Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 17
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
er að líða
Haraldur Benediktsson
Teitur Björn Einarsson
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
Egilsholti 1, 310 Borgarnes Sími 430 5500
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Óskum Vestlendingum og
landsmönnum öllum gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða
Kaupfélag Borgfirðinga
Komum alltaf á óvartwww.kb.is
Fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir
árin 20232026 var lögð fram til
síðari umræðu í sveitarstjórn og
samþykkt einróma fimmtudaginn
15. desember. Áætluð rekstrar
niðurstaða samstæðunnar (A og B
hluta) árið 2023 er jákvæð um 56,5
milljónir króna sem er breyting
til hins betra frá yfirstandandi ári.
Nýjasta útkomuspá gerir ráð fyrir
neikvæðri niðurstöðu um 12 millj
ónir króna á árinu 2022 þannig að
hér er um töluverðan viðsnúning
að ræða, heildarvelta Dalabyggðar
er áætluð 1.357 milljónir króna á
árinu 2023.
Líkt og áður fer stærstur hluti
útgjalda sveitarfélagsins til fræðslu
og uppeldismála en 51% skatt
tekna Dalabyggðar renna til mála
flokksins,“ segir í tilkynningu.
Útsvarsprósenta Dalabyggðar er
óbreytt á milli ára, er og verður
14,52% miðað við núverandi
forsendur.
Gjaldskrár í Dalabyggð hækka
almennt um 5,4% á milli ára sem
er töluvert undir því sem ríki og
sveitarfélög eru að hækka sínar
gjaldskrár. „Því má segja að um
sé að ræða raunlækkanir á gjald
skrám í nokkrum tilvikum. Til við
bótar samþykkti sveitarstjórn að
fella niður vistunargjald í leikskóla
hjá elsta árgangi í leikskóla hverju
sinni, svokölluðum skólahóp.
Þessar ráðstafanir sýna fjárhags
lega burði Dalabyggðar sem og
einbeittan vilja sveitarstjórnar til að
skapa sem bestar búsetuaðstæður
fyrir íbúa.“
Áætlað er að skuldahlutfall
sveitarfélagsins í árslok 2023 verði
91% og útlit er fyrir að núver
andi langtímaskuldir Dalabyggðar
verði upp greiddar að mestu á
árinu 2024. „Ný lántaka er engu að
síður í farvatninu því vonir standa
til að langþráðar framkvæmdir við
íþróttamannvirki í Búðardal hefj
ist á árinu 2023 sem mun hafa í för
með sér nýja lántöku. Frístunda
akstur verður styrktur fram að því
að íþróttamannvirki verða tekin í
notkun í Búðardal en það tilrauna
verkefni hefur fengið afar góðar
viðtökur. Áfram verður haldið
með LED væðingu götulýsingar
í Búðardal og gatnaframkvæmdir
eru á dagskrá, bæði hvað varðar
íbúðagötur og eins í iðnaðarhverfi.
Endurbætur á skólahúsnæði sem
og á stjórnsýsluhúsi taka sinn skerf
af framkvæmdafé og einnig er gert
ráð fyrir áframhaldandi stofnfram
lögum til bygginga íbúða.
Markmið sveitarstjórnar Dala
byggðar er að íbúum fjölgi á næstu
árum því næg eru verkefnin og
mikilvægt að fá fleiri hendur til
starfa og þátttöku í því blómlega
samfélagi sem í Dalabyggð er,“
segir í tilkynningu frá sveitarstjórn
Dalabyggðar.
mm/ Ljósm. sm.
Gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í Dalabyggð