Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 54
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202254
Jólin eru kósíkvöld með vinum og
fjölskyldu. Jólin eru ostabakki og
sulta. Jólin eru rauðvínsglas og spil.
Jólin eru að vera. Þegar ég hugsa
hvað ég hlakka mest til þegar líður
að jólum þá er það allt þetta. Ég
hlakka til þess að eiga gæðastundir
með vinum mínum og fjölskyldu.
Ég hlakka til að spila spil og borða
dýrindis osta og kex sem er húðað
hæfilegu magni af salti, skola því svo
niður með flauelsmjúku rauðvíni.
Ég hlakka til að heyra í mínum nán
ustu vinkonum og spyrja hvað þær
fengu í jólagjöf. Ég hlakka til að gera
ekki neitt, heldur bara vera og njóta.
Ég hef alltaf verið heima á
jólunum hjá mömmu og pabba
að frátöldum þremur jólum sem
ég varði í Ameríku. Fyrstu jólin
að heiman var árið 2007 þegar
ég var skiptinemi í Oklahoma, þá
17 ára gömul. Í tvö skipti fékk ég
heimþrá þetta skiptinemaár. Fyrra
skiptið var þegar ég var nýlent og
áttaði mig á því að ég væri ekki að
fara heim fyrr en eftir ár og seinna
skiptið var um jólin þegar mamma,
pabbi og bræður mínir hringdu á
aðfangadag til að segja gleðileg jól.
Þá fann ég fyrir heimþrá og hvað
ég saknaði fjölskyldunnar, vina
minna og íslenskra jóla. Þennan
aðfangadag vorum við skiptinema
fjölskyldan mín á ferðalagi frá
Oklahoma til Kansas og ég man
sérstaklega eftir því að við stopp
uðum á McDonalds til að fá okkur
kvöldmat. Mér fannst það ekki
alveg nógu jólalegt en vissulega var
það eftirminnilegur jólamatur.
Ég myndi seint lýsa mér sem
jólabarni þó svo ég hlakki til jól
anna ár hvert. Tilhlökkunin hefur
þróast eftir því sem ég hef fullorðn
ast (þó svo ég líti alltaf á sjálfa mig
sem hálfgerðan krakka enn í dag).
Sem krakki þá hlakkaði ég mest til
þess að opna pakkana. Í dag hlakka
ég til að eiga gæðastundir með
mínum nánustu, borða góðan mat
og bara að vera.
Gleðileg jól til ykkar allra og takk
fyrir árið sem er að líða,
Gunnhildur Lind Hansdóttir,
Borgarnesi
Saknaðarilmur, er titill á nýút
kominni bók Elísabetar Jökuls
dóttur. Í útvarpsviðtali lýsti hún
hvernig minningar um látna móður
sína hefðu tengst lykt og þannig
varð orðið saknaðarilmur til.
Ég tengdi við þessa lýsingu
Elísabetar og hugsa til aðventunnar
á Borgarbraut 53 í Borgarnesi
þar sem ég ólst upp ásamt fjórum
bræðrum, þeim yngsta tvíbura
bróður en við erum yngst.
Heimilislífið á Borgarbrautinni
einkenndist af miklum gestagangi
og á aðventunni komu margir við,
bæði skyldfólk og fólk úr sveitunum
sem tengist fjölskyldunni og var oft
á tíðum í kaupstaðarferð. Mamma
var heldur á móti sykuráti og þó svo
að bakkelsið flyti um eldhúsborðin
við bakstur desembermánaðar, var
bakað fyrir gestina og jólin. Við
tvíburarnir, eins og við vorum svo
oft kölluð, fengum oft sælgætis
gjafir frá gestunum. Hún mamma
gerði það samkomulag við okkur
eitt árið, fyrir aðventuna, að allt
það sælgæti sem við fengjum gefins
yrði safnað saman og skipt til helm
inga á aðfangadag. Inni í þessu var
einnig sælgætið úr dagatalinu sem
við höfðum með talsvert mikilli
„vinnu“ fengið hana til að kaupa
handa okkur. Bara eitt dagatal og
skipt til helminga. Það kom þó fyrir
að við laumuðumst í kökudallinn
en það uppgötvaðist þar sem lokið
hafði ekki ratað í réttar skorður.
Jólin voru lífleg á Borgarbraut
inni og með árunum fækkaði við
eldhúsborðið á aðfangadag þar sem
bræðurnir fluttu einn af öðrum að
heiman og hófu nýtt líf með sínum
fjölskyldum. Það endaði þannig að
ég var orðin ein eftir við eldhús
borðið á aðfangadagskvöld með
foreldrum mínum og svo var það í
ein fimm ár. Fimm ár sem nándin
varð enn meiri og minningarnar
fleiri. Í minningunni finn ég sakn
aðarilm úr eldhúsinu á Borgar
brautinni.
Svo kom að mér að hverfa frá
eldhúsborðinu á aðfangadagskvöld.
Þá átti ég orðið mína eigin fjöl
skyldu og hóf að byggja upp mínar
eigin jólahefðir með mínu fólki.
Í Hjarðarholt í Stafholtstungum
fluttumst við hjónin árið 1994 og
höfum dvalið hér síðan. Ég vona að
dætur mínar þrjár geti einn daginn
hugsað til minninganna og fundið
með þeim saknaðarilm.
Frá Stafholtstungum sendi ég
lesendum Skessuhorns hugheilar
jóla og nýárskveðjur og óska okkur
öllum alheimsfriðar.
Hrefna Bryndís Jónsdóttir
Borgarfirði
Jólakveðja úr Borgarnesi
Jólin eru gæðastundir
Kveðjur úr héraði
Jólakveðja úr Borgarfirði
Saknaðarilmur