Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 6
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 20226
Næsta blað
SKESSUHORN: Jólablað
Skessuhorns er síðasta blað
ársins 2022. Fyrsta blað á nýju
ári kemur út miðvikudaginn 4.
janúar. Starfsfólk verður í fríi
til 27. desember. Frá og með
miðvikudeginum 28. desem
ber verður skrifstofa Skessu
horns opin á virkum dögum.
-mm
Keyrt á kálf
BORGARFJ: Rétt eftir mið
nætti á þriðjudag í liðinni
viku var ökumaður ásamt
þremur farþegum að aka á
Hálsasveitar vegi þegar hann
varð fyrir því óhappi að keyra
á kálf í niðamyrkri. Ökumað
urinn reyndi að stíga á brems
una og sveigja frá en kálfur
inn lenti á bílnum sem fór út
af veginum. Haft var samband
við bóndann en þegar lög
regla kom á vettvang var búið
að aflífa kálfinn. Ökumanni og
farþegum var boðið í kaffi hjá
bóndanum enda öll í áfalli en
ökumaður og farþegar sluppu
öll ómeidd. -vaks
Ók á barn
AKRANES: Um miðjan
dag síðastliðinn miðviku
dag var ekið á tíu ára gamalt
barn á Stillholti við gatnamót
Kirkjubrautar og Kalmans
brautar á Akranesi. Ökumaður
var að beygja til hægri á Still
holt þegar í sömu andrá hljóp
hópur barna yfir götuna og
lenti bifreiðin á einu barninu.
Það var flutt á HVE til
skoðunar vegna eymsla. Málið
er í rannsókn og óskar lög
reglan eftir að ná tali af öku
manninum sem var á svörtum
bíl og einnig leitar hún að
vitnum að atburðinum. -vaks
Ók út í skurð
HVALFJ.SV: Síðasta föstu
dagskvöld rétt fyrir miðnætti
var hringt í Neyðarlínuna og
tilkynnt um að bifreið hefði
verið ekið út af Akrafjalls
vegi og hún lent ofan í skurði.
Mikil hálka og skafrenningur
var á veginum. Þegar lögregla
kom á staðinn voru ökumaður
og farþegi í áfalli og fundu til
eymsla eftir óhappið. Þeir fóru
með sjúkrabifreið á HVE til
nánari skoðunar en bifreiðin
var fjarlægð af vettvangi með
kranabíl. -vaks
Ók inn í hliðina
á öðrum bíl
SNÆFELLSN: Seinni
part síðasta sunnudags varð
umferðaróhapp á Snæfellsnes
vegi á móts við YstuGarða
þegar ökumaður jeppa ók inn
í hliðina á öðrum bíl sömu
gerðar. Þrír farþegar meidd
ust við áreksturinn og voru
fluttir á HVE til aðhlynningar
en báðir bílarnir skemmdust
nokkuð. -vaks
Minni vanskil
LANDIÐ: Vanskil heimila og
fyrirtækja hjá stóru viðskipta
bönkunum þremur eru nú
lægri en fyrir heimsfaraldur
inn. Þetta kemur fram í tölum
Seðlabanka Íslands. Þannig
voru 0,7% lána heimila í van
skilum í september á þessu
árið samanborið við 0,9% um
áramót og í september í fyrra.
Um 2,4% lána fyrir tækja voru
í vanskilum í lok september á
þessu ári en hlutfallið var 3,4%
um áramót og 4,2% í septem
ber í fyrra. -mm
Frítekjumark
öryrkja hækkað í
200 þúsund
LANDIÐ: Frumvarp Guð
mundar Inga Guðbrandssonar,
félags og vinnumarkaðs
ráðherra, um hækkun frítekju
marks örorku og endurhæf
ingarlífeyrisþega hefur verið
samþykkt á Alþingi. Frítekju
markið nær tvöfaldast og
fer úr tæpum 110.000 kr. á
mánuði og upp í 200.000 kr.
á mánuði eða 2,4 milljónir
króna á ári. Um er að ræða
fyrstu hækkun á frítekjumark
inu frá árinu 2009, eða í tæp
14 ár. Breytingarnar taka gildi
strax 1. janúar næstkomandi.
„Hækkunin markar vatnaskil.
Þetta er auk þess gríðarlega
mikilvægur áfangi í að endur
skoða í heild sinni örorku
lífeyriskerfið á Íslandi. Því
kerfi vil ég og ætla að ná að
umbylta,“ segir Guðmundur
Ingi Guðbrandsson. -mm
Fjárhagsáætlun Akraneskaup
staðar fyrir árið 2023 og þriggja ára
áætlun 2024 til 2026 var samþykkt
á fundi bæjarstjórnar Akraness
þriðjudaginn 13. desember síðast
liðinn. Einnig var fjárfestinga og
framkvæmdaáætlun samþykkt.
Rekstrarafkoma Akraneskaup
staðar á árinu 2022 er áætluð að
verði jákvæð um 373,4 m.kr. eða
sem nemur 3,77% sem hlutfall af
tekjum sveitarfélagsins. Gert er ráð
fyrir að rekstarhagnaður verði 142
m.kr. á árinu 2023. Rekstrarafkoma
næstu ára, þ.e. á árunum 2023 til
2026, er áætluð að meðaltali 222
m.kr. Fjárhagsáætlun Akraneskaup
staðar gerir ráð fyrir umfangs
miklum fjárfestingum næstu árin
og er fyrirhuguð lántaka vegna
þess á næstu fjórum árum áætluð
5.680 m.kr. Samhliða því er fyrir
hugað að greiða niður langtímalán
að fjárhæð 1.446 m.kr. og greiðslu
lífeyris skuldbindingar að fjárhæð
1.036 m.kr. til árins 2026.
Gert er ráð fyrir óbreyttu útsvari
á árinu 2023, eða 14,52%. Gjald
skrár hækka um 7% fyrir utan
gjaldskrá leikskóla, heimaþjón
ustu og heimsendingu matar og
sorphirðu og sorpeyðingar sem
haldast óbreyttar. Álagningarpró
sentur fasteignaskatta lækka og
verða 0,2306 fyrir íbúðarhúsnæði
og 1,3718% fyrir atvinnuhúsnæði.
Lóðarleiga af nýjum lóðum og
endurnýjuðum samningum verður
1,199% af fasteignamatsverði
atvinnulóða og 0,3034% af fast
eignamatsverði íbúðarhúsalóða.
„Akraneskaupstaður mun
viðhalda ábyrgri fjármálastefnu
og sjá til þess að vera vel innan
þeirra fjárhagslegu viðmiða sem
gerð eru til sveitarfélaga, þ.e. að
rekstrarjöfnuður síðustu þriggja
ára (saman lögð rekstrarafkoma á
þriggja ára tímabili) verði jákvæður
sem nemur 1.094 m.kr. í árslok
2023. Fjárhagsáætlunin gerir jafn
framt ráð fyrir því að rekstrar
jöfnuður muni nema rúmum
1.098 m.kr. í árslok 2026 þrátt
fyrir umtalsverðar fjárfestingar í
innviðum bæjarins á þeim tíma og
aukningu rekstargjalda s.s. vegna
nýs íþróttahúss á Jaðarsbökkum
og vegna nýs leikskóla,“ segir í til
kynningu frá bæjar stjórn.
Nánar má lesa um fjárhags og
fjárfestingaáætlunina á heimasíðu
bæjarins; akranes.is
mm/ Ljósm. frg.
Fjárhagsáætlun
Akraneskaupstaðar gerir
ráð fyrir jákvæðri afkomu