Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 111
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 111
Þórey Jónsdóttir, Grundarfirði
Aðfangadagskvöld verið
breytilegt síðustu ár
„Þegar ég var lítil stelpa man ég að það var alltaf sett hreint á
rúmin á aðfangadag og lyktin af rjúpunum ilmaði í eldhúsinu,
þá heyrði ég foreldra mína tala um að nú mættu jólin koma.
Mér fannst hún ekkert sérstaklega góð en svona var þetta.
Fyrst þegar við hjónin byrjuðum að búa og vorum komin
með synina tvo þá vildum við búa til okkar jólahefðir. Við
borðuðum heima hjá okkur, opnuðum pakkana og fórum svo
yfir í eftirrétt til tengdaforeldra minna. En það sem ég tók helst
með mér af minni barnæsku var að skipta um á rúmunum á
aðfangadag og þrífa allt hátt og lágt, en svo með árunum ákvað
ég að breyta því yfir á Þorláksmessu.
Ég var því gjörsamlega á haus alltaf
þann 23. desember og korter í jólin.
Það var verið að klára að vinna, versla
inn matinn, skipta á rúmum, tæma
þvottakörfuna og skúra oft um mið
nætti, nánast bónað en svo á aðfanga
dagskvöld var allt komið á hvolf. Ég
veit hreinlega ekki fyrir hvern maður
var að þrífa allt hátt og lágt en með
árunum lærði ég að slaka aðeins á og
njóta jólanna betur. Nú reyni ég að
byrja fyrr og er með allt klárt fyrir
Þorláksmessu. Því sá dagur er orðinn
mér afar kær þar sem við hjónin
röltum eða keyrum um bæinn og
kíkjum á fjölskyldu og vini.
Á aðfangadag tek ég daginn
snemma og undirbý matinn, legg á
borð en fyrir mörgum árum ákvað ég
að leggja einn aukadisk á jólaborðið
vegna þess að við erum að greiða
með einum í Afríku og einnig ef ein
hver myndi banka upp á. Ef enginn
kemur þá minnumst við þeirra sem
eiga um sárt að binda. Því næst skelli
ég mér svo á æfingu og svo er það
möndlugrauturinn hjá Jónu mág
konu sem klikkar aldrei. Því næst
er það jólamessa, alltaf hátíðlegt að
koma í kirkjuna og leyfa bjöllunum
að hringja inn jólin. Aðfangadags
kvöld hefur svo verið dálítið breyti
legt síðustu árin eftir að barnabörnin
fóru að bætast ört í hópinn. Við
hjónin skiptumst því núna á að borða
með börnunum okkar en förum svo
alltaf í heimsókn til allra og eigum
notalega stund. Aðalsamverustundin
okkar er þó alltaf á jóladag þar sem
við komum öll saman og borðum
góðan mat, spilum og gerum eitt
hvað skemmtilegt með börnunum
og barnabörnunum. Það er alltaf
brjálað stuð þar sem við erum orðin
14 talsins, þrjú börn, þrjú tengda
börn, sex barnabörn og það sjö
unda á leiðinni. Áramótin eru með
svipuðu móti hjá okkur. Ég vil óska
ykkur öllum gleðilegra jóla með von
um að nýja árið færi ykkur ást, gleði
og velgengni. Bestu jólakveðjur.“
Ingþór Guðjónsson, Akranesi
Jólin snúast um fjölskylduna
„Jólabarn verð ég sennilega seint talinn en það hefur samt
breyst með hverju árinu sem líður. Hugsanlega er ég að
þroskast og jafnframt að átta mig betur á því hversu mikil
vægur og skemmtilegur tími þetta er fyrir börnin. Við tökum
reglulega rúnt um bæinn við fjölskyldan til að njóta jóla
ljósanna en einnig reynum við að skreyta töluvert í garðinum
okkar. Ljósin lýsa upp bæinn og finnst mér svo gaman að sjá
hvað sumir leggja mikinn metnað í sínar skreytingar. Varð
andi undirbúning jólanna þá á Anna María, konan mín, allan
heiður af okkar jólum eins og alltaf, hún sér um jólagjafakaup,
matinn og heimilið enda límið í fjölskyldunni. Hún og dætur
okkar þrjár eru það sem jólin snúast um í mínum huga, njóta
þess að vera með þeim, borða mikið af góðum mat og hugs
anlega slappa af. Við fjölskyldan reynum að fara ár hvert á
jólatónleika og þá í bröns eða jólamáltíð og njóta dagsins.
