Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 42
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202242
Fréttaannáll ársins 2022 í máli og myndum
Mildi þykir að veður var gott þegar óhappið varð og var skipið
þá statt rétt utan við Súgandisey, einungis um 300 metra frá
landi. Um fimm tímum eftir óhappið var Baldur kominn að
bryggju aftur með aðstoð björgunarbátsins Bjargar úr Rifi
sem siglt hafði í Stykkishólm í flýti með fimm manna áhöfn.
Arkþing hannar Breið
Mánudaginn 27. júní var við hátíðlega athöfn í Hafbjargarhús
inu á Breið á Akranesi kynnt niðurstaða í veglegri hönnunar
samkeppni á um ellefu hektara landsvæði á Breiðinni. Það er
Breið þróunarfélag sem hélt utan um samkeppnina í umboði
Akraneskaupstaðar og Brims hf, sem á meginhluta lands
ins sem um ræðir. Dómnefnd mat þær 24 tillögur sem alls
50 aðilar sendu inn til keppni, að stærstum hluta alþjóðlegar
arkitekta, hönnunar og skipulagsstofur. Fyrstu verðlaun í
samkeppninni fékk Arkþing/Nordic í samstarfi við Eflu verk
fræðistofu og nefndist tillaga þess Lifandi samfélag við sjó.
Umferðarkönnun til að meta
framtíðarlegu hringvegar
Í júlí ákvað Vegagerðin að standa fyrir umferðarkönnun
á Hringveginum, sunnan og norðan við Borgarnes og
á Snæfells vegi vestan við húsnæði Steypustöðvarinnar.
Könnunin var gerð með rafrænu myndavélaeftirliti og var í
gangi til ágústloka. Með henni fengust upplýsingar um leiða
val ökumanna í kringum Borgarnes, og samsetningu umferðar
í létt og þung ökutæki. Á það að nýtast við áætlanagerð fyrir
hjáleið á Hringveginum við Borgarnes.
Vinnuhópur hefur verið að störfum þar sem Vegagerðin ásamt
fulltrúum Borgarbyggðar fara yfir framtíðarlegu Hringvegar
ins fram hjá Borgarnesi og er þetta einn þátturinn í störfum
hans. Hjáleið um Borgarnes er á samgönguáætlun fyrir árin
20302034 samkvæmt núgildandi samgönguáætlun.
Mannbjörg á sjó
Björgin, björgunarbátur Lífsbjargar í Rifi, var ræst út
með hæsta forgangi upp úr klukkan hálf tíu miðviku
daginn 6. júlí. Fjölmargir sjónarvottar í landi höfðu þá látið
vita um eld um borð í báti um tvær sjómílur norðvestur af
Rifi. Einn maður var um borð í bátnum. Komst hann í
björgunarbát og þaðan um borð í annan bát; Didda SH.
Nokkru síðar kom björgunar skipið Björg, tók við mann
inum og hlúð var að honum um borð. Beiðni um aðstoð
þyrlu Landhelgisgæslunnar var þá afturkölluð. Reynt var
að slökkva eldinn úr Björginni, en svo ákveðið að taka bát
inn í tog og draga nærri landi milli Rifs og Ólafsvíkur, og
halda þar áfram slökkvistarfi. Hann reyndist vera ónýtur.
Einungis viku síðar sökk plastbáturinn Villi Björn SH148
á miðjum Breiðafirði. Tveir menn, feðgar, voru um borð og
komust þeir báðir heilu og höldnu yfir í nærliggjandi bát.
Mótmæltu vindmyllugarði
á Brekkukambi
Í júlí ritaði stór hópur íbúa og sumarhúsaeigenda í Hval
firði nafn sitt á lista þar sem skorað var á sveitarstjórn Hval
fjarðarsveitar og Skipulagsstofnun að hafna því að veita leyfi
til að setja upp vindmylluver á toppi Brekkukambs í Hval
firði. Arnfinnur Jónasson var í hópi mótmælenda og skrifaði
hann á FB síðu sína að safnað væri undirskriftum gegn því
að Zephyr Iceland, sem er í eigu norska fyrirtækisins Zephyr,
reisti vindmyllur sem orðið gætu allt að 250 metrar á hæð á
toppi Brekkukambs. Benti hann m.a. á að lífsgæði íbúa myndu
skerðast vegna hljóðmengunar og skuggavarps. Voru undir
skriftarlistarnir afhendir sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitnar í
lok ágúst. Sveitarstjórn gerði sjálf fjölmargar athugasemdir
við matsáætlun Zephyr Iceland.
Litrík Þjóðahátíð
Sunnudaginn 17. júlí var Þjóðahátíð Vesturlands haldin á
veitingastaðnum Nítjándu í Garðavöllum á Akranesi. Með
hátíðinni er verið að sýna fjölbreytileika ólíkra þjóða og draga
úr kynþáttafordómum með því að kynna fyrir Íslendingum
mismunandi menningu með tónlist, mat og dansi. Hátíðin var
sem fyrr haldin af Félagi nýrra Íslendinga. Var ágætlega mætt
og fín stemning.
