Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 97
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 97
Fljótari að koma
frá Spáni
Við tók furðuleg atburðarás. Þetta
hafði tekið tíma því læknirinn í
Búðardal vissi ekki alveg hvað hann
átti að gera. Hann hafði samband
við bæklunarlækni í Reykjavík sem
ráðlagði að hreinsa sárið vel og
binda utan um þetta, það dygði því
táin var ekki brotin. Með þetta fór
Steini heim og var settur á vægan
sýklalyfjaskammt. En honum leið æ
verr í fætinum þegar fram í sótti svo
þau ákváðu að fara suður á bráða
móttökuna. Þórey segir að þá hafi
tekið við einkennilegur tími og svo
langur að mamma hennar var í raun
fljótari að koma heim úr fríi á Spáni
til aðstoðar með börnin en Steini
að fá úrlausn sinna mála. Þetta var
á þriðjudegi og það var ekki fyrr en
síðla fimmtudagskvölds sem Steini
komst í aðgerð sem reyndist bráð
nauðsynleg, það var komin slæm
sýking í sárið og fóturinn í hættu.
Ónei
„Eftir á að hyggja þá gat ekkert annað
gerst en að það kæmi sýking í þetta,“
segir Steini. „Kúlan í byssunni var
náttúrulega ósótthreinsuð. Svo fór
hún gegnum byssuna sem heldur var
ekki sótthreinsuð, gegnum hausinn
á hrútnum og skó og sokka.“ Blaða
maður spyr hvort þetta hafi verið
mestu erfiðleikarnir í þeirra samveru
og búskap á Leiðólfsstöðum II. Þau
hlægja bæði: „Ónei!“ Það er greini
lega af nógu að taka.
Íslenskur landbúnaður
Steini hefur ákveðnar skoðanir á
íslenskum landbúnaði og talar af
reynslu og þekkingu. Hann segist
hafa miklar áhyggjur af minnkandi
sauðfjárbúskap í Dölum. „Mat
vælaframleiðsla er þjóðinni gríðar
lega mikilvæg og við megum ekki
minnka hana meira, hvort sem er í
kjöt og mjólkurframleiðslu,“ segir
hann með alvöru. „Því miður segi
ég að stjórnvöld og fólk almennt
fatti ekki hvað er að gerast og þetta
á bara eftir að versna. Það eru svo
margir hættir búskap og smala
mennskur eru orðnar mjög erfiðar.
Ég held að Íslendingar þyrftu fyrst
að verða svangir einu sinni til að
meta það sem bændur eru að gera.
Fólk er komið svo langt frá raun
veruleikanum og skilur ekki að
fæðuöryggi landsins er ekki sjálf
sagt. Það heldur bara að allt sé í
lagi og maturinn muni alltaf fást
úti í búð. En við þurfum að rækta
sem mest hér heima. Ef sam
göngur hingað lokast af einhverjum
ástæðum þurfum við að geta séð
um okkur sjálf.“
Lagast eftir tíu ár
Þórey er manni sínum sammála
og bendir á að samstaða meðal
bænda megi vera betri og ekki eigi
að aðskilja einstakar búgreinar í
því sambandi, þetta sé allt mat
vælaframleiðsla. Meðal þess sem
berst í tal varðandi aðbúnað bænda
eru rafmagnsmálin. Það er ekki
heitt vatn í Laxárdal, en þau fá raf
magn niðurgreitt. Það er samt stór
mánaðarlegur kostnaðarliður fyrir
kúabú. En þau eru loks komin með
þriggja fasa rafmagn svo tækin á
bænum hættu í það minnsta að
skemmast. En þá varð til annað
vandamál; flutningslína rafmagns
um Skógarströnd er afar ótraust og
þau hafa aldrei áður orðið jafn oft
rafmagnslaus. Þeim er sagt að þetta
muni standa til bóta, en það gerist
ekki fyrr en eftir nokkur ár. Fleiri
aðilar, eins og t.d. Mjólkurstöðin,
eiga við sama vandamál að stríða og
þetta er mikilvægt byggðamál.
Það þarf að
bjóða þessa vöru
Steini telur mikið vanta upp á
nægilega kynningu á lambakjöti
hér heima og skilur ekki af hverju
verið er að flytja það út í svo
miklum mæli meðan hægt væri að
kynna það betur fyrir þeim tveimur
milljónum ferðamanna sem sækja
landið árlega heim. „Af hverju
fáum við ekki ferðafólkið okkar til
að smakka íslenska lambakjötið?
Þó við fengjum bara 500 þúsund
manns til að kaupa sér eina mál
tíð væri það gríðarlegt magn. Svo
skiptir máli að fá kjötið í slátur
húsið á réttum tíma líka, beint
af fjalli og beint í hús. Það vantar
svolítið fagmennsku og metnað
í þetta. Þó geta bændur ekki bara
bent á aðra, þeir þurfa líka að gera
sitt. Við eigum svo góðar vörur og
mikil tækifæri sem við erum ekki
að nota. Svo flytjum við ólíkleg
ustu hluti inn. Það kemur t.d. ísbíll
hingað heim á hlað. Heim á hlað
hjá kúabónda? Með erlendan ís?
Svo flytjum við meira að segja inn
klaka til Íslands!“
Snobbið í Íslendingum
Álagið er að sönnu mikið í
búskapnum og Steini og Þórey
segja að þegar þau fari í frí ráð
ist það allt af afleysingu, í búskap
er ekki um neina lögbundna frí
daga að ræða. Þau fóru þó eitt sinn
til Spánar, og Steini segir það hafa
verið áhugavert. „Þá sá maður auð
lindina sem við eigum. Á Spáni
er hver einasti fermetri nýttur til
ræktunar eða bygginga, en hér
höfum við allt þetta pláss,“ segir
Steini og hitnar í hamsi. „En gall
inn er að snobbið er allt of mikið
í Íslendingum, enginn vill vinna í
fiski og í sláturhúsunum lengur, en
áður voru sláturhúsin félagsmið
stöðvarnar okkar á haustin. Það
virðist vanta peninga út um allt. En
hvernig fórum við að þessu áður
fyrr? Við byggðum sjúkrahús og
lögðum vegi þegar við lifðum fyrst
og fremst af landbúnaði og sjávar
útvegi. Það eru allt of fáar hendur
núna sem taka peningana!“
Blaðamaður fer nú að tygja sig,
enda búinn að tefja þau nóg frá
verkunum. Lokaorð Steina eru
vel valin og á léttari nótunum.
„Ég held það sé mikilvægt að gera
gaman úr hlutunum, gera grín og
hafa gaman af þessu.“
gj/ Ljósm aðsendar.
Árgerð 2021, ekinn 41 þ. km, dísil, 1598 cc, 136 hö, sjálfskiptur,
fjórhjóladrifinn, dráttarbeisli.
Kia Sportage Mild Hybrid Black Edition
997063
Staðgreiðsluverð
5.390.000 kr. 44.568 kr.Afborgun
á mánuði*
*m.v. 50% fjármögnunarhlutfall til 84 mánaða með 8,50% vöxtum. Heildarkostnaður: 6.435.390 kr. Árleg hlutfallstala kostnaðar 10,34%
590 2160
notadir.is
VETRAR- &
SUMARDEKK FYLGJA
AUK DRÁTTARBEISLIS
Yngri systkinin gleðjast yfir nýfæddum lömbum.
Unnsteinn og Þórir Fannar.
Lífið í sveitinni. Aðalheiður er vinstra megin á myndinni og Steini og Þórir Fannar
fjær; stundum þarf að skríða til að komast í nánd við folald.