Tengdamamma mín hefur einnig stjanað við mig og okkur
fjölskylduna á þessum árstíma, eins og alltaf. Svo á aðfangadag
þegar matarilmurinn er kominn í húsið þá verður allt eitthvað
svo hátíðlegt. Umfram allt snýst þetta um að njóta með sínu
fólki og hafa það sem allra best í alla staði og vona ég innilega
að allir hafi það sem best yfir jólin, hvar sem fólk er.“
Rebekka Eiríksdóttir, Reykhólahreppi
Gerum vel við dýrin á jólunum
„Jólin eru góður tími þó svo að ágætis törn sé alltaf í jóla
undirbúningnum sem er þó líka alltaf skemmtileg og tilheyr
andi. Gaman er þegar líður að aðventu að fylgjast með jólaljós
unum koma upp í kringum mann því ég bý í litlu samfélagi þar
sem hvert ljós lífgar upp á skammdegið. Í vinnunni í skólanum
eru líka margar hefðir sem lífga mikið upp á undirbúninginn,
föndur, jólakortagerð og að ógleymdri piparkökuhúsakeppni.
Litlu jólin og samvera með nemendum þegar allir eru á leið í
jólafrí kemur manni í gott jólaskap. Jólahangikjötið hefur sinn
sjarma, að reykja það, taka það niður og koma því síðan til allra
sem ætla að njóta þess um jólin skapar stemningu. Í búskapnum
eru líka tilhleypingar og önnur verk sem vinna þarf á aðventunni
sem hjálpa til við að auka jólastemninguna. Gerum vel við dýrin
á jólunum til að gleðja þau líka; kindur, kýr, hænur og hunda.
Samvera með fjölskyldunni og sérstaklega þegar dæturnar eru
farnar að heiman, þá er dásamlegt að fá þær heim ásamt tengda
syni og ömmustráknum. Við eigum góðar stundir við bakstur,
þrif, skreytingar, spilamennsku og útiveru. Blendnar tilfinningar
eru þegar bjarga á jólunum og fara í borgina oftast á styttri tíma
heldur en skynsamlegast væri og græja og gera allt sem eftir er.
Afhenda pakka og taka við þeim. En samt sem áður hluti af jóla
undirbúningnum og jólaandinn hellist yfir mann þegar heim
er haldið. Á Þorláksmessu borðum við alltaf skötu og bjóðum
vinum heim. Seinna um daginn þegar við erum búin í bústörf
unum förum við og keyrum út pakka til vina okkar og fjölskyldu.
Skreytum jólatréð síðan þegar við komum heim um kvöldið.
Möndlugrauturinn er síðan borðaður í hádeginu á aðfangadag
sem er mjög skemmtileg hefð. Förum svo alltaf í kirkjugarðinn
seinni partinn á aðfangadag og kveikjum á kertum í tilefni dags
ins. Sérstök stund á aðfangadagskvöld er um klukkan átta þegar
búið er að mjólka, fara í sturtu og finna ilminn af léttreykta
lambahryggnum í ofninum og við setjumst niður og borðum
jólamatinn saman.“
GLEÐILEGA
HÁTÍÐ OG
SJÁUMST Á
LANDSMÓTI
UMFÍ 50+
UMFI.IS
Ungmennafélag Íslands og
Héraðssamband Snæfellsness
og Hnappadalssýslu óskar
öllum á vesturlandi gleðilegra
jóla og farsællar hreyfingar
á nýju ári. Hlökkum til að sjá
ykkur á Landsmóti UMFÍ 50+
í Stykkishólmi í júní.
Með jóla- og nýárskveðjum
frá UMFÍ og HSH.