Skessuhorn - 20.12.2022, Síða 101
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 101
Minningarsjóður
Einars Darra – Eitt líf
Eins og áður segir starfar Andrea
líka í afmörkuðum verkefnum fyrir
Minningarsjóð Einars Darra og
situr sem aðalmaður í stjórn sjóðs
ins. Einar Darri lést 25. maí 2018
vegna lyfjaeitrunar. Hann var þá
18 ára gamall og hafði litla sem
enga sögu um misnotkun á lyfseð
ilsskyldum lyfjum né öðrum vímu
efnum. Andlátið kom því fjölskyldu
hans algjörlega í opna skjöldu og
ákváðu vinir og fjölskylda í fram
haldinu að stofna minningarsjóð í
hans nafni til að hjálpa ungmennum
í fíknivanda. Minningarsjóður
inn stendur fyrir ýmsum fræðslu,
forvarnar og vitundarvakningar
verkefnum og kannast eflaust
margir við bleiku armböndin sem
svo marga hafa prýtt síðan þeim var
dreift árið 2018. Armböndin voru
kærleiksgjöf og var þeim dreift til
einstaklinga að kostnaðarlausu. Að
bera armbandið er tákn um sam
stöðu og er einnig ætlað til að fá
fólk sem sér armbandið til þess að
hugsa sig tvisvar um áður en það
misnotar lyf eða önnur vímuefni.
Þörf áminning um að við eigum
bara eitt líf.
Há hlátrasköll
Þrátt fyrir tíu ára aldursmun voru
systkinin Andrea og Einar Darri
miklir vinir. „Margir hefðu örugg
lega viljað vera fluga á vegg þegar
við systkinin fórum á trúnó,“ segir
Andrea og brosir yfir minningunni.
„Við gátum spekúlerað um öll lífs
ins málefni fram og til baka, og já
vissulega þrættum við um ýmislegt
inn á milli en hlógum líka mikið.
Og þá var sko hlegið almennilega
enda voru há hlátrasköll eitt af því
sem einkenndi okkar samband.“
Minningarnar sem Andrea
geymir um bróður sinn veita
henni bæði hlýju og gleði en vekja
á sama tíma upp sorg og söknuð.
Hún á erfitt með að lýsa þeim til
finningum sem upp komu fyrst
eftir að hún heyrði af andláti
bróður síns. „Mér leið hreinlega
eins og ég væri að kafna öllum
stundum. Ég réð ekki við tárin
sem láku stanslaust. Ég held að
allar mögulegar tilfinningar hafi
komið upp. Og ekki bara þær sem
ég flokka sem erfiðar því ég gat
líka hlegið þegar ég rifjaði upp
allt sem við gerðum saman. En
svo kom söknuðurinn aftur yfir
mig þegar ég áttaði mig á því að
slíkar stundir kæmu aldrei upp
aftur,“ segir Andrea og bætir við
eftir stutta kúnstpásu. „Og þær
áttu að verða svo mikið fleiri.“
Andrea var þá búin að ákveða að
flytja í Hvalfjarðarsveit um sum
arið 2018 og hefði þá búið rétt hjá
Einari Darra og fjölskyldu sinni.
„Þannig að ég var bæði að syrgja
hann og það sem við áttum en líka
það sem aldrei varð,“ segir Andrea
sem þurfti þá að sætta sig við að
hún fengi engu breytt.
Það er í lagi að gráta
Andrea segir að sér hafi verið
ómögulegt að takast á við allar
þessar tilfinningar ein en hún er
einstaklega heppin með bakland.
