Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 103
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 103
Leiðandi á
landsbyggðunum
n4@n4.isN4, Hvannavöllum 14, 600 Akureyri 412 4402
www.n4.is N4sjonvarpTímaflakk N4 blaðið N4 hlaðvarpN4sjonvarp
N4 ER ÞAR SEM ÞÚ VILT
- ÞEGAR ÞÚ VILT
og farsælt komandi ár
Við sendum landsmönnum okkar bestu óskir um gleðileg
jól og farsæld á komandi ári með þökkum fyrir áhorfið
á árinu sem er að líða
Rótarý er alþjóðleg mannúðarhreyf
ing með yfir 1,4 milljónir félaga í
200 löndum. Starfsemin er 110 ára
og byggist upp á öflugu klúbbastarfi,
en þeir eru 46.000. Á þessu ári var
brotið blað í sögu Rótarý hreyfingar
innar þegar fyrsta konan var kosin
heimsforseti, Jennifer Jones.
Íslensku félagarnir eru um 1200 í 31
klúbbi og hlutfall kvenna er komið í
33%. Núverandi umdæmisstjóri er
Bjarni Grímsson, Rótarýklúbbnum
ReykjavíkGrafarvogi.
Í samræmi við eðli og hugmynda
fræði Rótarý hefur klúbburinn tekið
þátt í sameiginlegum verkefnum
umdæmisins og alþjóðahreyfingar
innar. Reglulega hafa verið greidd
framlög í Rótarýsjóðinn og til
Polio Plus verkefnisins sem lýtur
að útrýmingu lömunarveiki í heim
inum. Góður árangur hefur náðst
í þeirri baráttu og eru nú yfir 99%
af heiminum laus við þennan sjúk
dóm. Eingöngu í nokkrum hér
uðum Afganistan og Pakistan
hafa greinst 20 tilfelli. Global
grant sjóður Rotary international
úthlutar 130 milljónum dollara til
góðgerðarmála árlega.
Rótarýklúbbur Borgarness var
stofnaður 14. september 1952
og hafði Rótarýklúbbur Akra
ness forgöngu um stofnun klúbbs
ins. Stofnfélagar voru 23 og fyrsta
stjórn var þannig skipuð:
Forseti: Magnús Á. Jónsson
sparisjóðsstjóri, ritari: Ásgeir Þ.
Ólafsson dýralæknir, gjaldkeri:
Finnbogi Guðlaugsson forstjóri,
stallari: Marinó Sigurðsson bakara
meistari, varaforseti: Leó Júlíusson
sóknarprestur.
Félagar í klúbbnum árið 2022 eru
29 og þar af tíu konur. Starfsemi
klúbbsins hefur að jafnaði verið í
samræmi við meginreglur Rótarý
hreyfingarinnar þar sem haldnir
eru vikulegir fundir yfir vetrar
mánuðina með fræðslu erindum,
heimsóknum í fyrirtæki og stofn
anir. Lögð hefur verið áhersla á að
hafa klúbbstarfið fjölbreytt, gefandi
og skemmtilegt.
Ýmis hagsmunamál samfélags
ins hafa verið rædd og krufin til
mergjar á klúbbfundum og margar
hugmyndir um stór framfara
mál í héraði hafa fyrst verið kynnt
og rædd á fundum í klúbbnum.
Má í því sambandi nefna brú yfir
Borgarfjörð, Hitaveitu Akraness
og Borgar ness, og friðland í Ein
kunnum svo dæmi séu tekin. Strax
á fyrsta starfsári klúbbsins hófust
umræður um skráningu á sögu
Borgarness og var fljótlega sam
þykkt að hefja undirbúning og
heimildasöfnun. Saga Borgarness,
100 ár í Borgarnesi, eftir Jón
Helgason kom út árið 1967 á 100
ára afmæli bæjarins.
