Úrval - 01.08.1956, Qupperneq 10
8
ÚRVAI,
bústöðum. Annars var ekkert
sem minnti á mannlíf; við lags-
konurnar vorum einar með
stjörnunum. Ég hef aldrei séð
þær fallegri: þokukennda vetr-
arbrautina yfir þveran himin-
inn, skýr stjörnumerkin, bjarta
plánetu nærri sjóndeildar-
hringnum. Einu sinni eða tvisv-
ar lýsti af braut loftsteins á
leið gegnum gufuhvolfið.
Mér flaug í hug, að ef þessi
sjón sæist aðeins einu sinni eða
tvisvar á öld, mundi þetta nes
vera þéttskipað áhorfendum. En
hún mætir auganu ótal sinnum
á ári hverju, og þessvegna log-
uðu ijósin í sumarbústöðunum
og þeir sem inni sátu létu sig
engu skipta fegurð himinsins;
og vegna þess að þeir geta séð
hana næstum hvaða kvöld sem
er, munu þeir aldrei sjá hana.
Reynslu af þessu tagi, þegar
hugsanirnar losna úr viðjum og
spanna víddir geimsins, er hægt
að deila við barn, jafnvel þó að
maður þekki ekki nafn á nokk-
urri stjörnu.
Og svo er það hinn smágerði
heimur, sem okkur sést alltof
oft yfir. Mörg börn taka eftir
því sem er smátt og lætur lítið
yfir sér, ef til vill vegna þess
að þau eru sjálf lítil og nær
jörðinni en við. Af þessum sök-
um er auðvelt fyrir okkur að
njóta með þeim þeirrar fegurð-
ar, sem við förum oftast á mis
við af því að okkur sést yfir
hana. Mörg fegurstu handar-
verk náttúrunnar eru smágerð,
eins og allir vita sem horft
hafa á snjókorn gegnum stækk-
unargler.
Stækkunargler sem kostar að-
aðeins nokkra tugi króna getur
opnað þér nýjan heim. Horfðu
með barni þínu á hversdagslega
hluti, sem þú gafst áður lítinn
gaum. Nokkur sandkorn geta
litið út eins og glitrandi gim-
steinar rósrauðir eða kristals-
tærir, eða eins og gljáandi tinnu-
perlur.
Að horfa á mosató í gegnum
stækkunargler er eins og að
horfa inn í þéttan frumskóg
þar sem skordýr á stærð við
tígrisdýr stjálda um milli und-
arlega lagaðra, laufmikilla
trjáa. I smágerðum vatnagróðri
eða þaragróðri, sem látinn er í
glas og skoðaður undir stækk-
unargleri má sjá hinar furðu-
legustu dýrahjarðir, og það er
hægt að una klukkutímum sam-
an við að virða fyrir sér hátt-
erni þeirra. Blóm eða brum-
knappar á trjám eða hvaða
smávera sem er birtir okkur ó-
venjulega fegurð og margbreyti-
leik þegar við yfirstígum með
hjálp stækkunarglersins þau
takmörk, sem stærðarmæli-
kvarði mannsins setur okkur.
Það geta fleiri skilningarvit
en sjónin opnað okkur leið til
nýrra uppgötvana, sem við
geymum í þakklátu minni. Hinn
rammi þefur úr reykháfi sum-
arbústaðarins snemma morg-
uns hefur kitlað nasir okkar
Rogers og veitt okkur unað.