Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 50
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202250
Jólakveðja úr Stykkishólmi
Sólskinsbarnið
í skammdeginu
Jólakveðja úr Eyja-
og Miklaholtshreppi
Jólin...
Kveðjur úr héraði
Mamma mín segir að ég sé sól
skinsbarn, alltaf brosandi og glöð.
Enda er ég fædd á björtu júní síð
degi á Akureyri. Þegar ég var yngri
var sumarið alltaf minn tími, þá
blómstraði ég en þoldi ekki vet
urinn og kuldann. En með hækk
andi aldri og minna kuldaexemi,
hef ég tekið veturinn og skamm
degið í sátt. Það er erfitt að þola
ekki lengstu árstíðina á Íslandi svo
það er sennilega farsælast að læra
að meta hana og finna leiðir til að
láta sér líka við skammdegið.
Aðventan spilar stóran þátt í
því að gera skammdegið á þessum
norðurhjara bærilegt og það er sér
staklega auðvelt að elska aðventuna
í Stykkishólmi. Þetta er sjötta
aðventan mín í Hólminum og
þær eru alltaf jafn dásamlegar. Ég
stend mig jafnvel að því í júní að
hugsa með tilhlökkun til desem
bermánaðar. Það er bara eitthvað
við jólaskreytingarnar á gömlu
húsunum, jólabörnin í áhaldahús
inu sem mæta með jólatré á leik
skólalóðina í jólasveinabúningum
og kæta og skelfa leikskólabörnin
í leiðinni. Það er eitthvað við að
fara á tendrun jólatrésins sem íbúar
fengu að velja í kosningu, kaupa
besta kakó í heimi af kvenfélaginu
og þekkja öll börnin sem eru að
dansa í kringum jólatréð. Það er
eitthvað við að labba í leikskólann
í froststillu og sjá útlínur Ljósufjall
anna þegar sólin er farin að gylla
þau sunnan megin. Það er eitthvað
við að fara í Norska húsið, fá jóla
drykk og skoða gamla jólamuni og
kaupa íslenskt handverk.
Ég veit að þetta er farið að hljóma
eins og kynningarbæklingur fyrir
Stykkishólm en svona er þetta bara.
En svo ég sé sanngjörn held ég að
aðventan í Stykkishólmi sé ekkert
frábærari en annars staðar, þó að
hér sé vissulega fallegt. Það er sam
félagið og allir sem eru tilbúnir að
leggja aðeins extra á sig til að gleðja
samborgara sína, unga sem aldna,
sem eru aðal töfrarnir við Hólm
inn. Og almennt held ég að fólk sé
gott og til í að gleðja samborgara
sína, ekki bara í Stykkishólmi, ekki
bara í litlum samfélögum, ekki bara
úti á landi, heldur alls staðar. Það
er bara aðeins auðveldara og sést
betur í litlu samfélögunum. Verum
þakklát fyrir það sem aðrir gera til
að gleðja okkur í skammdeginu,
reynum að slaka á og njóta þess
smáa og bíðum eftir að sólin komi
aftur, því hún gerir það alltaf!
Jólakveðja úr Hólminum
Nanna Guðmundsdóttir
Hvað eru jólin? Samkvæmt
kristinni trú erum við að fagna
fæðingu Jesú, einnig fögnum við
því að sólin er að hækka á lofti og
daginn fer að lengja. Hefðirnar í
kringum jólin eru margar og mis
munandi. Þegar ég var lítil var
það smákökubakstur í aðdraganda
jóla, jólahreingerning, jólabaðið,
sjóða hangikjötið og skreyta jóla
tréð á Þorláksmessu. Aðfangadagur
var undirlagður af því að undirbúa
kvöldið, pakka síðustu pökkunum
og raða undir jólatréð. Aðfanga
dagskvöld var heilagasta stundin
þegar maður var að mjólka kýrnar
í fjósinu og jólamessan ómaði um
fjósið, kýrnar sveifluðu halanum í
takt við sálmana og öll dýrin voru
með þessa hátíðarró yfir sér, það var
óneitanlega annar andi í húsunum
á aðfangadagskvöld. Ég hef aldrei
farið í jólamessu á aðfangadag en
þessi stund í útihúsunum er held ég
ekki síður hátíðleg og er í raun fyrir
mér hin einu og sönnu jól.
Þau voru skrítin jólin sem ég átti
með fjölskyldu sem ég dvaldi hjá í
Englandi árið 1990. Englendingar
eru ekki alveg eins uppteknir af
undirbúningi jólanna og við. Ekk
ert hangikjöt, reyndar gerði konan
á heimilinu jólabúðing sem tók
langan tíma að nostra við, þó
nokkru fyrir jól fór hún að hella
„brandy“ yfir kökuna reglulega og
svo á jóladag var hún „flamberuð“
áður en hún var snædd á jóladag.
Til að við vinkonurnar (frá Íslandi)
færum ekki á mis við jólalyktina,
létum við senda okkur hangikjöt
og fengum leyfi til að elda það í
kjallara fjölskyldu vinkonu minnar,
í húsi frá Viktoríutímanum. Engir
pakkar voru opnaðir á aðfangadags
kvöld, heldur á jóladagsmorgun í
náttfötunum. Engu að síður komu
nú jól þó þau væru öðruvísi. Fjöl
skyldan átti samverustundir þessa
daga, en eftir jóladag voru jólin
eiginlega búin, engar yfirdrifnar
skreytingar, hvorki inni né úti sem
þurfti að taka niður. Önnur öðru
vísi jól átti ég 2008, ekki var nú
fjármálahrunið að einkenna það,
heldur var það tvíburastelpunum
okkar sem lá eitthvað ósköp á að
koma í heiminn. Var ég flutt með
hraði í sjúkrabíl á Landspítalann á
aðfangadag og eyddi kvöldinu með
stopplyf í æð, hlustaði á útvarps
messuna í Dómkirkjunni hjá
Hjálmari Jónssyni sem hafði gift
okkur Þröst þá mánuði áður. Þarna
komu nú jólin engu að síður þó
öðruvísi væru.
Jólin þau koma sama hvað og
skiptir ekki máli hvernig aðstæður
eru, þau geta verið allavega, þetta er
bara spurning um að leyfa jólaand
anum að koma yfir okkur, hver sem
hann svo er getur verið mismun
andi milli okkar allra.
Gleðileg jól!
Laufey Bjarnadóttir
Stakkhamri