Skessuhorn - 20.12.2022, Page 59
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 59
Hinsta hvíldin
Kirkjan á Hellnum undirgengst
nú gagngerar endurbætur því
ástand hennar er slæmt, þótt aldur
hennar sé ekki hár í samanburði
við margar kirkjubyggingar lands
ins. Altaristaflan hefur verið fjar
lægð á meðan á viðgerð stendur
og tíminn að hluta til nýttur til að
hreinsa myndina, sem sýnir Krist
upprisinn hitta lærisveinana tvo
á leið til Emmaus. Var myndin
hreinsuð hjá Studio Stafni árið
2019 með stuðningi Snæfells
bæjar og að frumkvæði þáver
andi prests á Staðarstað, Arnaldar
Mána Finnssonar.
Umgjörð altaristöflunnar er
stærsta og merkasta verk skurðlista
mannsins Jóhannesar Helgasonar
og hlýtur að teljast þjóðargersemi.
Það verður því fagnaðarefni þegar
lagfæringum á Hellnakirkju lýkur
og hægt verður að koma henni
aftur fyrir á sínum stað.
Jóhannes Fanndal Helgason var
lagður til hinstu hvíldar í Hellna
kirkjugarði við hlið foreldra sinna
og systkina.
Þakkir
Við greinarskrifin var víða leitað
heimilda. En einkum eru Sæmundi
Kristjánssyni leiðsögumanni á Rifi
færðar bestu þakkir fyrir fróðleik,
ljósmyndir, yfirlestur og góðar
ábendingar. Að öðru leyti var stuðst
við skrif Sæbjörns Valdimarssonar
frá Skjaldartröð undir Jökli, rithöf
undar og kvikmyndagagnrýnanda
Morgunblaðsins. Birtust þau í Les
bók Morgunblaðsins 2. sept. 2000.
Skrifin byggir Sæbjörn að mestu á
endurminningum föður síns Valdi
mars Kristóferssonar (19041969)
frá Skjaldartröð, en hann þekkti vel
til manna og aðstæðna. Sr. Arnaldi
Mána Finnssyni eru einnig færðar
þakkir fyrir greinargóðar upplýs
ingar, svo og ljósmyndurum sem
leyfðu afnot mynda sinna.
gj
Krossinn í Sandahrauni. Ljósm. Sæmundur Kristjánsson.
Myndin sem Muggur teiknaði af gömlu kirkjunni. Ljósm. úr safni.
Koparskjöldurinn á krossinum.
Ljósm. Sæmundur Kristjánsson.
Hellnakirkja, sem nú bíður viðgerðar. Ljósm. Bryndís Súsanna Þórhallsdóttir.