Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 11
Óskum Vestlendingum
gleðilegra jóla.
Megi nýtt ár færa
ykkur jöfnuð og
réttlæti.
Samfélag velsældar og tækifæra er þegar við öll njótum!
Föstudaginn 16. desember braut
skráðust ellefu nemendur frá Fjöl
brautaskóla Snæfellinga í Grundar
firði. Af félags og hugvísinda
braut brautskráðust fjórir nem
endur; Bjartur Bjarmi Barkar
son, Dominika Borkowska, Guð
mundur Óli Hafþórsson og Gunn
laugur Páll Einarsson. Af náttúru
og raunvísinda braut brautskráðust
þau Íris Birta Bergmann Heiðars
dóttir og Símon Andri Sævarsson
Walter. Af opinni braut til stúd
entsprófs brautskráðust fimm nem
endur; Atli Ágúst Hermannsson,
Kolbrún Júlía Erlendsdóttir, María
Líf Flosadóttir, Vaka Þorsteins
dóttir og Þorvaldur Guðmunds
son. Með hæstu meðaleinkunn við
útskrift nú var Íris Birta Bergmann
Heiðarsdóttir.
Í útskriftarræðu Hrafnhildar
Hallvarðsdóttur skólameistara kom
m.a. fram að á haustönn voru 214
nemendur skráðir í nám við FSN.
Af þeim voru 116 nemendur í fjar
námi og 98 í staðnámi. Rifjaði hún
upp sögu skólans, en það var árið
2003 sem menntamálaráðuneytið
greindi frá undirritun samnings um
nýjan framhaldsskóla í Grundar
firði. Þar kom fram að í Fjöl
brautaskóla Snæfellinga hafi verið
þróuð ný hugsun í kennsluháttum,
skipulagi skólastarfs og skólahús
næði. „Þessi nýi skóli gaf vissu
lega tækifæri til mikilla breytinga
og innleiðingar á nýjum kennslu
háttum. Nú hefur skólinn starfað
í nær tvo áratugi en er samt enn
frekar ungur, miðað við marga
aðra skóla á sama skólastigi,“ sagði
Hrafnhildur.
„Skólinn var óskabarn sam
félaganna sem að honum stóðu og
við sem höfum verið með í þessu
verk efni frá upphafi höfum séð
hvað skólinn hefur haft mikil áhrif
á sveitarfélögin á Snæfellsnesi og
á sunnanverðum Vestfjörðum.
Ég vona að ég þreytist aldrei á
því að minna á að það er byggða
stefna að hafa skóla á landsbyggð
inni og það eru mikil forréttindi að
geta haft börn heima í framhalds
námi. Við höfum síðan séð áhrifin
af því að nemendur FSN sem eru
heima fram til tvítugs skjóta sterk
ari rótum í heimabyggð og eru lík
legri til að koma heim aftur eftir
að framhaldsnámi er lokið,“ sagði
skólameistarinn í ávarpi sínu.
Að loknu ávarpi og útskrift skóla
meistara veitti Sólrún Guðjóns
dóttir aðstoðarskólameistari viður
kenningar fyrir góðan náms
árangur sem eru gefnar af sveitar
félögum á norðanverðu Snæ
fellsnesi og sunnanverðum Vest
fjörðum, Danska sendiráðinu
á Íslandi, Íslenska Stærðfræða
félaginu, Háskóla Reykjavíkur,
Arion banka, Landsbankanum
og Soffanías Cecilsson hf. Þiðrik
Örn Viðars son íslenskukennari var
kynnir útskriftar, Áslaug Sigvalda
dóttir myndlistar og raungreina
kennari flutti kveðjuræðu fyrir
hönd starfsfólks og Ísak Hilmars
son 15 ára stúdent flutti ræðu á raf
rænu formi. Kolbrún Júlía Erlends
dóttir nýstúdent flutti ræðu fyrir
hönd stúdenta.
Því má bæta við að á útskriftar
daginn barst skólanum gjafabréf frá
Lionsklúbbi Stykkishólms en gjafa
bréfið hljóðar upp á 600 þúsund
krónur til tækjakaupa.
mm/ Ljósm. sá
Ellefu brautskráðir frá FSN í Grundarfirði
Útskriftarhópurinn framan við skólann og við nýja listaverkið sem þau Olena Sheptytiska og Mykola Kravets frá Úkraínu
gerðu. Þau eru nú búsett í Grundarfirði.
Íris Birta Bergmann Heiðarsdóttir útskrifaðist með hæstu einkunn nemenda.