Úrval - 01.02.1956, Blaðsíða 67
J>að er margt; líkt með barninu <>g öld-
ungnum, segir gömul kona, sem lýsir
]>ví hvernig það er —
Að verða gamalL
Grein úr „Vi“,
eftir Gunhild Tcgen.
HVERNIG er að verða gam-
all? spyr maður í hugs-
unarleysi einhvern, þegar hann
fyllir háan tug. Eða ef til vill
;sagði ég:
„Hvernig er að verða sjötug?"
Gamla konan leit á mig og
brosti. „Ef þig langar til að
vita það, þá komdu seinna. I
dag á ég afmæli og það er lít-
ið næði.“
Ég kom seinna. Við sátum
í sófanum með kaffibakkann á
sporöskjulagaða sófaborðinu frá
bernskuheimili hennar. Það var
hún sem talaði.
„Já, ég er að verða gömul.
Það finnast mörg merki þess
önnur en daga- og ártal. í dag
eru 99 ár síðan faðir minn fædd-
ist —- ég man enn afmælisdag-
inn hans, en þó auðvitað ekki
á sama hátt og fyrr. Það er
sagt um háaldrað fólk, að það
gangi í barndóm. Það er rétt,
að afturförin gerir okkur lík
börnum. Við glötum þeirri
leikni, sem við áunnum okkur
í byrjun lífsins með látlausri æf-
ingu og þjálfun. Nú reitir tím-
inn af okkur þessa leikni hægt
en örugglega. Undrandi veitir
maður því athygli, að orð Pré-
dikarans og veraldarvizkunnar
eru rétt: maður verður bam
að nýju í óhugnanlegri skop-
stælingu á fálmi barnsins: vax-
andi klaufaháttur í stað vaxandi
leikni barnsins.
Ég glopra nú úr höndum mér
oftar en áður. Hendurnar hafa
glatað næmi sínu og lipurð.
Skeiðin dettur á gólfið, þegar
ég ætla að taka hana. Gröm í
lund verð ég að beygja mig nið-
ur til að taka hana upp. En
það er erfiðara að beygja sig
en áður og tekur lengri tíma.
Öll störf mín ganga hægar.
Sama máli gegnir um minnið.
Mannanöfn fara í felur, og ég
þarf lengi að leita að orðrun,
sem áður lágu mér laus á tungu.
Hvað heitir læknirinn, sem
bjargaði lífi dóttur minnar?
Hvernig hef ég getað glejnnt
því? Ég verð að grafa það upp
— fara á spítalann og spyrja
þar . . . Það tekur tíma. En
ég lofaði honum bók. Hann get-
ur ekki vitað að ég hafi ekki
gleymt loforði mínu, heldur að-
eins nafni hans.
Hin daglegu störf ganga
greiðar, þau eru venjubundin —
heimilisstörfin minna á sig: