Úrval - 01.08.1956, Qupperneq 2
Sólbmnalyf.
Framhald af 4. kápusíðu.
Ijóssins að komast inn í hörundið;
8-MOP verkar þannig, að það örv-
ar hinar náttúrlegu varnir líkam-
ans gegn geislunum — fyrir áhrif
þess verður litarmyndunin i húð-
inni nokkrum sinnum örari en
ella.
8-MOP er unnið úr jurt sem
nefnist ammi majus og vex sem
illgresi á bökkum Nílar í Egypta-
landi og víðar í Miðausturlönd-
um. Síðan á 13. öld hefur það
verið kunnugt, að safi úr fræj-
um þessarar plöntu hefði nokkur
áhrif á hvítar skellur í húðinni
(vitiligo). Árið 1947 tókst tveim
egypzkum lyfjafræðingum að ein-
angra hið virka efni í fræsafan-
um, en það er einmitt 8-MOP.
Prófanir á þessu lyfi hafa und-
anfarin ár farið fram í Egypta-
landi, Frakklandi og Bandaiíkj-
unum.
Ekki er útlit á, að leyfð verði
frjáls sala á 8-MOP fyrst um
sinn. Nú er það aðeins selt gegn
lyfseðli. En ef frekari tilraunir
leiða i ljós, að það sé algerlega
meinlaust — og ekkert hefur enn
komið í ljós, sem bendir í aðra
átt — munu framleiðendur sólar-
oliu þurfa að leita sér að öðru
verkefni.
Aðsend vísa.
tJrval fékk eftirfarandi visu
frá lesanda, og fylgdi sú skýr-
ing að hún hefði orðið til eftir
að hann las „Fyrnd orð — en
falleg" á kápu 2. heftis þ. á.
Svo vill til, að höfundurinn er
f jölskyldumaður og mætti af þeim
sökum geta sér til, að vísan væri
lýsing á fjölskyldunni, þótt ekki
skuli hafðar uppi neinar getsakir
um það —i en ef svo er, má segja
að ekki hallist á um kostina ...
Um skýringar á orðunum vís-
ast til kápu 2. heftis:
Bellin er beðvina,
bæginn fólkmýgir.
Lösk er lifra,
en lifri kvalráður.
Lyftur í New York.
1 New York borg eru um
45.000 lyftur, þar af um 30.000
farþegalyftur. Á hverjum degi
fara þær um 18 milljónir ferða
upp og niður, vegalengd, sem
nemur alls um 200.000 km. Upp-
lýsingar þessar eru frá the
National Geographic Society.
Sumir borgarbúar ferðast lengri
leið upp og niður með lyftu held-
ur en eftir jörðinni. öll lyftugöng í
New York eru til samans lengri en
neðanjarðarbrautir borgarinnar.
— Science Digest.
URVAL
Ritstjóri og útgefandi: Gísli Ólafsson. Afgreiðsla
og ritstjórn: Leifsgötu 16, Reykjavík. Simi 4954.
Kemur út sex sinnum á ári. Verð kr. 12,50 hvert hefti í lausasölu.
Áskriftarverð 70 kr. á ári. Gjalddagi áskrifta er 1. júlí. Utanáskrift
tímaritsins er: URVAL, túnarit, Leifsgötu 16, Reykjavxk.