Skessuhorn - 20.12.2022, Page 14
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202214
Guðni Th. Jóhannesson forseti
Íslands og frú Eliza Reid komu
í opinbera heimsókn á Akra
nes fimmtudaginn 15. desem
ber. Þétt dagskrá var allan daginn
og fengu forsetahjónin að kynn
ast mörgu því sem Akranes býður
upp á. Formleg dagskrá hófst
á bæjarskrifstofu Akraneskaup
staðar að Dalbraut 4 þar sem
Steinar Adolfsson sviðsstjóri
stjórnsýslu og fjármálasviðs lóðs
aði forsetahjónin og fylgdarlið í
gegnum húsið, í fjarveru Sævars
Freys Þráinssonar bæjarstjóra, og
sýndi þeim þá starfsemi sem þar
fer fram. Ásamt Akraneskaupstað
hefur aðsetur í húsinu Félag eldri
borgara á Akranesi og nágrennis
(FEBAN) og höfðu bæjarfulltrúar
og aðrir starfsmenn orð á því að
gott samstarf væri þar á milli en
kór FEBAN æfir iðulega í hús
næðinu á sama tíma og bæjar
stjórnarfundir eru haldnir. Blaða
maður Skessuhorns slóst í för
með forsetahjónunum og þeirra
föruneyti og kepptist við að fanga
stemningu þessarar opinberu
heimsóknar.
Kórinn Hljómur
söng fyrir gesti
Eftir leiðsögn um húsnæðið var
samkoma í sal bæjarskrifstofunnar
þar sem voru meðlimir félags eldri
borgara, starfsfólk Akraneskaup
staðar og starfsfólk Fjöliðjunnar.
Kórinn Hljómur (kór FEBAN)
söng þrjú lög fyrir gestina og var
öllum viðstöddum boðið að þiggja
veitingar. Kaffi, kleinur, pönnu
kökur og smákökur, þjóðlegt
og gott. Forsetahjónin heilsuðu
gestum og áttu skemmtilegar sam
ræður við marga hverja. Eftir kaffi
sopa og kleinuát lá leiðin inn á fund
með bæjarstjórn kaupstaðarins. Þar
kynnti Karen Jónsdóttir frá Café
Kaju starfsemi sína og bauð upp
á smakk á lífrænni byggmjólk og
byggjógúrt úr sinni smiðju. Val
garður Lyngdal Jónsson, forseti
bæjarstjórnar, fór hratt yfir sögu
og kynnti helstu mál Akraneskaup
staðar fyrir þeim forsetahjónum.
Dagskráin var þétt
og skemmtileg
Næst var Forseta Íslands fylgt í sjó
inn á Langasandi á Akranesi. Með
limir úr Sjóbaðsfélagi Akraness
tóku á móti honum í Guðlaugu og
þrátt fyrir stinningskulda óð forseti
vor út í sjó sem var ekki nema tvær
gráður. Hann hafði þá á orði að
Guðlaugin væri sérstaklega notaleg
og náði hann þar líkamshitanum
aftur upp.
Í höfuðstöðvum Skagans 3X á
Bakkatúni var forsetahjónunum vel
tekið og þeim sýnd öll starfsemi
fyrirtækisins sem fer þar fram en
Skaginn 3X er hátækniframleiðandi
á kæli, frysti og vinnslukerfum
fyrir alþjóðlegan matvælaiðnað
og framleiðir einnig uppsjávar
vinnslukerfi.
Hádegisverður var á hjúkrunar
og dvalarheimilinu Höfða. Þar
höfðu matráðar töfrað fram fisk
í raspi, kartöflur og feiti. Enginn
stóð svangur upp frá borðum þegar
áfram var haldið en fulltrúar frá
Höfða fylgdu forsetahjónunum um
hjúkrunarheimilið og kynntu þau
fyrir heimilisfólki.
Skólar, frístund,
fimleikar og HVE
Frá Höfða var haldið á nýja leik
skólann Garðasel sem stendur við
Asparskóga. Þar voru samankomin
Opinber heimsókn forsetahjónanna á Akranes
Morgunkaffi í sal bæjarskrifstofunnar. F.v. Ásgeir Sigurðsson, Sigríður Valdimars-
dóttir, Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson.
Fimm ára börn á öllum leikskólum á Akranesi tóku á móti forsetahjónunum við nýja Garðasel.
Börn í 1-2. bekk í Brekkubæjarskóla tóku á móti forsetahjónunum í frístundamiðstöðinni Þekjunni.
Fimleikafélag Akraness sýndi dans og önnur tilþrif á dýnu og trampólíni.
Hér gefur Guðni Akraneskaupstað framkallaða ljósmynd af Vigdísi Finnboga-
dóttur og ungum Skagamönnum, frá heimsókn hennar á Akranes árið 1992.