.
Hulda skiptir sér ekki af. En lífið
er frjálsara og nú getur hún gert
það sem hún kýs. Hún nýtur lífs
ins samt mest heima við og notar
stundaglös til að sitja ekki of lengi
kyrr. „Annars stirðnar maður,“
segir hún. „Þetta hefur reynst mér
vel.“ Hana vantar ekki ákveðnar
skoðanir, svo sem um mikil
vægi iðnmenntunar. „Það þarf að
mennta fólk til að skapa raunveru
leg verðmæti,“ segir hún. „Það er
fínt að fólk sé langskólagengið á
bókina, en við þurfum samt ekki
voðalega marga þannig. Frekar
fólk sem skapar bein verðmæti fyrir
þjóðina.“
Að lokum stend ég upp og sé þá
að það liggur hálfsaumað útsaums
stykki á stól við hlið hennar. Hvort
ég hafi tafið hana frá verkinu? Hún
er snögg til svars og segir glettin:
„Tafið mig? Þú bara rétt ræður
hvort þú verður þess valdandi að ég
geti ekki klárað þetta!“ Svo förum
við út að borða saman á Kaffi 59.
„Það er boðið upp á sperðla þar í
dag,“ segir Hulda.
gj/ Ljósm. gj og úr einkasafni
Nýleg mynd af Brekku í Hrísey. Ljósm. úr einkasafni, birt með góðfúslegu leyfi
eigenda hússins í dag.
Útsaumur eftir Huldu.
Ferðir Huldu og Soffa merktar inn á kort. Ljósm. gj.
Hulda og Soffi uppábúin. Upphlutinn saumaði Hulda sjálf.