Skessuhorn - 20.12.2022, Page 117
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 117
20. desember – Reykholt
Reykholtskórinn, Reykholtskirkja
og Snorrastofa bjóða til aðventu-
samkomu í Reykholtskirkju kl. 20.
Kórsöngur, jólahugvekja, jólasaga
og veitingar. Aðgangur er ókeypis
en söfnunarbaukur verður á
staðnum ef fólk vill styrkja
söngstarfið.
21. desember – Snæfellsnes
Vetrarsólstöðuhátíð á kaffihúsinu
Hjá góðu fólki. Karlakórinn Heiðb-
jört syngur, Skötuveisla og fiski-
hlaðborð ásamt rækju-fiskiréttar-
kokteil í forrétt. Slemma að hætti
húsfreyju í eftirrétt.
23. desember – Snæfellsbær
Langaholt býður upp á alvöru
skötuveislu. Skata, saltfiskur og
fleiri fagrir fiskar úr sjó ásamt
meðlæti. Opið verður kl. 11:30-
14:30. 4.900 kr.
23. desember – Borgarnes
Jólasveinar á vegum
körfuknattleiksdeildar
Skallagríms eru farnir að undir-
búa komu sína í bæinn á Þor-
láksmessu og eru búnir að opna
fyrir pantanir. Sendið póst á
karfa@skallagrimur.is eða skila-
boð í SMS 892-3468 með upplýs-
ingum um aldur og fjölda.
23. desember – Akranes
Jólamarkaður á Akratorgi verður
opinn á Þorláksmessu kl.13-23.
27. desember – Borgarfjörður
Jólaball Kvenfélags Staf-
holstungna fer fram í Þinghamri
og hefst kl.14. Dansað verður í
kringum jólatréð og aldrei að vita
nema jólasveinarnir kíki á svæðið,
allir velkomnir.
29. desember - Borgarfjörður
Logaland jólaball á vegum Kven-
félags Reykdæla hefst kl.14.
28. desember – Borgarnes
Jólaball í Hjálmakletti hefst kl.16.
Allir velkomnir.
2. janúar – Borgarfjörður
Félagsvist í Þinghamri ásamt flug-
eldasýningu. Flugeldasýningin
hefst kl. 20 og félagsvistin hefst í
framhaldinu. Lukkupokar verða til
sölu að venju.
Á döfinni
Nýfæddir Vestlendingar
5. desember. Stúlka.
Þyngd: 4.360 gr. Lengd: 54,5
cm. Foreldrar: Agnes Fríða
Gunnlaugsdóttir og Þorsteinn
Ásgeirsson, Kópavogi. Ljós-
móðir: G. Erna Valentínusdóttir.
7. desember. Drengur.
Þyngd: 3.508 gr. Lengd: 52 cm.
Foreldrar: Aldís Rós Hrólfsdóttir
og Kristján Þór Jónsson, Akra-
nesi. Ljósmóðir: Hafdís Rúnars-
dóttir.
15. desember. Drengur.
Þyngd: 3.586 gr. Lengd: 51
cm. Foreldrar: Ásrún Óskars-
dóttir og Hringur Hilmarsson,
Reykjavík. Ljósmóðir: G. Erna
Valentínusdóttir. Drengurinn
hefur fengið nafnið Hringur
Logi.
Getir þú barn þá
birtist það hér, þ.e.a.s . barnið!
WWW.SKESSUHORN.IS
BÓKAÚRVALIÐ
er hjá okkur
AUSTURVEGI 22
Opið mán.–lau. 12–18
ÁRMÚLA 42
Opið mán.–fös. 11–18
lau. 11–16