Festir gerir skipulag í Brákarey
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 28. júlí kom fram að
Fasteignaþróunarfélagið Festir og JVST arkitektar hefðu lýst
yfir áhuga á því að leiða vinnu við heildarskipulag í Brákarey í
Borgarnesi í samstarfi við sveitarstjórn. Ráðið tók erindinu vel
og var áhersla lögð á samráð við íbúa og hagsmuna aðila. Lýst
var væntingum til þess að í Brákarey verði blönduð byggð og
starfsemi sem myndi laða að sér mannlíf og auka lífsgæði íbúa.
Gert var ráð fyrir tveimur samráðsfundum með hagsmuna
aðilum og íbúum, öðrum í september og hinum í nóvem
ber og vinnunni átti að ljúka í desember með kynningu fyrir
sveitar stjórn. Nú í desember hafði einhver töf orðið á málinu
og enginn íbúafundur verið haldinn.
Stórtjón á bryggjunni
á Reykhólum
Miðvikudaginn 27. júlí hrundi stór hluti bryggjunnar á Reyk
hólum. Legið hafði fyrir um alllangt skeið að hún væri komin
á tíma en hún var byggð 1974. Undanfarið hafði verið unnið
að undirbúningi endurnýjunar stálþilsins og stækkun bryggj
unnar um leið. Í því fólst að dýpka og jafna botninn umhverfis
hana og virtist hún ekki hafa þolað álagið sem því fylgdi. Um
mikið tjón var að ræða. Löndunarkrani Þörungaverksmiðj
unnar, sem lokaðist inni þegar bryggjan gaf sig, náðist heilu
og höldnu degi eftir óhappið. Borgarverk vann í framhaldinu
að endurbótum á bryggjunni.
Mögulegt hlaup í Hvítá
Veðurstofa Íslands benti í ágúst á að vatnsstaða Hafrafellslóns
í jaðri Langjökuls hefði hækkað jafnt og þétt sökum úrkomu
og bráðnunar jökulsins. Mögulegt væri að það hlypi úr lóninu
á næstu dögum eða vikum. Tveimur árum fyrr hafði hlaupið
úr lóninu og þrefaldaðist þá vatnið í Hvítá. Veðurstofan taldi
mikilvægt að vera á varðbergi gagnvart mögulegu hlaupi úr
Hafrafellslóni, en eftir flóðið aðfararnótt 18. ágúst 2020 mátti
sjá að einungis vantaði 30 cm upp á að vatnið næði upp á
brúar gólf Hvítárbrúarinnar við Húsafell. Í lok ágúst var hlaup
enn yfirvofandi og í byrjun september var lónið barmafullt og
svæðið vaktað. Á næstu vikum þar á eftir sljákkaði hins vegar í
ánni án þess að hlypi úr lóninu.
Ráðherra með vinnustöð
á Snæfellsnesi
Fimmtudaginn 18. ágúst var Snæfellsbær fyrsta sveitar
félagið sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla,
iðnaðar og nýsköpunamála var við vinnu í á landsbyggð
inni. Hafði hún sett stefnuna á fjarvinnu á ýmsum stöðum
og var Hellissandur fyrstur í röðinni. Var Áslaug Arna þar
með vinnuaðstöðu í félagsheimilinu Röst. Að vinnu lok
inni var farið í heimsóknir og skoðunarferðir um nágrennið
og fólk á förnum vegi tekið tali. Við þetta tækifæri var
tekin mynd af Áslaugu Örnu á Ástarbrautinni á Hellissandi.
Skógarstrandarvegur
forsenda samstarfs
Í ágúst sendi sveitarstjórn Dala
byggðar frá sér bókun vegna
vegamála. Þar sagði að Skógar
strandarvegur gegndi lykil
hlutverki í því að tengja saman
Dali og Snæfellsnes, hann væri
eini stofnvegur á Vestur landi
án bundins slitlags og sá lengsti á láglendi landsins alls án
bundins slitlags. Ennfremur sagði í bókuninni að Skógar
strandarvegur með þverun Álftafjarðar væri forsenda fyrir
auknu samstarfi sveitarfélaga við Breiðafjörð og góðri
tengingu Snæfellsness, Dala, Vestfjarða og Norðurlands.
Guðlaug á lista BBC
yfir bestu baðstaði
Breska ríkisútvarpið
BBC tók í ágúst
saman lista yfir bestu
almennings sundlaugar
eða baðstaði í heim
inum. Á listanum voru
nokkrir íslenskir bað
staðir; Bláa lónið,
Sundhöll Reykjavíkur
og laugin Guðlaug sem
staðsett er á bökkum
Langasands á Akranesi.
Guðlaug samanstendur af útsýnispalli, heitri laug og grynnri
laug sem ekki er eins heit. Laugin var opnuð í desember
2018 og hefur síðan þá verið vel sótt bæði af Íslendingum og
erlendum ferðamönnum.