Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2022, Page 103

Skessuhorn - 20.12.2022, Page 103
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 103 Leiðandi á landsbyggðunum n4@n4.isN4, Hvannavöllum 14, 600 Akureyri 412 4402 www.n4.is N4sjonvarpTímaflakk N4 blaðið N4 hlaðvarpN4sjonvarp N4 ER ÞAR SEM ÞÚ VILT - ÞEGAR ÞÚ VILT og farsælt komandi ár Við sendum landsmönnum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári með þökkum fyrir áhorfið á árinu sem er að líða Rótarý er alþjóðleg mannúðarhreyf­ ing með yfir 1,4 milljónir félaga í 200 löndum. Starfsemin er 110 ára og byggist upp á öflugu klúbbastarfi, en þeir eru 46.000. Á þessu ári var brotið blað í sögu Rótarý hreyfingar­ innar þegar fyrsta konan var kosin heimsforseti, Jennifer Jones. Íslensku félagarnir eru um 1200 í 31 klúbbi og hlutfall kvenna er komið í 33%. Núverandi umdæmisstjóri er Bjarni Grímsson, Rótarýklúbbnum Reykjavík­Grafarvogi. Í samræmi við eðli og hugmynda­ fræði Rótarý hefur klúbburinn tekið þátt í sameiginlegum verkefnum umdæmisins og alþjóðahreyfingar­ innar. Reglulega hafa verið greidd framlög í Rótarýsjóðinn og til Polio Plus verkefnisins sem lýtur að útrýmingu lömunarveiki í heim­ inum. Góður árangur hefur náðst í þeirri baráttu og eru nú yfir 99% af heiminum laus við þennan sjúk­ dóm. Eingöngu í nokkrum hér­ uðum Afganistan og Pakistan hafa greinst 20 tilfelli. Global grant sjóður Rotary international úthlutar 130 milljónum dollara til góðgerðarmála árlega. Rótarýklúbbur Borgarness var stofnaður 14. september 1952 og hafði Rótarýklúbbur Akra­ ness forgöngu um stofnun klúbbs­ ins. Stofnfélagar voru 23 og fyrsta stjórn var þannig skipuð: Forseti: Magnús Á. Jónsson sparisjóðsstjóri, ritari: Ásgeir Þ. Ólafsson dýralæknir, gjaldkeri: Finnbogi Guðlaugsson forstjóri, stallari: Marinó Sigurðsson bakara­ meistari, varaforseti: Leó Júlíusson sóknarprestur. Félagar í klúbbnum árið 2022 eru 29 og þar af tíu konur. Starfsemi klúbbsins hefur að jafnaði verið í samræmi við meginreglur Rótarý­ hreyfingarinnar þar sem haldnir eru vikulegir fundir yfir vetrar­ mánuðina með fræðslu erindum, heimsóknum í fyrirtæki og stofn­ anir. Lögð hefur verið áhersla á að hafa klúbbstarfið fjölbreytt, gefandi og skemmtilegt. Ýmis hagsmunamál samfélags­ ins hafa verið rædd og krufin til mergjar á klúbbfundum og margar hugmyndir um stór framfara­ mál í héraði hafa fyrst verið kynnt og rædd á fundum í klúbbnum. Má í því sambandi nefna brú yfir Borgarfjörð, Hitaveitu Akraness og Borgar ness, og friðland í Ein­ kunnum svo dæmi séu tekin. Strax á fyrsta starfsári klúbbsins hófust umræður um skráningu á sögu Borgarness og var fljótlega sam­ þykkt að hefja undirbúning og heimildasöfnun. Saga Borgarness, 100 ár í Borgarnesi, eftir Jón Helgason kom út árið 1967 á 100 ára afmæli bæjarins. Á 70 ára starfstíma Rótarýklúbbs Borgarness hafa fimm félagar verið valdir til að gegna starfi umdæmis­ stjóra íslenska Rótarýumdæmis­ ins. Rótarýklúbbur Borgarness hefur haldið umdæmisþing fimm sinnum, árin 1960, 1969, 1986, 2000 og 2015. Eftir umdæmis­ þingið á Bifröst árið 2000 stofn­ aði klúbburinn sjóð sem nefndur er Hvatningarsjóður og samkvæmt skipulagsskrá hefur hann það hlut­ verk að veita viðurkenningar til aðila eða einstaklinga sem lagt hafa marktækan skerf