Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 116
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022116
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Pennagrein
Eitt af mínum eftirlætis jólalögum
er Hin fyrstu jól, lag Ingibjargar
Þorbergs við kvæði Kristjáns frá
Djúpalæk. Kannski er ástæðan fyrir
dálæti mínu á þessu lagi sú að það
færir fæðingu Krists svo nærri lífi
mínu sem stráks í sveitinni. Lág
stemmd lýsing og næstum hvers
dagsleg.
Og stjarna skín gegn um skýjahjúp
með skærum lýsandi bjarma
og inn í fjárhúsið birtan berst
og barnið réttir út arma
en móðirin sælasti svanni heims
hún sefur með bros um hvarma.
Já, það er ekki laust við það að maður
verði svolítið meyr þegar líður að
jólum. Árið á sínum síðustu metrum
og enn bætist í hóp barnabarnanna.
Það er margt sem maður má vera
þakklátur fyrir.
Mikilvægi húsnæðsmála
Verkefnin sem nýtt ráðuneyti
innviða eru viðamikil og mikil
væg. Samgöngumál, byggðamál,
sveitar stjórnarmál, skipulagsmál
og húsnæðismál eru öll á könnu
ráðuneytisins og mikill gangur
á öllum sviðum. Húsnæðismálin
hafa verið í brennideplinum síð
ustu misserin enda eru þau ekki
aðeins gríðarlegt lífsgæðamál fyrir
fjölskyldur heldur einnig stórt
efnahagsmál sem hefur áhrif langt
út fyrir þenslusvæðin.
Búsetufrelsi
Í vinnu ráðuneytisins höfum við
lagt mikla áherslu á búsetufrelsi. Í
því felst að þjónusta hins opinbera
þarf að vera aðgengileg öllum, hvar
sem þeir búa á landinu. Hamingja
fólks er ekki síst fólgin í því að það
geti búið sér heimili þar sem það
helst kýs. Búsetufrelsi ýtir undir fjöl
breytileika byggðanna.
Lífsgæði og samgöngur
Við sjáum allt land miklar fram
kvæmdir þegar kemur að sam
göngum. Við gerum okkur líka
öll grein fyrir því að samgöngur
eru lífæð byggðanna og mikilvæg
tenging fyrir fjölskyldur og fyrir
tæki. Mér hefur þótt mikilvægt að
líta ekki aðeins á samgöngur með
mælikvarðana í kílómetrum heldur
horfa á þau lífsgæði sem fylgja betri
og öruggari samgöngum.
Tækifæri framtíðarinnar
Við lifum á tímum mikilla breytinga.
Síðustu árin hafa breytingar á lofts
lagi verið eitt helsta umræðuefni á
sviði stjórnmálanna í heiminum. Við
hér á Íslandi erum svo lánsöm að vera
komin mjög langt þegar kemur að
lausn þessa vanda. Getum að mörgu
leyti verið fyrirmynd annarra þjóða
enda áður búin að ganga í gegnum
orkuskipti með hitaveituvæðingu
landsins og síðar rafvæðingu.
Við erum líka svo heppin að hafa
mikla reynslu af því að framleiða
græna orku með afli jarðhita og
fallvatna. Loftslagsbreytingar hafa
knúið áfram þróun frá notkun jarð
efnaeldsneytis til annarra orkukosta.
Við verðum að hætta að tala og byrja
að gera. Staða Íslands er einstök að
því leyti að við höfum á næstu árum
tækifæri til þess að verða algjör
lega sjálfbær hvað varðar orku. Við
munum ef rétt er á haldið ná full
komnu orkusjálfstæði. Og orkusjálf
stæði þýðir að við stöndum mun
betur þegar kemur að fæðuöryggi.
Því eins og staðan er í dag þá myndu
ekki líða margar vikur frá því að síð
asta olíusendingin kæmi til lands
ins og þangað til við myndum ekki
geta framleitt matvæli vegna skorts
á eldsneyti.
Kæri lesandi! Það er gott að geta
á dimmasta tíma ársins notið sam
vista við fjölskyldu og vini og leitað
í bjartar minningar. Brátt fær
ist helgin yfir og henni fylgir líka
hækkandi sól og bjartari tímar. Ég
óska þér gleðilegrar hátíðar.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Höf. er formaður Framsóknar
og innviðaráðherra
Kveðja á aðventu
Sigvaldi Arason verktaki með meiru
í Borgarnesi bauð ásamt fjölskyldu
sinni til veislu síðastliðinn sunnu
dag í tilefni af 85 ára afmæli sínu.
Fjölmenni mætti á svæðið til að
fagna með honum og heilsa upp á
hann. Ræður voru haldnar og ann
aðist Ari Sigvaldason veislustjórn.
Við þetta tækifæri var salur Hjálma
kletts fallega skreyttur jólaljósum.
Sigvaldi er eins og mörgum er
kunnugt stofnandi Borgarverks og
hefur víða komið að framkvæmdum
gegnum tíðina. Hann tók gjarnan
ljósmyndir tengdar störfum sínum
og mátti sjá úrval athyglisverðra
mynda á staðnum. Í afmælisveisl
unni mátti m.a. sjá núverandi og
fyrrum starfsmenn Borgarverks og
aðra góða gesti skoða myndirnar
og rifja upp ýmsar framkvæmdir
og viðburði úr sögu héraðsins. Í
samkvæminu var Sigvaldi gerður
að heiðursfélaga í Rótarýklúbbi
Borgar ness og er einn þriggja sem
ber þann titil í dag.
gj/ Ljósm. mm
Silli Ara bauð til veislu
á afmælisdaginn
Afmælisbarnið við háborðið. F.v. Sigvaldi Arason, Auður Aradóttir, Ari Sigvaldason
og Ilmur Kristjánsdóttir.
Nokkrar smellnar ræður voru fluttar, hér talar Páll Brynjarsson.