„Ég þurfti hjálp frá öllum í mínu
nærumhverfi en ég þurfti líka að
leita mér sérfræðiaðstoðar því ég
hafði ekki hugmynd um hvernig ég
átti að læra að halda áfram að lifa
eftir svona skyndilegt áfall.“
Hún fékk svo aðstoðina sem
hún þurfti og segir köfnunar
tilfinninguna ekki vera eins sterka
í dag og hún var áður. „Ég sakna
samt elsku litla brósa á hverjum
degi og tárin leka ennþá af og
til,“ segir Andrea. „En það er allt
í lagi að gráta, tárin eru leið lík
amans til að losa um erfiðar til
finningar. Og í dag hef ég lært að
lifa með þeim og sorginni og ég
vil heldur ekki lifa án sorgarinnar
því það að sakna er líka að minn
ast og ég mun aldrei hætta því, að
minnast.“
Rannsóknarefnið var
lyfjamisnotkun ungra
íslenskra karlmanna
Lokaverkefni Andreu í meistara
náminu fjallar um reynslu ungra
íslenskra karlmanna af misnotkun
lyfseðilsskyldra lyfja og tileinkaði
hún ritgerðina bróður sínum, sem
lést af þeim völdum. „Í meistara
náminu fengu nemendur að vinna
verkefni sem hentuðu áhugasviði
hvers og eins og út frá því fór ég
að vinna verkefni sem vörðuðu
lyfjamisnotkun. Það varð svo til
þess að mig langaði að kynna
mér þau mál betur og ákvað að
sníða loka verkefnið mitt að því,“
segir Andrea og bætir við að sú
ákvörðun hafi verið tekin í byrjun
árs 2018, þegar Einar Darri var
ennþá á lífi. Andlát hans átti því
ekki þátt í því að hún valdi þetta
ákveðna viðfangsefni. „Ég var
byrjuð að sérhæfa mig í þessu mál
efni þegar hann lést og þá hafði ég
enga vitneskju um að hann, elsku
bróðir minn, ætti við fíknivanda að
stríða.“
Andlát Einars Darra kom
Andreu og fjölskyldunni allri
algjörlega í opna skjöldu og seg
ist hún aldrei munu gleyma því
þegar hún fékk fyrst fréttir af and
látinu. „Ég fékk þær fréttir að það
hefði orðið slys og að litli bróðir
minn væri dáinn. Þegar ég heyrði
orðið slys þá kom aldrei upp í hug
ann hjá mér að lyfjaeitrun væri
orsökin. Hans saga hvað varðar
lyfjamisnotkun var enda mjög stutt
og fékk hann því miður ekki tæki
færi til að misstíga sig.“
Verkefni Minningarsjóðs Einars
Darra – Eitt líf falla því vel að
hennar menntunarsviði. Hún segir
sinn metnað til að vinna að verk
efnum sjóðsins fyrst og fremst
koma frá persónulegum stað í sínu
hjarta vegna sinnar reynslu en líka
út frá sinni akademísku þekkingu.
Hafðu trú á sjálfri þér
Andrea hefur í gegnum tíðina oft
þurft að minna sig á að hafa trú á
sjálfri sér í sínum verkefnum og
segir hún að Einar Darri hafi verið
hennar helsta klappstýra og hvatti
hana óspart áfram. „Hafðu trú á
sjálfri þér – sagði hann óteljandi
oft við mig. Hann var svo stoltur af
stóru systur sinni og fannst algjör
lega galið hvernig ég gat efast um
sjálfa mig í lífi og starfi. Þær efa
semdir og hugsanir skjóta auðvitað
ennþá upp kollinum öðru hvoru
en þá minni ég mig á hans orð. Og
ég hvet aðra til að gera það líka. –
Hafðu trú á þér.“
Hvar sem ég verð
„Plön veita mér öryggi,“ segir
Andrea sem er mikil „plan“ mann
eskja. Hún segist plana allt sem
hún getur, hvort sem það eru
fjölskylduferðalög eða viku
skipulag. „Fjölskyldan mín hefur
í gegnum tíðina gert mikið grín
af mér út af þessu og má segja að
mín einkunnarorð séu: „Hvað er
planið?“ segir Andrea og hlær. „En
þótt plön veiti mér öryggi veit ég
líka að lífið er óútreiknanlegt og
maður þarf að vera viðbúinn því
að breyta sínum plönum og bregð
ast við.“ Andrea hefur þó tekið þá
ákvörðun að láta tímann leiða í ljós
hvort hún haldi áfram að starfa í
sveitarstjórn eða opinberri stjórn
sýslu að þessu kjörtímabili loknu.
„Oddvitastarfið er virkilega gef
andi og það veitir mér ánægju.
Því fylgir auðvitað mikil vinna en
ég held að annað væri óeðlilegt
því þegar maður hefur metnað til
að gera vel þá þarf að leggja á sig
vinnu og dug.“
Hvað varðar framtíðina segir
Andrea það litlu máli skipta hvert
framtíðin leiðir hana. Stóra málið
sé hvernig henni líður og hvaða
fólk er þar henni við hlið. „Ég vona
innilega að ég haldi áfram að vera
hamingjusöm og líða vel í faðmi
fjölskyldu og vina, hvar sem ég
verð,“ segir Andrea að lokum.
gbþ/ Ljósm. úr einkasafni.
GLEÐILEGA
JÓLAHÁTIÐ
S E N D I R Ö L L U M Ó S K U M
O G F A R S Æ L D Á
K O M A N D I Á R I
www.simenntun.is
Garða- og Saurbæjarprestakall akraneskirkja.is
Garða- og Saurbæjaprestakall
óskar öllum gleðilegra jóla og
Guðs friðar.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Einar Darri lést 18 ára gamall vegna lyfjaeitrunar. Á myndinni er bleika arm-
bandið sem Minningarsjóðurinn lét framleiða og dreifði til einstaklinga þeim að
kostnaðarlausu.
Fjölskyldumynd frá jólunum 2017.