til menningar­ lista eða atvinnulífs á klúbbsvæð­ inu. Fyrst var veitt viðurkenning úr sjóðnum á fimmtugsafmælinu árið 2002, en þá hlaut Snorrastofa í Reykholti viðurkenningu sjóðsins sem merkasta nýjung í menningar­ lífi héraðsins á þeim tíma. Mennta­ skóli Borgarfjarðar hefur einnig fengið styrk úr sjóðnum. Í tilefni af 50 ára afmæli klúbbsins árið 2002 var efnt til sýningar í Safna­ húsi Borgarfjarðar þar sem sögu, starfi og verkefnum voru gerð skil í myndum og máli. Klúbburinn hefur sinnt ýmsum mannúðarmálum og er á vegum klúbbsins sérstakur sjóður „Ingólfs­ sjóður“ sem hefur m.a. það hlutverk að veita stuðning til einstaklinga sem eiga í erfiðleikum. Sjóðurinn er kenndur við stofnanda sjóðsins, Ingólf Pétursson hótelstjóra, sem var félagi í klúbbnum. Undanfarin ár hefur Rauði krossinn og Sam­ hugur í Borgarbyggð fengið fjár­ hagsstyrki úr sjóðnum. Klúbburinn hefur í nokkur undanfarin ár staðið fyrir almennum borgarafundum um sér­ tæk málefni sem hafa verið ofarlega á baugi á hverjum tíma. Staðið var einnig fyrir málþingi um atvinnu­ mál og kynningu á starfsemi fyrir­ tækja í héraðinu þar sem fyrir­ tækjum hefur verið boðið að taka þátt. Markmið með þessum kynn­ ingum er m.a. að vekja athygli á þeim fjölmörgu aðilum, ekki síst minni fyrirtækjum, sem eru með margskonar atvinnurekstur af ýmsum toga. Klúbburinn hefur haft forystu um starfskynningu fyrir 10. bekki grunnskóla í Borgarbyggð. Í tengslum við 60 ára afmæli klúbbs­ ins árið 2012 var efnt til opins mál­ þings um líffæragjafir sem vakti mikla athygli á landsvísu. Hér að framan hefur verið stiklað á stóru í sögu Rótarýklúbbs Borgar­ ness og getið um nokkur helstu viðfangsefni sem klúbbfélagar hafa fengist við og haft forgöngu um. Af því má sjá að starfsemi klúbbsins hefur verið býsna fjölþætt og segja má að fátt hafi verið klúbbfélögum óviðkomandi. Sé þetta borið saman við megin­ markmið Rótarýhreyfingarinnar sem eru: • að efla og glæða þjónustu­ hugsjónina, að þjóna öðrum, • að efla kynni milli manna og þjóðfélagsstétta, • að hafa bætandi áhrif á umhverfi sitt. Það má með sanni segja að félagar í Rótarýklúbbi Borgarness hafi unnið dyggilega í anda þeirra markmiða undanfarin 70 ár. Auðvitað er erfitt að setja ein­ hverja mælistiku á þann árangur sem starfið hefur skilað félögunum sjálfum og samfélaginu sem klúbbur inn hefur starfað í. Það má hins vegar fullyrða að það að vera félagi í Rótarýklúbbi þar sem fólk úr mismunandi starfsstéttum með ólíkar lífsskoðanir og áhuga­ mál kynnist hvert öðru og starfar saman að áhugaverðum verkefnum hlýtur að hafa jákvæð áhrif á mann­ leg samskipti, það eflir skilning og velvild milli manna. Rótarýklúbbur Borgarness óskar Vestlendingum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári. Ragnar Frank Kristjánsson, forseti Rótarýklúbbs Borgarness Rótarýklúbbur Borgarness 70 ára Pennagrein Ragnar Frank er hér að taka við embætti forseta Rótarýklúbbs Borgarness af fráfarandi forseta, Gísla Karel Halldórssyni. Af fundi Rótarýklúbbs Borgarness, sem haldnir eru í Landbúnaðarháskóla Íslands. Stefán Broddi Guðjónsson, sveitarstjóri í Borgarbyggð hélt í nóvember erindi um tækifæri í sveitarfélaginu. Faðir Stefáns, Guðjón Ingvi Stefánsson, var lengi félagi í klúbbnum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.