Á 70 ára starfstíma Rótarýklúbbs
Borgarness hafa fimm félagar verið
valdir til að gegna starfi umdæmis
stjóra íslenska Rótarýumdæmis
ins. Rótarýklúbbur Borgarness
hefur haldið umdæmisþing fimm
sinnum, árin 1960, 1969, 1986,
2000 og 2015. Eftir umdæmis
þingið á Bifröst árið 2000 stofn
aði klúbburinn sjóð sem nefndur
er Hvatningarsjóður og samkvæmt
skipulagsskrá hefur hann það hlut
verk að veita viðurkenningar til
aðila eða einstaklinga sem lagt hafa
marktækan skerf til menningar
lista eða atvinnulífs á klúbbsvæð
inu. Fyrst var veitt viðurkenning
úr sjóðnum á fimmtugsafmælinu
árið 2002, en þá hlaut Snorrastofa
í Reykholti viðurkenningu sjóðsins
sem merkasta nýjung í menningar
lífi héraðsins á þeim tíma. Mennta
skóli Borgarfjarðar hefur einnig
fengið styrk úr sjóðnum. Í tilefni
af 50 ára afmæli klúbbsins árið
2002 var efnt til sýningar í Safna
húsi Borgarfjarðar þar sem sögu,
starfi og verkefnum voru gerð skil
í myndum og máli.
Klúbburinn hefur sinnt ýmsum
mannúðarmálum og er á vegum
klúbbsins sérstakur sjóður „Ingólfs
sjóður“ sem hefur m.a. það hlutverk
að veita stuðning til einstaklinga
sem eiga í erfiðleikum. Sjóðurinn
er kenndur við stofnanda sjóðsins,
Ingólf Pétursson hótelstjóra, sem
var félagi í klúbbnum. Undanfarin
ár hefur Rauði krossinn og Sam
hugur í Borgarbyggð fengið fjár
hagsstyrki úr sjóðnum.
Klúbburinn hefur í nokkur
undanfarin ár staðið fyrir
almennum borgarafundum um sér
tæk málefni sem hafa verið ofarlega
á baugi á hverjum tíma. Staðið var
einnig fyrir málþingi um atvinnu
mál og kynningu á starfsemi fyrir
tækja í héraðinu þar sem fyrir
tækjum hefur verið boðið að taka
þátt. Markmið með þessum kynn
ingum er m.a. að vekja athygli á
þeim fjölmörgu aðilum, ekki síst
minni fyrirtækjum, sem eru með
margskonar atvinnurekstur af
ýmsum toga. Klúbburinn hefur haft
forystu um starfskynningu fyrir 10.
bekki grunnskóla í Borgarbyggð. Í
tengslum við 60 ára afmæli klúbbs
ins árið 2012 var efnt til opins mál
þings um líffæragjafir sem vakti
mikla athygli á landsvísu.
Hér að framan hefur verið stiklað
á stóru í sögu Rótarýklúbbs Borgar
ness og getið um nokkur helstu
viðfangsefni sem klúbbfélagar hafa
fengist við og haft forgöngu um. Af
því má sjá að starfsemi klúbbsins
hefur verið býsna fjölþætt og segja
má að fátt hafi verið klúbbfélögum
óviðkomandi.
Sé þetta borið saman við megin
markmið Rótarýhreyfingarinnar
sem eru:
• að efla og glæða þjónustu
hugsjónina, að þjóna öðrum,
• að efla kynni milli manna
og þjóðfélagsstétta,
• að hafa bætandi áhrif á
umhverfi sitt.
Það má með sanni segja að félagar
í Rótarýklúbbi Borgarness hafi
unnið dyggilega í anda þeirra
markmiða undanfarin 70 ár.
Auðvitað er erfitt að setja ein
hverja mælistiku á þann árangur
sem starfið hefur skilað félögunum
sjálfum og samfélaginu sem
klúbbur inn hefur starfað í. Það
má hins vegar fullyrða að það að
vera félagi í Rótarýklúbbi þar sem
fólk úr mismunandi starfsstéttum
með ólíkar lífsskoðanir og áhuga
mál kynnist hvert öðru og starfar
saman að áhugaverðum verkefnum
hlýtur að hafa jákvæð áhrif á mann
leg samskipti, það eflir skilning og
velvild milli manna.
Rótarýklúbbur Borgarness óskar
Vestlendingum gleðilegrar hátíðar
og farsældar á nýju ári.
Ragnar Frank Kristjánsson,
forseti Rótarýklúbbs Borgarness
Rótarýklúbbur Borgarness 70 ára
Pennagrein
Ragnar Frank er hér að taka við embætti forseta Rótarýklúbbs Borgarness af fráfarandi forseta, Gísla Karel Halldórssyni.
Af fundi Rótarýklúbbs Borgarness, sem haldnir eru í Landbúnaðarháskóla Íslands.
Stefán Broddi Guðjónsson, sveitarstjóri í Borgarbyggð hélt í nóvember erindi um
tækifæri í sveitarfélaginu. Faðir Stefáns, Guðjón Ingvi Stefánsson, var lengi félagi
í klúbbnum.