Úrval - 01.12.1952, Qupperneq 35
Dýrustu silkidúka og grófasta teppa-
vefnað getur hver sem er ofið
í hinum nýja handvefstól.
Nýr handvefstóll.
Grein úr „The Saturday Evening Post“,
eftir T. E. Murphy.
HINN FORNI handvefnaður,
sem um langt skeið hefur
verið næstum útdauður heimilis-
iðnaður, hefur skyndilega vakn-
að til lífs aftur. Fréttir af stór-
merkri endurbót á handvefstóln-
um hafa nýlega vakið athygli
vefara um allan heim. Uppfinn-
ingamaðurinn, Elphege Nadeau
í Woonsocket, R.J., í Bandaríkj-
unum, berast daglega ótal bréf
víðsvegar að úr heiminum, en
þau verða öll að bíða svars um
sinn, því að eftirspurnin í heima-
landinu er miklu meiri en svo
að hann geti fullnægt henni sem
stendur.
Hinn nýi handvefstóll ber á-
líka mikinn svip af gamla hand-
vefstólnum og arabískur veð-
hlaupahestur af flóðhesti. Gamli
handvefstóllinn, sem notaðar
hefur verið næstum óbreyttur
öldum saman, vegur nokkur
hundruð pund, tekur nokkurra
fermetra gólfpláss, er hávaða-
samur og klunnalegur og óþjáll
í höndum jafnvel æfðra vefara.
Stigfjalirnar eru næstum jafn-
margbrotnar og á kirkjuorgeli
og mörgum reynist erfitt að
læra að stíga þær.
Á vefstól Nadeaus eru engar
stigfjalir. Hann er gerður úr
alúmíníumpípum, vegur aðeins
rúm 30 pund og er ekki stærri
en svo, að hann fer vel á eld-
húsborði. Hægt er að vefa í hon-
um allar tegundir dúka, allt frá
fínustu silkidúkum upp í gróf-
asta teppastramma. Jafnvel við-
vaningar geta ofið í honum
tweedefni, skávefnað, cheviot og
aðrar tegundir fatadúka, og af-
kastað einum metra á klukku-
stund.
„Þegar ég var að vinna að
þessum nýja vefstól mínum,“
segir Nadeau, „var hugmynd
mín að endurvekja vefnaðinn
sem heimilisiðnað. Ég vildi gera
vefstólinn eins algengt heimilis-
tæki og saumavéíina."
Handvefnaður hefur um langt
skeið aðeins verið stundaður af
fáum sérfræðingum, sem skapað
hafa sín eigin mynztur og gætt
þeirra eins og ormur gulls.
Nadeau, sem hefur að baki sér
25 ára reynslu sem vefari og
mynzturgerðarmaður, hefur nú
handbærnokkurliundruð mynzt-
ur, sem hann lætur fylgja vef-
stól sínum. Með því að notfæra